Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.11.2022, Síða 31

Læknablaðið - 01.11.2022, Síða 31
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 507 Þann 18. nóvember ár hvert minnir sótt- varnastofnun Evrópu á mikilvægi sýkla- lyfja (European Antibiotic Awareness Day). Sama dag hefst vika vitundarvakn- ingar um sýklalyfjanotkun á vegum Al- þjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Sýklalyfjaónæmi er vaxandi vandamál á heimsvísu sem ógnar virkni sýklalyfja og þar með nútíma læknisfræði. Skyn- samleg notkun sýklalyfja er mikil- vægt atriði til þess að stemma stigu við frekari þróun sýklalyfjaónæmis í heiminum. Aukin áhersla hefur verið á alþjóðasamstarf á þessu sviði undanfarin ár enda telst sýklalyfjaónæmi ein mesta heilbrigðisógn sem steðjar að mannkyni í dag. Á tíma COVID-19 faraldursins urðu talsverðar breytingar á ávísunum sýklalyfja hér á landi miðað við fyrri ár. Árið 2020 fækkaði ávísunum verulega frá og með aprílmánuði (mynd) en árið 2021 fjölgaði þeim á ný, sérstaklega síðari hluta ársins.1-3 Svipuð þróun hefur sést erlendis, til dæmis í Svíþjóð. Samkomutakmarkanir kunna að hafa stuðlað að fækkun öndunarfærasýkinga almennt og þar með fækkun sýklalyfjaávísana á fyrsta ári far- aldursins. Mestar breytingar urðu hjá börnum undir 5 ára aldri en ávísunum til þeirra fækkaði um þriðjung á milli áranna 2019 og 2020 (úr 915 niður í 699 ávísanir/1000 íbúa/ári). Ávísunum fjölgaði aftur árið 2021 og varð heildarfjöldinn þá enn hærri en 2019 (1017 ávísanir/1000 íbúa/ári).4 Því miður virðist sem aukningin síðla árs 2021 haldi áfram það sem af er þessu ári því heildarfjöldi ávísaðra dagskammta sýklalyfja var sambærilegur eða hærri mánuðina mars til september 2022 en sömu mánuði árið 2019 (mynd). Því eru teikn á lofti um að jákvæð þróun í sýklalyfjaávísunum síðustu ár hafi verið tímabundin. Þessi þróun er að sjálfsögðu áhyggju- efni, ekki síst þegar haft er í huga að ávís- anir á sýklalyf eru mun fleiri hér en á hin- um Norðurlöndunum, Hollandi og öðrum löndum sem við berum okkur saman við. Þýðingarmikið er að læknar séu með- vitaðir um þessa þróun og haldi áfram vegferð okkar í átt að skynsamlegri ávís- un sýklalyfja. Í því sambandi má minna á ráðleggingar um meðferð algengra sýkinga utan sjúkrahúsa (Strama) á heimasíðu Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu (throunarmidstod.is/). Einungis með samstilltu átaki allra lækna mun okkur takast að viðhalda góð- um árangri þegar kemur að skynsamleg- um ávísunum sýklalyfja. Heimildir 1. Folkhälsomyndigheten. Pandemin har påverkat både antibiotikaförsäljningen och antibiotikaresisten- sen. folkhalsomyndigheten.se/nyheter-och-press/ nyhetsarkiv/2022/juni/pandemin-har-paverkat-bade-anti- biotikaforsaljningen-och--antibiotikaresistensen - júní 2022. 2. Högberg LD, Vlahović-Palčevski V, Pereira C, et al. Decrease in community antibiotic consumption during the COVID-19 pandemic, EU/EEA, 2020. Euro Surveill 2021; 26: 2101020. 3. Halldórsdóttir AM, Guðnason Þ. Bréf til blaðsins. Vitundarvakning um sýklalyfjanotkun – viðhöldum góðum árangri. Læknablaðið 2021; 107: 549-50. 4. Sýklalyfjanotkun og sýklalyfjanæmi baktería hjá mönn- um og dýrum á Íslandi 2021. Skýrsla unnin í samstarfi við Matvælastofnun. Ritstj: Halldórsdóttir AM. landla- eknir.is/utgefid-efni/skjal/item50329/.- september 2022. B R É F T I L B L A Ð S I N S Sýklalyfjaávísanir utan sjúkrahúsa á Íslandi – stefnum við í öfuga átt? Ávísanir sýklalyfja (J01, samkvæmt ATC-flokkunarkerfinu, sjá Sérlyfjaskrá) utan sjúkrahúsa árin 2017-2022 eftir mánuðum, mældar sem fjöldi skil- greindra dagsskammta (DDD) á 1000 íbúa á dag (DID). Anna Margrét Halldórsdóttir yfirlæknir á sóttvarnasviði, Embætti landlæknis Jón Steinar Jónsson yfirlæknir á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.