Læknablaðið - 01.11.2022, Page 39
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 515
Hvers virði er þinn frítími?
Reglubundin 16.641 kr.
á mánuðiSkoðaðu málið á heimilisthrif.is
þrif frá
Traust þjónusta í 9 ár
07:00 Rumska við kaffilykt og umgang
á heimilinu eins og flesta morgna. Konan
iðulega komin á ról á undan mér. Hef
samt alltaf vekjaraklukkuna á símanum
stillta á 7:15 til öryggis – fyrirkomulag
sem samþykkt var á fjölskyldufundi fyrr
á árinu í kjölfar lélegrar frammistöðu af
minni hálfu þegar konan var að heiman
yfir nótt. Þann morgun vaknaði ég við
það að 9 ára sonur minn stóð fullklæddur
í útifötum við rúmstokkinn rúmlega 8 að
morgni og spurði hvort ég þyrfti ekki að
mæta í vinnu, hann væri sjálfur að fara
í skólann. Í dag gengur hins vegar allt
snurðulaust fyrir sig. Fæ mér kaffibolla,
fer í sturtu, klæði mig og hjálpa til við
að koma drengnum í skólann. Hann er
spenntur að hjóla í skólann á glænýjum
nagladekkjum sem sett voru á hjólið í gær.
08:15 Mæti í vinnu á Reykjalundi. Byrja
á að ræsa tölvuna, opna bæði sjúkraskrár-
kerfin sem notuð eru á Reykjalundi, Sögu
og Díönu, og skoða svo tölvupóstinn. Fæ
þannig gróft yfirlit yfir dagskrá dagsins.
08:20 Hitti hjúkrunarfræðinga geð-
heilsusviðsins þar sem við förum gróf-
lega yfir skjólstæðinga sviðsins sem eru
yfirleitt 18-20 hverju sinni. Hef verið eini
læknir sviðsins undanfarna viku og því
mikilvægara en áður að fá að heyra frá
öðrum í teyminu hvort einhver óvænt
vandamál hafi komið upp.
09:00 Hitti einstakling sem er að inn-
skrifast á geðheilsusviðið.
10:00 Viðtal við einstakling sem er að
ljúka meðferð hjá okkur á geðheilsu-
sviðinu. Gengið að mörgu leyti vel en þarf
lengri stuðning eins og svo oft á við okkar
skjólstæðingahóp.
01:00 Vikulegur teymisfundur með öll-
um fagstéttum teymisins. Í teyminu eru
iðjuþjálfarar, félagsráðgjafi, sjúkraþjálfar-
ar, heilsuþjálfari, sálfræðingar, hjúkrunar-
fræðingar og geðlæknar. Á fundinum er
farið yfir útskriftir, nýir skjólstæðingar
kynntir og farið ítarlega yfir málefni
helmings skjólstæðingahópsins í teyminu.
12:30 Fæ mér epli og sest niður í stutta
stund í kaffistofunni með Ásgerði og
Salvöru, hjúkrunarfræðingum í teyminu.
Farið yfir eitt og annað, sumt tengt vinnu,
annað ekki.
13:00 Á að vera biðlistafundur með að-
stoðardeildarstjóranum en hann er veikur
svo ég nota tímann til að fara sjálfur yfir
biðlistann og undirbúa næsta fund. Oft
erfitt að velja og hafna þegar 150 beiðnir
eru á listanum.
14:00-15:30 Viðtöl við skjólstæðinga
deildarinnar.
15:30-16:15 Fer yfir tölvupósta og næ
aðeins að vinna í læknabréfum.
16:30 Fer upp í Heilsuvernd. Byrja að
vinna þar 1. nóvember. Hitti þar Stulla,
gamlan skólafélaga, vin og verðandi sam-
starfsmann. Tökum eina „sjálfu“.
17:30 Kem heim. Heilsa upp á báða
drengina og fæ að heyra hvernig dagur-
inn var. Ólík sýn á lífið og tilveruna hjá
þeim bræðrum enda sá eldri orðinn 18
ára.
18:00 Fer í ræktina. Er loksins að ná mér
á strik í hreyfingu eftir að hafa fengið
COVID-19 í upphafi ársins.
19:00 Léttur kvöldmatur með fjöl-
skyldunni.
20:00 Heimanámið hjá yngri drengnum
klárað. Þarf oft smá andlegan stuðning
og hvatningu til að klára þetta alveg þótt
hann sé mjög duglegur. Þetta er í þriðja
sinn sem ég fer í gegnum grunnskólann
aftur í gegnum börnin mín þannig að ég
er orðinn nokkuð sleipur í þessu. Með
hverju barni skipta einkunnirnar minna
máli og félagsleg tengsl og vellíðan vega
meira.
21:00 Dett inn í nýjasta niðurhal „vin-
konu minnar“ Pat Brown á YouTube.
Stórlega vanmetin kona með alltof fáa
áskrifendur. Hún er „criminal profiler“ á
eftirlaunaaldri sem tekur fyrir gömul og
ný sakamál. Eiginkonan deilir ekki aðdá-
un minni á henni, en segist ætla að hafa
samband við hana og biðja hana að senda
mér afmæliskveðju, hvernig sem ég á að
túlka það.
22:00 Hverf inn í draumaheiminn, sem
litaður er morðmáli kvöldsins.
Karl Reynir Einarsson
Með hjúkrunarfræðingunum í teyminu: Salvöru Gunnarsdóttur og Ásgerði Ólafsdóttur. Við Sturla Johnsen, heimilislæknir.
Dagur í lífi geðlæknis