Læknablaðið - 01.11.2022, Qupperneq 40
516 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
Fjöldi lækna reis upp og lýsti áhyggjum
sínum af stöðunni innan heilbrigðiskerf-
isins eftir erindi Willum Þórs Þórssonar
heilbrigðisráðherra á aðalfundi Læknafé-
lagsins þann 14. október. Margt kom fram
en meginstefið var mönnun, fjármögnun
og örmögnun.
Ráðherrann sagði í viðbrögðum sín-
um við fyrirspurnum lækna að spítalinn
yrði líklegast innan fjárlaga þessa árs.
Það komi þó ekki endilega til af góðu þó
að spítalinn hafi líka staðið sig vel. Það
mætti mögulega rekja eitthvað af þessu til
mönnunar en það væri erfitt að átta sig á
nákvæmri stöðu þar. Hann hafi því kallað
eftir að mönnunarþörfin yrði greind nán-
ar svo hægt væri að leggja mat á kostn-
aðinn og hversu mikla fjármuni spítalinn
þyrfti. „Þá veit ég betur fyrir hverju ég er
að berjast,“ sagði hann.
Læknar brugðust við orðum hans.
Sigurveig Pétursdóttir bæklunarlæknir
gagnrýndi þau orð og sagði nóg komið
af greiningum, eins og sjá má á síðu 479.
Þórdís Þorkelsdóttir, formaður Félags
almennra lækna, bauð aðstoð við matið.
Stella Rún Guðmundsdóttir, umsjónar-
læknir með sérnámi á lyflækningasviði og
stjórnarmaður í Félagi almennra lækna,
benti ráðherranum á þau mistök sem gerð
hafi verið þegar greiðslur fyrir aukavaktir
hafi verið afnumdar.
„Þú talar um að greina mönnunarþörf.
Við höfum gert það á okkar sviði og vitum
hver hún er og hvað við þurfum marga
á kvöldin. Eftir að þessar greiðslur duttu
út getum við ekki mannað þessar vaktir,“
benti hún ráðherranum á. Veikindin séu
mikil vegna álags enda dagvaktir undir-
mannaðar. Hún reyni að tryggja mönnun
án þess að geta boðið neitt í staðinn. „Plís,
plís mættu,“ biðji hún en starfsfólk segi
nei.
„Þessar aukagreiðslur eru einföld leið
til að leysa þennan vanda,“ sagði Stella.
Erfitt verði að vinda ofan af gremjunni
sem ákvörðunin hafi skapað gagnvart
spítalanum.
A Ð A L F U N D U R L Í
Heilbrigðisráðherra sagði að auka þyrfti fjármagn svo
læknar gætu endurheimt krafta sína milli vakta. Hann
brást þar við orðum Ólafs Þórs Ævarssonar geðlæknis.
Ólafur benti á að hann hefði ekki áður liðsinnt
jafnmörgum ungum læknum vegna álags í starfi
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Willum Þór í einlægu
samtali við lækna á
aðalfundi
Læknafélagsins
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hlustaði á áhyggjur lækna á að-
alfundi Læknafélagsins sem haldinn var um miðjan októbermánuð. Hann
sagði í lok fundar að hann væri innilega þakklátur fyrir samtalið og skyldi
reyna að gera sitt allra besta. Mynd/gag
Sjúkraskrárkerfið kannski ekki annað en sokkinn kostnaður
Friðbjörn Sigurðsson, krabbameinslæknir og fyrrum formaður
Læknaráðs, kallaði á aðalfundinum eftir nýju sjúkrahúsi á Akur-
eyri sem og nýju sjúkraskrárkerfi.
Heilbrigðisráðherra sagði marga tala um sjúkraskrárkerfið.
Stundum þurfi að horfast í augu við að kostnaðurinn hingað til sé
sokkinn. Hann gæti þó ekki tekið þessa ákvörðun einn eða fullyrt
að hún væri sú skynsamlegasta. „Þetta er risamál,“ sagði ráðherr-
ann.