Læknablaðið - 01.11.2022, Qupperneq 41
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 517
Stolt stétt sem
vill sjá lækna
getið í lagatextum
„Læknastéttin er stolt stétt. Hún hefur
faglegt stolt og faglega ábyrgð, en það
skiptir máli að henni sé treyst,“ sagði
Katrín Fjeldsted, heimilislæknir, fyrr-
um alþingismaður og heiðursfélagi
í LÍ. Hún hefði uppgötvað á þingi að
orðið læknir væri að hverfa úr lagatext-
um. „Í staðinn fyrir orðið læknir kom
orðið heilbrigðisstarfsfólk. Það er eins
og hafi ekki mátt nefna læknana.“
Katrín kallaði eftir því að ráðu-
neytið myndi eftir því við vinnu sína
að læknar skipti heilmiklu máli. „Orðið
læknir þarf að vera inni,“ sagði hún
og benti á að aldrei hefði læknir orðið
ráðherra. Aðeins einn ráðuneytisstjóri.
„Það var Páll Sigurðsson í upphafi
heilbrigðisráðuneytisins.“ Læknar
ættu að vera í stjórnunarstöðum í
heilbrigðisþjónustunni. Hún hrósaði
því ráðherranum fyrir að velja sér
lækni sem aðstoðarmann; Guðrúnu
Ásu Björnsdóttur.
Ráðherra sagði við þetta tilefni
að hann vissi ekki um hóp sem hefði
sterkari fagvitund en lækna. Hann
hvatti lækna til að finna þann rétta.
„Ég er þakklátur fyrir að þú sérð kjarn-
ann,“ sagði Ólafur Þór Ævarsson,
geðlæknir og fulltrúi Læknafélags Reykja-
víkur, og dró saman erindi ráðherrans.
Hvernig hann sæi að mönnunin væri of
lítil, fjármagnið of lítið. Læknar skildu að
framfylgja þyrfti stefnum, erfitt væri að
byggja spítala og gera samninga. Nú ynni
hann með óvenju marga lækna veika af
álagi.
„Ég óttast að þótt það séu úrbætur í
gangi og við heyrum að þú hafir aðalat-
riðin á hreinu; að það þurfi að gerast eitt-
hvað meira núna,“ benti Ólafur á. Hann
kom inn á íþróttamyndlíkingu eins og
ráðherrann notar gjarnan. „Okkur líður
ekki eins og við séum í skemmtilegum
handboltaleik. Okkur líður meira eins og
okkur sé hent út úr þyrlu á hæsta fjalls-
toppi. Annar stafurinn er brotinn og skíð-
in 15 ára gömul,“ sagði hann.
Læknar þyrftu því „eitthvað meira
núna“ en orð. Þeir þyrftu viðurkenningu á
því að ástandið væri eins alvarlegt og þeir
lýstu. Öryggi sjúklinga væri stefnt í hættu.
„Það er ekki eðlileg staða að ungir læknar
á hátindi ferils síns hugsi um það annan
hvern dag hvernig þeir geti komist hjá
starfinu og hætt,“ sagði Ólafur Þór.
Ráðherra sagði að hann hefði lýst
þessari stöðu fyrir ríkisstjórninni. Staðan
væri býsna alvarleg.
Katrín Fjeldsted talaði um stolt og sterka fagvitund.
Mynd/gag
„Við þurfum viðurkenningu á að
ástandið sé svona alvarlegt“
Ólafur Þór
Ævarsson benti
á að staðan væri
alvarlegri en
áður. Mynd/gag
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, stýrði fyrsta aðalfundi sínum. Hann fór fram í húsakynnum
Læknafélagsins þann 14. október og var vel sóttur. Sex ályktanir um margvísleg málefni sem snerta heilbrigðismál
voru samþykktar á fundinum. Mynd/gag