Fréttablaðið - 17.03.2023, Blaðsíða 20
Mamma var svo
leið yfir að ég
ætlaði ekki að fermast og
varð glöð þegar ég vildi
halda afmæli í staðinn.
En svo ákvað ég að ferm-
ast borgaralega og þá
breyttist það í fermæli.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
www.partybudin.is
Photobooth
Skraut
Ferming framundan?
Sérmerktar blöðrur
Jón Leví Dalkvist er
nemandi í 8. bekk í
Auðarskóla í Búðardal.
Hann fermist í vor, líkt
og svo margir jafnaldrar
hans, en stóri dagurinn
verður á skírdag, þann
6. apríl. Jón Leví segist
vera spenntur fyrir
deginum.
Flestir bekkjarfélagar
Jóns Levís fermast í kirkju
en Jón Leví og ein bekkjar-
systir hans völdu að fermast
borgaralega. Jón Leví segist upp-
haflega ekki hafa ætlað að fermast
yfirhöfuð en mömmu hans fannst
það frekar leiðinlegt svo hann
stakk upp á að halda bara stórt
afmæli í staðinn.
„Mamma var svo leið yfir að ég
ætlaði ekki að fermast og varð glöð
þegar ég vildi halda afmæli í stað-
inn. En svo ákvað ég að fermast
borgaralega og þá breyttist það í
fermæli, sem er ferming og afmæli
saman,“ útskýrir Jón Leví sem
verður 14 ára þann 13. apríl.
Jón Leví segir að þótt hann sé
ekki trúaður í dag hafi hann einu
sinni verið kristinnar trúar.
„En svo var ein ferming sem
ég fór í sem fældi mig pínu frá
trúnni. Ég hef líka hitt fólk sem var
of trúað fyrir minn smekk og ég
hugsaði: Þetta er of mikið,“ segir
hann.
Þannig að ferming í kirkju hentar
þér alls ekki?
„Nei, alls ekki, það hentar mér
miklu betur að fermast borgara-
lega.“
Lærdómsríkur leikur
Jón Leví hefur þurft að fara alla
leið á Akranes til að fara í ferm-
ingarfræðslu en hann var einmitt
Fermingu
og afmæli
slegið saman
Vantar þig hugmynd að
æðislegri köku sem hægt er
að hafa á fermingarborðinu?
Hér er snickers-kaka sem er
allt í senn, súkkulaði, salt-
hnetur og yndismjúk kara-
mella. Smávegis gotterí sem
gleður allan aldur.
elin@frettabladid.is
Út úr þessari uppskrift, sé kakan
bökuð í eldföstu fati sem er 20x30
cm, ættu að fást að minnsta kosti
10 bitar.
Súkkulaðikaka
3 dl sykur
4 msk. kakó
1,5 dl hveiti
1 tsk. vanillusykur
150 g smjör
2 egg
Hitið ofninn í 150-160°C. Blandið
saman þurrefnum sem eiga að
fara í súkkulaðibotninn. Bætið við
bráðnu smjöri og eggi og hrærið
allt vel saman í hrærivél.
Smyrjið bökunarform sem er
20x30 cm og setjið bökunarpappír
í botninn. Setjið blönduna í formið
og dreifið úr henni.
Bakið í 45–50 mínútur. Kælið
kökuna alveg.
Hvít súkkulaðimús
100 g hvítt súkkulaði
3 dl rjómi
1 plata matarlím
100 g sykurpúðar (marshmallows)
Grófhakkið hvítt súkkulaði og
setjið í skál.
Setjið matarlím í smá kalt vatn.
Setjið rjóma í pott og hitið
rólega upp. Setjið matarlímsblaðið
út í og hrærið þar til það leysist
upp. Setjið þá sykurpúðana út í og
hrærið rólega þar til þeir leysast
upp líka. Setjið blönduna
saman við hvíta súkku-
laðið og hrærið allt
saman.
Þá er blöndunni hellt yfir súkku-
laðikökuna og fatið sett í kæli þar
til hún hefur stífnað.
Karamellusósa
3 dl rjómi
2 dl sykur
1 dl ljóst síróp
100 g smjör
Ofan á kökuna
1 dl salthnetur
200 g dökkt suðusúkkulaði
2 tsk. kókosfita
Setjið rjóma, sykur og síróp í pott.
Hrærið saman og hitið upp á
meðan hrært er stöðugt í.
Látið malla í 30 mínútur þar til
karamellublandan þykknar. Ef
uppskriftin er stækkuð þarf hún
að malla í að minnsta kosti 15
mínútum lengri tíma.
Gott er að nota mæli en blandan
á að fara upp í 118°C. Blandan má
ekki vera of hörð heldur er betra að
hún sé mjúk. Þegar karamellan er
passleg er smjöri hrært saman við.
Hellið karamellusósunni yfir
stífa súkkulaðimúsina, dreifið salt-
hnetum yfir.
Í lokin er dökkt súkkulaði og
kókosfita sett í vatnsbað. Þegar
þetta er bráðnað er blöndunni
hellt yfir karamellusósuna.
Geymið í kæli. n
Meiri háttar snickers-kaka
Hér hefur kakan verið
bökuð í hringformi
en það er betra að
hafa hana í formi sem
er 20x30 cm.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
að fara í fræðslu helgina eftir að
blaðamaður ræddi við hann fyrir
viku síðan.
„Ég er að fara á námskeið alla
helgina, á laugardaginn og sunnu-
daginn. En svo var líka nám-
skeið fyrir löngu síðan en fyrsta
deginum var aflýst vegna veðurs,“
segir hann. Hann segir að það
hafi verið alveg ágætlega margir
krakkar á því námskeiði, en ekkert
of margir samt.“
Hvað lærðuð þið á námskeiðinu?
„Við lærðum aðallega um
forsetamál, lýðræði og pólitík
og svona. Við gerðum til
dæmis svona próf þar sem við
bjuggum til gervisamfélag
sem átti að velja forseta. Við
gátum valið um þrjá menn.
Maður eitt var, ég man ekki
alveg fyrri hlutann um
hann en seinni hlutinn
var að hann var með
fylgjendur sem elskuðu
og dýrkuðu hann. Næsti
maður var ótryggur konu
sinni en var ræðusnillingur
og sá síðasti var háður eiturlyfj-
um en lifði eftir kristnum gildum,“
útskýrir Jón Leví.
„Við enduðum á að velja mann
eitt sem forseta en svo kom í ljós
að hann var Adolf Hitler. Ég man
ekki hver maður númer tvö var, en
maður númer þrjú var Kanye West.“
Hvað fannst þér þið læra af
þessum leik?
„Ég veit það ekki, kannski að fólk
lítur kannski vel út ef þú lest um
það en svo er það kannski ekki svo
gott fólk.“
Mamma ekki alltaf sammála
Jón Leví segir að mamma hans
hafi að mestu séð um undirbúning
veislunnar. En fermingarathöfnin
mun fara fram í veislunni sjálfri.
„Ég er með ákveðnar hugmyndir
en mamma er ekki alltaf sammála
og er að reyna að leiðbeina mér að
breyta eða bæta, sem mér finnst
stundum svolítið pirrandi því
þetta er mín veisla,“ segir Jón Leví.
„En hún spyr mig samt alveg hvað
mér finnst og vill að ég sé með í
þessu.“
Hann segir að búið sé að ákveða
flest hvað varðar stóra daginn og
hann sé búinn að finna fermingar-
föt sem hann er ánægður með.
Hann segist spenntur fyrir stóra
deginum, hann segist helst óska sér
að fá tölvuleiki í fermingargjöf og
þegar hann er spurður hvað hann
haldi að verði skemmtilegast við
daginn svarar hann: „Örugglega
bara veislan sjálf. Að hitta fullt af
ættingjum og vinum.“ n
8 kynningarblað 17. mars 2023 FÖSTUDAGURFERMINGAR