Fréttablaðið - 17.03.2023, Blaðsíða 40
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
MERKISATBURÐIR |
ÞETTA GERÐIST | | 17. MARS 1988
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, systir og frænka,
Kristín Rós Steindórsdóttir
lést á Landspítalanum föstudaginn
3. mars. Útförin fer fram frá Fella- og
Hólakirkju mánudaginn 20. mars kl. 13.
Hákon Hafliðason Guðrún S. Hreiðarsdóttir
Baldvin Hafliðason
Aníta Rut Baldvinsdóttir
Eva Lind Hákonardóttir
Anna María Steindórsdóttir
Sighvatur Steindórsson Ingunn María Björnsdóttir
Viktoría Steindórsdóttir
og fjölskyldur
Útför Jóhannesar Nordal, fyrr-
verandi seðlabankastjóra og
stjórnarformanns Landsvirkj-
unar til áratuga, verður gerð frá
Dómkirkjunni klukkan 16 í dag.
Jóhannes fæddist 11. maí 1924 og
andaðist 5. mars síðastliðinn, á
99. aldursári.
olafur@frettabladid.is
Fréttablaðið bað Þorstein Pálsson, fyrr-
verandi forsætisráðherra og fjármála-
ráðherra, að minnast hans á þessum
degi.
Í minningu Jóhannesar Nordal
eftir Þorstein Pálsson
Með Jóha nnesi
Nordal er genginn
einn áhrifamesti
og einn mikilhæf-
asti forystumaður
í íslensk u sam-
félagi á ofanverðri
síðustu öld.
Hann setti með
afgerandi hætti
mark sitt á þróun
og breytingar á
efnahagsstjórn landsins og nýmæli í
atvinnuháttum á sinni tíð.
Hann mótaði Seðlabankann og
stjórnaði honum í meir en þrjá áratugi.
Hann var einn helsti ráðgjafi Viðreisn-
arstjórnarinnar, sem færði Ísland frá
haftabúskap til frjálslyndari stjórnar-
hátta. Hann stýrði nýrri atvinnubylt-
ingu með forystu fyrir stóriðjunefnd og
Landsvirkjun.
Eitt síðasta framlag hans til framþró-
unar í þjóðarbúskapnum var forysta
hans fyrir auðlindanefnd, sem lauk
störfum í byrjun þessarar aldar með
vel rökstuddum hugmyndafræðilegum
tillögum um breytingar, sem enn bíða
þess að komast í framkvæmd.
Eins og allir þeir fjölmörgu stjórn-
málamenn sem sátu í fjármálaráðu-
neytinu og forsætisráðuneytinu á árum
Jóhannesar í Seðlabankanum átti ég um
skeið heilsteypt og árangursríkt sam-
starf við hann.
Jóhannes ávann sér traust manna úr
öllum stjórnmálaflokkum. Hitt skiptir
ekki síður máli að með þekkingu sinni
og persónulegum mannkostum átti
hann mikinn þátt í að auka traust
Íslands í samfélagi þjóðanna. Ég er ekki
viss um að allir geri sér grein fyrir því
hversu mikils virði það var fyrir land
og þjóð.
Ísland á Jóhannesi Nordal þakkar-
skuld að gjalda. n
Jóhannesar Nordal minnst
Jóhannes Nordal árið 1978. MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
Matthías Johannessen og Jóhannes Nordal í Vatnsdalsréttum árið 1993.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Magnús R. Jónsson
kaupmaður,
er lést sunnudaginn 5. mars síðastliðinn
verður jarðsunginn í Dómkirkjunni
föstudaginn 17. mars kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hins látna er bent á líknarfélög.
Guðbjörg Magnúsdóttir Sigurður Hallgrímsson
Björk Magnúsdóttir
Magnús R. Magnússon Kristjana Kristjánsdóttir
Það var á þessum degi fyrir þrjátíu og
fimm árum sem fyrsta íslenska glasa-
barnið fæddist. Drengurinn sem fædd-
ist vó tólf merkur og var tekinn með
keisaraskurði.
Blaðamenn frá öllum helstu
fjölmiðlum landsins mættu upp á
fæðingardeild til þess að ræða við
foreldrana um þessi merku tímamót.
Móðirin hafði leitað til Bourn Hall
sjúkrahússins á Englandi til að undir-
gangast aðgerðina. Þar var læknirinn
enginn annar en Patrick Steptoe sem
annaðist fyrstu glasafrjóvgun heims
um áratug áður.
Steptoe hóf rannsóknir að baki
glasafrjóvgun seint á sjöunda ára-
tugnum en þurfti hann og teymi hans
að þola mikla gagnrýni og andúð á
störfum sínum. Allt breyttist þegar
fyrsta glasabarn heims leit dagsins
ljós þann 25. júlí 1978, enska stúlku-
barnið Louise Brown. Þótt enn séu ein-
hverjir mótfallnir glasafrjóvgun er það
í dag vinsæl og oft nauðsynleg leið
fyrir fólk til þess að eignast börn. n
Fyrsta íslenska glasabarnið fæðist
Dr. Steptoe, sem annaðist fyrstu glasa-
frjóvgun heims, sá um aðgerðina.
1610 Geirþrúðarbylur geisar. Mikið illviðri stóð í einn dag
og urðu tugir manna úti, aðallega í Borgarfirði og í
Miðfirði.
1757 Undir Eyjafjöllum farast 42 menn af þremur skipum
frá Vestmannaeyjum.
1865 Eldingu lýstur niður í bæinn Auðnir á Vatnsleysu-
strönd og verður þremur mönnum að bana. Margir
brenndust mjög illa.
1917 Blaðið Tíminn hefur göngu sína.
1969 Golda Meir,
frá Wisconsin í
Bandaríkjunum,
verður forsætis-
ráðherra Ísraels.
1974 Sölubanni OPEC-
ríkjanna er aflétt
og olíukreppa
tekur enda.
1987 Alþingi sam-
þykkir ný lög sem
afnema prests-
kosningar að
mestu.
1988 Fyrsta íslenska
glasabarnið fæð-
ist og er það tólf
marka drengur.
1991 77 prósent kjósa
með áframhaldandi sameiningu Sovétríkjanna
í þjóðaratkvæðagreiðslu en sex
sovétlýðveldi hunsa kosning-
una.
2001 Atkvæðagreiðsla um
framtíð Reykjavíkurflug-
vallar er haldin í Reykjavík.
2008 Gengisvísitala
íslensku krónunnar fellur
um 6,97 prósent.
12 TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 17. MARS 2023
FÖSTUDAGUR