Fréttablaðið - 17.03.2023, Blaðsíða 24
Séra Jónína Ólafsdóttir,
sóknarprestur í Hafnar-
fjarðarkirkju, segir fallegan
boðskap Krists vera gott
veganesti út í lífið.
thordisg@frettabladid.is
„Ég var alltaf staðráðin í að fermast.
Það kom aldrei neitt annað til
greina. Ég tók það mjög alvarlega
og fermingarfræðslan vakti áhuga
minn á prestsstarfinu,“ segir séra
Jónína sem fermdist á sjómanna-
daginn árið 1998.
„Við fjölskyldan bjuggum í skóla-
þyrpingunni við Stórutjarnaskóla í
Ljósavatnsskarði þar sem pabbi var
skólastjóri og mamma leikskóla-
kennari. Bekkurinn minn var lítill
og þennan sjómannadag vorum
við tvö sem fermdumst saman í
kirkjunni á Hálsi í Fnjóskadal. Þetta
var mikill hátíðisdagur og auð-
vitað var ég upptekin af veislunni
og pökkunum eins og vera bera á
þessum aldri, en fermingin styrkti
mig enn meira í trúnni. Ég trúði á
Guð og trúi enn á Guð og er mjög
viss í minni trú,“ segir séra Jónína.
Hún á góðar minningar frá
fermingardeginum.
„Ég fékk fermingargjöfina sem
ég óskaði mér, forláta skrifborð
og bókahillu í stíl; húsgögn sem
fylgdu mér langt fram á full-
orðinsár. Ég vildi gera herbergið
mitt flott og fékk pabba til að
mála veggina appelsínugula með
grænum veggfóðursborða upp
við loftið, sem mér fannst æðis-
legt á þeim tíma – eins undarlegt
og það hljómar núna. Ég átti líka í
miklum samningaviðræðum við
mömmu og pabba um áprentuðu
fermingarservíetturnar. Ég var jú
skírð Jónína en hef verið kölluð
Nína frá því ég fæddist og hef alltaf
tengt mig meira við Nínu-nafnið.
Á endanum hafði ég síðasta orðið,
fékk Nínu prentaða á servíett-
urnar og var mjög ánægð að ná
þessu fram,“ segir Nína og brosir að
minningunni.
Hún segist ekki hefði viljað missa
af fermingardeginum sínum.
„Mér fannst góð tilfinning að
fermast og gaman að allir mínir
nánustu kæmu til að gleðjast með
mér. Maður finnur til sín á þessum
degi og ég fann hvað ég átti marga
að sem þótti vænt um mig. Konur
komu austan af landi með ferming-
artertu sem þær bökuðu og gáfu
mér, sem var dásamlegt. Í minn-
ingunni var ég afskaplega ánægð
með daginn og þakklát. Börnum
þykir svo gaman þegar vinir og
ættingjar koma saman og gleðjast.
Það segir okkur að kærleikurinn
og samveran stendur upp úr á
fermingardaginn, og þannig upp-
lifir maður einmitt boðskapinn
sem tengist fermingunni sjálfri. Á
fermingardaginn er verið að fagna
þínu lífi, þú ert miðpunkturinn
og langflestir halda veislu til að
gleðjast saman. Þetta eru hálfgerð
jól, með pökkum, veislumat og
samveru með manns nánustu!“
segir Jónína kát.
Altarisgangan spennandi
Í ár fermast um 80 fermingarbörn í
Hafnarfjarðarkirkju.
„Fermingarfræðslan hefur
gengið vel. Unglingarnir eru lífs-
gleðin uppmáluð og virkir þátttak-
endur. Flest eru mjög fróðleiksfús
og drekka í sig efnið, hafa mikinn
áhuga á sögum Biblíunnar og
Jesú Kristi, hver hann var og hvað
hann gerði. Svo vakna alltaf stórar
spurningar um upprisuna og líf
eftir dauðann. Þá er altarisgangan
spennandi, að drekka (óáfengt) vín
og bragða á þessu skrýtna brauði
sem oblátan er, en saman táknar
það blóð og líkama Krists,“ upp-
lýsir séra Jónína.
Í fermingunni staðfesta ferm-
ingarbörnin skírn sína í Jesú Kristi
og gangast við því að hafa hann að
leiðtoga lífs síns.
„Það er gott að hvíla í því þegar
líður á ævina,“ segir séra Jónína.
„Að vita til þess að við viljum fara
að fordæmi Jesú Krists í kærleika,
lifnaðarháttum og framkomu við
annað fólk. Boðskapur Krists er
fallegur og það er gott að tileinka
sér hann sem veganesti út í lífið.
Við tölum um trúna og Jesú sem
elskar okkur öll eins og við erum,
og að hvert og eitt okkar sé mikil-
vægt. Að við skiptum öll jafnmiklu
máli, eigum öll okkar rétt á tilvist
og tilveru.“
Kirkja full af hamingju og gleði
Séra Jónína er full tilhlökkunar
fyrir fermingartímanum sem senn
fer í hönd.
„Á fermingardögum er mikil
orka í kirkjunni sem jafnan er
troðfull af hamingjusömu fólki.
Mér finnst óskaplega gaman að
ferma krakkana, þetta er svo mikil
hátíð og maður finnur hvað þeim
þykir þetta stórt. Andrúmsloftið er
þrungið eftirvæntingu og ánægju,
og allir svo prúðbúnir. Maður
skynjar líka stolt og smitandi gleði
fjölskyldunnar.“
Veganesti séra Jónínu til
fermingarbarna út í lífið er:
„Að vera við sjálf og óhrædd við
að segja okkar skoðun. Þegar við
erum fjórtán ára er margt í gangi
í heilanum og alls konar áhyggjur
og vangaveltur um hvernig við
lítum út, hvort við séum hipp og
kúl eða hallærisleg. Við eigum að
vera ánægð með okkur eins og við
erum því við erum öll góð einmitt
eins og við erum, og ekki öðruvísi.
Að hvíla örugg í því að við erum öll
jafn mikilvæg og einblína á að vera
örugg í okkur sjálfum alla daga og
út allt lífið.“ n
Maður finnur til
sín á þessum degi
og ég fann hvað ég átti
marga að sem þótti vænt
um mig.
Alba Mist Gunnarsdóttir,
Hagaskóla- og handbolta-
mær í Val, fermist þann
16. apríl í Neskirkju. Alba er
mikill heimsborgari og hefur
flakkað um heiminn með
foreldrum sínum.
sjofn@frettabladid.is
Alba Mist hefur verið í skóla og
leikskóla á tveimur stöðum í
Svíþjóð, Danmörku, Frakklandi
og Þýskalandi. Alba er fjörug og
frábær stelpa sem hefur áhuga á
handbolta, leiklist og að vera með
vinum.
Foreldrar Ölbu eru Elísabet
Gunnarsdóttir áhrifavaldur og
Gunnar Steinn Jónsson. Mist á tvö
yngri systkini, Manuel 7 ára og
Önnu Magdalenu 5 mánaða.
Kjörið að fagna og njóta
Mæðgurnar eru búnar að vera
samstíga í fermingarundirbún-
ingnum og allt er að smella saman.
Fermingardagurinn er táknrænn
fyrir Ölbu og foreldra hennar. „Það
er skemmtileg tilviljun að 16. apríl
hafi verið einn af þeim dögum sem
hægt var að velja en bæði mamma
og pabbi fermdust þennan dag,“
segir Alba.
Hvernig hefur fermingarundir-
búningurinn gengið?
„Undirbúningurinn hefur
gengið vel og er reyndar rétt núna
nýlega að hefjast af einhverri
alvöru. Góð samvinna foreldra
og fermingarbarnsins. Hún veit
hvað hún vill þannig að við höfum
verið að skoða hlutina og lagt svo
hugmyndir undir hana – það hefur
virkað vel,“ segir Elísabet.
„Það sem kannski er mikilvægast
er að ákveða fljótt hvar veislan á
að vera. Ef hún á að vera í sal þá eru
þeir allir mjög fljótt uppbókaðir.
Við vorum ekki að stressa okkur og
á endanum völdum við drauma-
salinn og tökum hann viku eftir
fermingu því hann var upptekinn
á réttum degi. Okkur finnst það í
góðu lagi og Alba var sátt og sæl, þá
kemst hún í veislur hjá vinkonum
líka. Þessi salur var efst á óska-
listanum, Höfuðstöðin. Fallegur
salur og hægt að fá listasýningu
með í pakkanum. Við ætlum líka
að færa fermingarveisluna aðeins
nær nútímanum og minnka form-
legheitin, bara gott og létt partí til
að fagna deginum og safna saman
góðu fólki, fjölskyldu og vinum.“
Mamman vön að skipuleggja
Mömmunni finnst gaman að
skipuleggja viðburði og er með
ágæta reynslu í því. Elísabet er
áhrifa- og athafnakona, markaðs-
kona og alls konar, eins og hún
segir sjálf. „Það er oft erfitt að lýsa
mínu starfi en kannski eitthvað í
þessa áttina: Ég er stofnandi lífs-
stílsvefsins trendnet.is þar sem
ólíkir pennar skrifa undir sama
hatti. Við f luttum heim fyrir rúmu
ári eftir 12 ár á Evrópuflakki vegna
handboltaatvinnu heimilisföður-
ins. Ég var þó alltaf með vinnuna
í hendi mér og gat því unnið fyrir
íslenska markaðinn frá útlöndum,
ásamt því að klára nám í viðskipta-
fræði. Samhliða er ég mikil kaffi-
kona og eigandi Sjöstrand sem við
komum með til landsins og hefur
gengið frábærlega.“
Ertu búin að velja fötin fyrir
fermingardaginn?
„Ég var í myndatöku með
mömmu fyrir Hildi Yeoman þar
sem ég fékk að velja mér kjól fyrir
ferminguna. Hann hangir því
inni í skáp og ég er mjög ánægð
með hann. Mér finnst gaman að
klæðast íslenskri hönnun og svo er
ég spennt fyrir næs strigaskóm við.
Það virðist þó vera erfitt að finna
þá sem mig langar í, Nike Dunks.“
Lifandi og falleg blóm þemað
„Við viljum hafa lifandi, falleg
blóm sem borðskreytingar á móti
fallega salnum sem er með stórum
gluggum og íslenskri náttúru fyrir
utan. Vonandi verður hægt að nota
sólpallinn sem stækkar salinn og
upplifunina. Við munum pottþétt
heimsækja 4Árstíðir en þær sáu
líka um skreytingarnar í ferm-
ingarveislunni hennar mömmu og
í brúðkaupi mömmu og pabba.
Höfuðstöðin er skemmti-
legur salur og þarf ekki mikið
af skreytingum fyrir utan blóm
og veitingar. Mæðgurnar segjast
ekki vera búnar að ákveða hvaða
veitingar verða í veisluna, sú
ákvörðun sé í vinnslu. „Það eru alls
konar pælingar, kemur í ljós.“
Hvað er dreymir þig um í
fermingargjöf?
„Upplifun er efst á listanum
og vonast ég eftir ferðagjöf – ferð
til Grikklands eftir að ég horfði
nýlega á Mamma Mia! Það væri
algjör draumur. Margt annað er
líka á listanum og ég fékk meira að
segja eina gjöf fyrir fram, skíði frá
ömmu og afa sem nýttust mjög vel
í vetrarfríi á Akureyri,“ segir Alba.
Var ekki einu sinni með gloss
Elísabet man vel eftir sinni ferm-
ingu. „Já, ég man vel eftir mínum
degi. Mér finnst mikill munur á
þroskanum þá og nú. Stelpur í dag
byrja til dæmis að farða sig miklu
fyrr en þegar ég var á sama aldri. Ég
var ekki einu sinni með gloss, hvað
þá maskara en í dag fara flestar í
förðun og neglur. Samfélagsmiðlar
og TikTok hafa áhrif. Ég er svolítið
gamaldags og frekar ströng við
mína dömu hvað þetta varðar. Vil
alla vega passa að allt sé náttúru-
legt. Ég er fullviss um að Alba verði
þakklát fyrir þetta síðar meir. Fyrir
utan að það er kannski ekki svo
mikill munur nema núna er komið
að því að ég þarf að plana stuðið,
síðast voru það foreldrar mínir. Ég
vil einnig minnka formlegheitin
og hafa þetta bara létt og skemmti-
legt.“ n
Fermist sama dag og foreldrarnir gerðu forðum
Mæðgurnar Alba Mist og Elísabet ætla að vera klæddar í íslenskri hönnun í
fermingarveislunni og veislan verður haldin í Höfuðstöðinni. MYND/AÐSEND
Við viljum hafa
lifandi, falleg blóm
sem borðskreytingar á
móti fallega salnum sem
er með stórum gluggum
og íslenskri náttúru fyrir
utan.
Elísabet Gunnarsdóttir
Miðpunktur athyglinnar á besta degi lífsins
Vegnanesti
séra Jónínu
Ólafsdóttur til
fermingarbarna
er að hvíla örugg
í sjálfum sér alla
daga og út allt
lífið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
12 kynningarblað 17. mars 2023 FÖSTUDAGURFERMINGAR