Fréttablaðið - 17.03.2023, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 17.03.2023, Blaðsíða 17
Fyrir húð sem vantar bara raka fyrir stóra daginn þá erum við með Restore vörulínuna. Það er sérstök vörulína með mjög mildum en áhrifa­ ríkum sýrum. Húðlækn­ ar mæla sérstaklega með Clari­ fy­línunni. Neostrata býður upp á vörulínur sem henta hverju húðvandamáli fyrir sig, þar á meðal Restore-vörulínuna sem hentar öllum húð- gerðum, einkum viðkvæmri húð, og Clarify-vörulínuna fyrir erfiða húð, svo sem feita og bólusækna húð. „Við bjóðum upp á tvær vöru- línur sem henta fyrir húðumhirðu fermingarbarnsins,“ segir Sigríður Elfa Elídóttir, viðskiptastjóri hjá Icepharma. „Fyrir húð sem vantar bara raka fyrir stóra daginn þá erum við með Restore-vörulínuna. Það er sérstök vörulína með mjög mildum en áhrifaríkum sýrum. Hún verndar rakavarnarlag húðarinnar og er kjörin fyrir allar húðgerðir, einkum viðkvæma og auðertanlega húð.“ Í Restore-línunni má finna PHA Facial Cleanser sem er olíulaus andlitshreinsir sem hreinsar húðina án þess að þurrka hana og gefur henni raka. Eftir hreinsun segir Sigríður Elfa gott að undirbúa húðina vel með PHA Renewal Pads sem eru blautar andlitsskífur sem henta viðkvæmri húð og afhjúpa geislandi og jafna áferð með reglu- legri notkun. „Svo myndi ég vilja mæla með Ultra Moisturizing Face Cream. Það er dagkrem sem hentar vel fyrir unga húð. Það gefur húðinni góðan raka og yfirbragð hennar verður mýkra, frísklegra og jafn- ara,“ segir hún. „Kvöldið fyrir stóra daginn er svo gott að nota rakamaska sem gefur frísklegt yfirbragð en þar kemur Pure Hyaluronic Acid Mask sterkur inn. Það er bréfmaski með hreinni hýalúronsýru, hann kælir húðina og færir henni ákaflega mikinn raka. Hann fyllir húðina og sléttar hana.“ Fyrir erfiða húð Clarify-vörulínan er hugsuð fyrir erfiða húð, einkum feita og bólusækna húð. Sigríður segir að húðlæknar mæli sérstaklega með Clarify-línunni en leggur áherslu á að fólk með sértæk húðvandamál ætti alltaf að hitta húðlækni. „En við getum mælt með Clar- ify-vörulínunni fyrir olíumikla húð. Clarify-línan býður upp á bakteríueyðandi og rakagefandi andlitshreinsi sem heitir Mandelic Clarifying Cleanser. Hann inni- heldur hvorki sápu né ilmefni svo hann ertir ekki og hann er sérstak- lega góður fyrir feita og bólótta húð,“ segir Sigríður Elfa. „Í kjölfarið mælum við með að nota Oily Skin Solution and- litsvatnið sem er hannað til að fjarlægja fitu og olíu af húðinni. Þetta er sérstaklega gott að nota fyrir myndatökuna eða fyrir stóra daginn til að gera húðina aðeins mattari. Við erum líka með Sheer Hydration SPF40 dagkremið sem hentar fullkomlega fyrir feita húð en það er létt og olíulaust. Einnig er það með sólarvörn sem er alltaf gott.“ n Sölustaðir: Flest apótek, H verslun Bíldshöfða og hverslun.is Húðvörur fyrir fermingarbarnið Sigríður Elfa Elídóttir hjá Icepharma mælir með Restore- og Clarify-vörulínunum frá Neostrata fyrir fermingarbarnið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Mandelic Clarifying Cleanser and- litshreinsir er góður fyrir feita og bólótta húð. PHA Facial Cleanser olíulaus andlits- hreinsir. Pure Hyaluronic Acid Mask er bréfmaski með hreinni hýalúronsýru sem gott er að nota kvöldið fyrir stóra daginn. PHA Renewal Pads eru blautar andlitsskífur sem henta við- kvæmri húð. Ultra Moisturizing Face Cream dag- kremið hentar vel fyrir unga húð. Oily Skin Solution and- litsvatnið er hannað til að fjarlægja fitu og olíu af húðinni. Sheer Hydration SPF40 dag- kremið hentar fullkomlega fyrir feita húð kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 17. mars 2023 FERMINGAR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.