Fréttablaðið - 17.03.2023, Qupperneq 17
Fyrir húð sem
vantar bara raka
fyrir stóra daginn þá
erum við með Restore
vörulínuna. Það er
sérstök vörulína með
mjög mildum en áhrifa
ríkum sýrum.
Húðlækn
ar mæla
sérstaklega
með Clari
fylínunni.
Neostrata býður upp á
vörulínur sem henta hverju
húðvandamáli fyrir sig, þar
á meðal Restore-vörulínuna
sem hentar öllum húð-
gerðum, einkum viðkvæmri
húð, og Clarify-vörulínuna
fyrir erfiða húð, svo sem feita
og bólusækna húð.
„Við bjóðum upp á tvær vöru-
línur sem henta fyrir húðumhirðu
fermingarbarnsins,“ segir Sigríður
Elfa Elídóttir, viðskiptastjóri hjá
Icepharma.
„Fyrir húð sem vantar bara raka
fyrir stóra daginn þá erum við með
Restore-vörulínuna. Það er sérstök
vörulína með mjög mildum en
áhrifaríkum sýrum. Hún verndar
rakavarnarlag húðarinnar og er
kjörin fyrir allar húðgerðir, einkum
viðkvæma og auðertanlega húð.“
Í Restore-línunni má finna PHA
Facial Cleanser sem er olíulaus
andlitshreinsir sem hreinsar
húðina án þess að þurrka hana og
gefur henni raka. Eftir hreinsun
segir Sigríður Elfa gott að undirbúa
húðina vel með PHA Renewal Pads
sem eru blautar andlitsskífur sem
henta viðkvæmri húð og afhjúpa
geislandi og jafna áferð með reglu-
legri notkun.
„Svo myndi ég vilja mæla með
Ultra Moisturizing Face Cream.
Það er dagkrem sem hentar vel
fyrir unga húð. Það gefur húðinni
góðan raka og yfirbragð hennar
verður mýkra, frísklegra og jafn-
ara,“ segir hún.
„Kvöldið fyrir stóra daginn er svo
gott að nota rakamaska sem gefur
frísklegt yfirbragð en þar kemur
Pure Hyaluronic Acid Mask sterkur
inn. Það er bréfmaski með hreinni
hýalúronsýru, hann kælir húðina
og færir henni ákaflega mikinn
raka. Hann fyllir húðina og sléttar
hana.“
Fyrir erfiða húð
Clarify-vörulínan er hugsuð
fyrir erfiða húð, einkum feita og
bólusækna húð. Sigríður segir að
húðlæknar mæli sérstaklega með
Clarify-línunni en leggur áherslu á
að fólk með sértæk húðvandamál
ætti alltaf að hitta húðlækni.
„En við getum mælt með Clar-
ify-vörulínunni fyrir olíumikla
húð. Clarify-línan býður upp á
bakteríueyðandi og rakagefandi
andlitshreinsi sem heitir Mandelic
Clarifying Cleanser. Hann inni-
heldur hvorki sápu né ilmefni svo
hann ertir ekki og hann er sérstak-
lega góður fyrir feita og bólótta
húð,“ segir Sigríður Elfa.
„Í kjölfarið mælum við með
að nota Oily Skin Solution and-
litsvatnið sem er hannað til að
fjarlægja fitu og olíu af húðinni.
Þetta er sérstaklega gott að nota
fyrir myndatökuna eða fyrir stóra
daginn til að gera húðina aðeins
mattari. Við erum líka með Sheer
Hydration SPF40 dagkremið sem
hentar fullkomlega fyrir feita húð
en það er létt og olíulaust. Einnig
er það með sólarvörn sem er alltaf
gott.“ n
Sölustaðir: Flest apótek, H verslun
Bíldshöfða og hverslun.is
Húðvörur fyrir
fermingarbarnið
Sigríður Elfa Elídóttir hjá Icepharma mælir með Restore- og Clarify-vörulínunum frá Neostrata fyrir fermingarbarnið.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Mandelic Clarifying Cleanser and-
litshreinsir er góður fyrir feita og
bólótta húð.
PHA Facial Cleanser olíulaus andlits-
hreinsir.
Pure Hyaluronic Acid Mask er bréfmaski með hreinni hýalúronsýru sem gott
er að nota kvöldið fyrir stóra daginn.
PHA Renewal
Pads eru blautar
andlitsskífur
sem henta við-
kvæmri húð.
Ultra Moisturizing Face Cream dag-
kremið hentar vel fyrir unga húð.
Oily Skin
Solution and-
litsvatnið er
hannað til að
fjarlægja fitu og
olíu af húðinni.
Sheer Hydration
SPF40 dag-
kremið hentar
fullkomlega
fyrir feita húð
kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 17. mars 2023 FERMINGAR