Fréttablaðið - 17.03.2023, Blaðsíða 48
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN & DREIFING
Torg ehf.
2022 - 2025
N Ó I S Í R Í U S
Kynntu þér
dreifingu
Fréttablaðsins
Skannaðu kóðann í
snjalltækinu þínu
Nánari upplýsingar
www.frettabladid.is/stodsidur/dreifing
BAKÞANKAR |
Jóhönnu Vigdísar
Guðmundsdóttur
Eins og þau vita sem hafa gaman af
því að hlaupa – eða finnst það leið-
inlegt en láta sig samt hafa það – er
hlaupastíll og hlaupatilgangur fólks
misjafn. Í upphafi lét ég mig hafa
það í heilsubótarskyni, og gat varla
hlaupið kílómetra án þess að fara
í andnauð. Eftir því sem ástandið
skánaði fór mér, eðlilega kannski,
að finnast gaman að hlaupa. Eða
minna leiðinlegt. Þar sem ég get
verið kappsöm jókst metnaðurinn
hins vegar úr hófi fram, í takt við
minnkandi andnauð. Sjálfsálitið óx
í réttu hlutfalli. Einu sinni hljóp ég
meira að segja hálfmaraþon, sem
ég þreytist seint á að monta mig af.
Kapphlaupin taka fljótar af.
Í dag erum við hins vegar öll sem
eitt, íslenska þjóðin, í tæknikapp-
hlaupi sem snýst um áframhald-
andi tilvist tungumálsins okkar. Þar
sem við geymum söguna, menn-
inguna og sjálfsmyndina. Undan-
farin ár hefur einstaklega öflugur
hópur sérfræðinga í máltækni og
gervigreind unnið þrekvirki við
varðveislu tungumálsins, vinna
sem aðrar þjóðir hafa klárað á 10 til
20 árum var unnin á fjórum árum
á Íslandi. Enda erum við meistarar
átaksverkefnanna.
Það var líka átaksverkefni að
koma íslenskri máltækni í notkun
í stærsta gervigreindar-mállíkani
heimsins, GPT-4 sem samtals-
greindin ChatGPT byggir á. Nú
er tími maraþonsins hins vegar
runninn upp, við erum búin að
taka magnaðan sprett en þurfum
að tileinka okkur þann aga sem
þarf til að klára langhlaupið. Þannig
munum við ekki aðeins tryggja
framtíð íslenskunnar, heldur jafn-
vel ryðja veginn fyrir önnur tungu-
mál, sem vonandi geta skokkað í
kjölfarið. Leyfum okkur að vera
metnaðarfull. n
Kapphlaup
eða maraþon