Fréttablaðið - 25.03.2023, Page 25
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 25. mars 2023
Lilja Jónasdóttir greindist fyrir tilviljun með aldurstengda augnbotnahrörnun þegar hún var sextug. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Augnlæknar mæla með AstaEye
Saga Natura hefur þróað bætiefnið AstaEye ætlað til að stuðla að góðri augnheilsu. Asta-
Eye er sérstaklega hannað til að koma í veg fyrir hrörnun augnbotna svo og til þess að
verja augun gegn útfjólubláum geislum sólar. 2
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Margar konur þjást mikið á meðan á
blæðingum stendur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
elin@frettabladid.is
Sífellt f leiri sænskar konur vilja
ekki hafa blæðingar, þær biðja um
hormónalykkju og sleppa alveg
blæðingum. Ekki eru allir sáttir
við þessa þróun og segja hana
ónáttúrulega og andfemíníska.
„Einungis verið að þóknast karl-
mönnum.“ Kvensjúkdómalæknir
bendir á að þessar raddir séu
rangar, eftir því sem segir í net-
miðlinum expressen.se.
„Konur hafa val. Mörgum
konum líður mjög illa meðan á
blæðingum stendur. Hormóna-
getnaðarvarnir eru það besta sem
hefur komið fyrir konur síðan við
fengum kosningarétt. Ég er með
hormónalykkju og mun aldrei
óska þess að fá blæðingar aftur,“
segir kvensjúkdómalæknirinn Hel-
ena Graflund Lagercrantz.
Bætt lífsgæði
Helena segir að það sé mörgum
konum til mikilla bóta að losna við
blæðingar. Ekki síst hjá þeim sem
hafa fengið mikla tíðaverki eða
þjást af endómetríósu. „Að hefja
meðferð snemma hjá stúlkum sem
þjást af tíðaverkjum eða miklum
blæðingum getur verið árangurs-
ríkt og getur bætt lífsgæði þeirra
verulega til skemmri og lengri
tíma,“ segir hún.
„Hér áður voru konur oft barns-
hafandi. Þær áttu mörg börn
og fundu ekki svo mikið fyrir
blæðingum. Núna velja konur að
eiga tvö til þrjú börn og finna því
meira fyrir blæðingum en for-
mæður þeirra. n
Fara aldrei á túr