Fréttablaðið - 25.03.2023, Page 40
Milt hitastig gefur
fólki tækifæri til að
njóta tapas-rétta úti
undir berum himni allt
árið um kring. Staður
fyrir sanna matgæðinga.
Murcia-héraðið á Spáni
hefur verið mjög vinsælt hjá
Íslendingum. Ekki bara hjá
þeim sem spila golf heldur
einnig fólki sem hefur keypt
íbúðir á Spáni. Murcia er
ekki langt frá Alicante en
þangað er flogið reglulega
frá Íslandi.
elin@frettabladid.is
Eflaust eru margir á leið til Spánar
um páskana og í sumar. Það eru
fleiri staðir en Tenerife sem áhuga-
vert er að heimsækja. Hvernig væri
að bregða sér til Murcia-héraðsins
á bílaleigubíl og skoða fallegar
minjar? Murcia-hérað er í suð-
austurhluta Spánar og samnefnd
borg er sú sjöunda stærsta á Spáni.
Vetur eru mildir á þessu svæði og
sumrin heit.
Það er skemmtilegt að bregða sér
í menningarlegt frí á þessar slóðir
og heimsækja borgir í héraðinu
eins og Murcia, Cartagena, Lorca
og Caravaca de la Cruz. Allar
þessar borgir uppfylla þarfir þeirra
sem vilja skoða menningarverð-
mæti. Santa María-dómkirkjan
í Murcia er afar glæsileg og hana
prýðir næsthæsti klukkuturn
Spánar, byggður á árunum 1521 til
1791. Turninn er 90 metrar og sam-
einar ýmsar byggingargerðir.
Cartagena er ákaflega falleg
borg. Þar stoppa gjarnan skemmti-
ferðaskip sem sigla um Miðjarðar-
hafið. Rómverska leikhúsið dregur
að sér ferðamenn og hægt er að
fara aftur á bak í tímann þegar
saga þess er rifjuð upp. Það er
sömuleiðis gaman að ganga um
götur og virða fyrir sér fallegar
byggingar.
Lorca er þekkt barokkborg. Þar
er kastalinn Fortaleza del Sol sem
er miðaldasvæði, byggt á milli 9.
og 15. aldar, röð varnarmannvirkja
sem á miðöldum breyttu borginni.
Þarna má sjá samkunduhús
gyðinga sem er einstakt á Spáni og
hefur verið vanhelgað af öðrum
trúarbrögðum.
Caravaca de la Cruz er enn einn
áfangastaðurinn sem nauðsynlegt
er að heimsækja sé fólk á þessum
slóðum. Borgin er í norðvestur-
hluta Murcia-héraðs, fundarstað
kristninnar sem hefur orðið að
áfangastað þúsunda pílagríma
árið um kring. Besta leiðin til að
komast til Caravaca er að fylgja
Camino de Levante, leið sem hægt
er að leggja af stað á frá Orihuela
og sameinar menningu og náttúru
í hverjum hluta.
Matur og menning
Ferðamálaráð Spánar bendir á að
í Murcia-héraði sé ríkur menning-
ararfur Spánar og bláa hafið gerir
staðinn að frábærum áfangastað
fyrir frí og til að gleyma stressinu.
Mikil matarmenning er ríkjandi í
héraðinu sem státar sig af yfir eitt
þúsund bragðtegundum. Milt hita-
stig gefur fólki tækifæri til að njóta
tapas-rétta úti undir berum himni
allt árið um kring. Staður fyrir
sanna matgæðinga. Frægir réttir
eins og „marinera“, „zarangollo“,
„arroz caldero“, „paparajote“ og
síðan asískt kaffi til að klára dýr-
indis máltíð. Oft eru máltíðirnar
paraðar með víni úr héraði.
Heimsókn í víngarða
Bullas, Jumilla og Yecla eru vín-
garðar í Murcia sem eru vottaðir af
spænsku víngerðarsamtökunum
ACEVIN. Hægt er að fara í vín-
smakk á þessa staði og fá göngu-
ferð um vínakrana. Þeir sem fara í
golfferðir til La Manga fá oft miða
í heimsókn á einhverja þessara
staða.
Jumilla er þekktast fyrir crianza
rauðvínin en sætu vínin, lífrænu
vínin og líkjörar skera sig líka úr.
Bullas hefur verið vottað síðan
1994. Eins og í Jumilla, er Mona-
strell-þrúguafbrigðið ríkjandi
í Bullas líka. Svæðið á sér langa
sögu í víngerð. Í vínsmökkun í
Bullas getur fólk gengið í gegnum
vínrækarsvæðið eða heimsótt eitt
af meira en 200 hefðbundnum
víngerðum og jafnvel komið við
á Vínsafninu. Yecla framleiðir
fjölbreytt úrval af vínum. Enn og
aftur er aðalgrunnur þess, eins og
bæði Jumilla og Bullas, Monastrell-
afbrigðið, notað í rósavín, rauðvín
og líkjöra. Í hvítvínunum hjá Yecla
eru helstu þrúgur Macabeo, Char-
donnay, Sauvignon Blanc og Ver-
dejo, ásamt hefðbundnum Airen.
Vaxandi ferðamannastaður
La Manga sem margir Íslendingar
þekkja vel getur státað af því að
þar er hægt að sjá sólarupprás
yfir eitt haf, Menor, og sólsetur í
öðru, Miðjarðarhafinu. Á þessu
svæði eru fallegar strendur þar sem
boðið er upp á bátsferðir, vatna-
íþróttir, heillandi kvöldverði og
dans fram eftir nóttu. Skylduferð
er til nærliggjandi sjávarþorps,
Cabo de Palos, en vitinn þar hefur
stórkostlegt útsýni yfir Miðjarðar-
hafið þar sem hægt er að taka full-
komnar póstkortamyndir. Þarna
er líka boðið upp á óviðjafnanlega
sjávarrétti, sérstaklega „arroz
caldero“. Þetta er hrísgrjónaréttur
með mismunandi fiski. Rétturinn
er dæmigerður fyrir þennan hluta
Spánar og dregur nafn sitt af
ílátinu sem hann er eldaður í.
Ekki langt í burtu er bærinn San
Pedro del Pinatar sem er staðsettur
við norðurenda Costa Cálida. Þar
er garður sem nefnist Salinas y
Arenales de San Pedro del Pinatar
og er friðland vatna- og farfugla.
Þar eru flamingóar á vappi og aðrir
spennandi fuglar.
La Manga var uppgötvaður sem
ferðamannastaður á sjöunda ára-
tugnum og hefur tekið nokkrum
breytingum sem fólu í sér þétt-
býlismyndun svæðisins og upp-
byggingu hótela og íbúða fyrir
ferðamenn.
Það er auðvelt að aftengjast í
heilsulindum og meðferðarmið-
stöðum Murcia-héraðs. Þrjár
þekktar heilsulindir eru staðsettar
í héraðinu en þar er vel hægt að
missa tímaskynið. Þetta eru Arch-
ena Spa, Leana og Bahía de los
Delfines.
Murcia-héraðið er tilvalinn
staður til að gleyma ys og þys og
finna ró og frið. Fullt af heillandi
þorpum og einstök matar gerðar-
list sem bíður ferðamanna. Staður-
inn er magnaður fyrir golfara þar
sem 22 golfvellir eru á svæðinu
svo margt er um að velja. Murcia
er sömuleiðis áhugaverður staður
fyrir þá sem vilja kafa eða snorkla.
Litríkur neðansjávargróður og
dýralíf sem býður upp á ógleyman-
lega sjávarupplifun. n
Á vit menningar og matarupplifunar
Heimsókn á vínbúgarð er skemmtileg upplifun á ferðalaginu. MYNDIR/SPÆNSKA FERÐAMÁLARÁÐIÐ
Að koma í lítil þorp á Spáni er ótrú-
lega skemmtileg upplifun.
Menningarverðmæti í Caravaca de la Cruz.
Þeir sem hafa áhuga á köfun leggja gjarnan leið sína til Murcia þar sem er
fjölbreytt sjávarlíf.
Í Murcia eru nokkrar heilsulindir þar sem boðið er upp á spa-meðferðir.
Fjölbreyttar gönguleiðir eru í Murcia-héraðinu.
8 kynningarblað A L LT 25. mars 2023 LAUGARDAGUR