Fréttablaðið - 25.03.2023, Side 42

Fréttablaðið - 25.03.2023, Side 42
Ég var svo stressaður fyrsta daginn að ég man varla eftir honum en ég kunni alla vega línurnar mínar og þetta gekk vel. Ég var ungur leikari sem tjáði sig frjálslega og var opinn með tilfinningar mínar og var ekki að fela neitt, það hent- aði bresku pressunni vel. Stóra tækifæri Jack McEveoy kom þegar hann fékk hlutverk í sjónvarpsþáttunum Vikings. fréttablaðið/ernir Írski leikarinn Jack McEvoy varð þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Vikings. Hann hefur verið á Íslandi undan- farnar vikur við tökur á bíómynd. Jack elskar land og þjóð en þolir ekki kuldann. Það er svo skrítið hvernig vinnan tengir mig alltaf aftur og aftur við Ísland,“ segir írski leikarinn Jack McEvoy. Hann hefur verið á Íslandi undanfarnar vikur við tökur á kvikmyndinni It All Comes with the Cold Water. „Myndin fjallar um írskan ljós- myndara sem kemur til Íslands og verður ástfanginn af bæði landinu og íslenskri konu,“ segir Jack. „Þessi mynd er tekin upp hér og gerist hér. Svo þegar ég var í Vikings þá var auðvitað mikil tenging við Ísland, þættirnir gerðust hér en voru teknir upp á Írlandi. Svo er ég að koma hingað aftur seinna á þessu ári í annað verkefni sem ég má reyndar ekki segja mikið frá.“ Líkt og hann segir fór Jack með hlutverk í þáttunum Vikings, þar lék hann Helga magra. Vikings hafa notið mikilla vinsælda um allan heim og hafði hlutverkið mikil áhrif á líf og störf Jack. „Ég lærði ótrúlega mikið á þessu hlutverki. Ég var þarna kominn á risastórt sett með stórleikurum með mikla reynslu, það var bara eins og að f letta upp í alfræðiorðabók að tala við þau,“ segir hann. „Ég var svo stressaður fyrsta dag- inn að ég man varla eftir honum en ég kunni alla vega línurnar mínar og þetta gekk vel. Ég varð svo spenntur þegar ég fékk hlutverkið að ég lærði allar línurnar strax, en svo vandist þetta f ljótt og ég naut þess að vera þarna,“ segir Jack. „Ég var mjög heppinn með þetta hlutverk, fékk að gera mikið þarna og var með geggjaðar senur áður en minn karakter dó. En í því atriði minnti leikstjóri þáttarins, Helen Shaver, mig á það að eigna mér augnablikin. Ekki láta þau bara líða hjá heldur að algjörlega eigna mér þau og ég hef reynt að gera það síðan, bæði í lífi mínu og í vinnunni.“ Breska pressan Eftir Vikings bjó Jack í London, hann var orðinn þekktur fyrir hlutverk sitt í þáttunum og segist hafa þurft að leggja sig fram við að halda fótunum á jörðinni og láta ekki frægðina stíga sér til höfuðs. „Ég hef verið heiðarlegur með það að ég fór aðeins út af sporinu, ekki alvarlega en ég var með mjög stórt egó. Ég var að fá mikla athygli sem mér fannst geggjað en breska press- an gerir engum gott. Mér fannst ég vera rísandi stjarna af því að ég fékk athygli pressunnar en ég var bara auðvelt skotmark,“ segir Jack. „Ég var ungur leikari sem tjáði sig frjálslega og var opinn með tilfinn- ingar mínar og var ekki að fela neitt, það hentaði bresku pressunni vel. Hún svífst einskis og hefur eyðilagt mikið fyrir fullt af fólki. Einu sinni kom til dæmis frétt um það að ég hefði kysst einhverja raunveruleika- stjörnu, en ég kyssti hana aldrei, ég fylgdi henni bara í leigubíl. Svona er allt ýkt,“ útskýrir hann. „Mér fannst þetta mjög pirrandi en þetta hafði í rauninni ekki mikil áhrif á mig. Eftir á að hyggja er ég bara feginn að þessi kafli sé búinn.“ Covid setti strik í reikninginn Á þessum tíma stefndi Jack að því að fara til Bandaríkjanna og verða enn stærri stjarna. Þá skall heims- faraldurinn á og breytti plönum hans. „Þetta var ekki heppileg tímasetning fyrir mig,“ segir hann og hlær. „Auðvitað var hún það ekki Ég elska allt hérna nema þennan kulda fyrir neinn en ég var komin með öll leyfi og allt sem ég þurfti til að fara til Bandaríkjanna. Svo hringdi þáverandi umboðsmaðurinn minn í mig og sagði að það væri kannski ekki sniðugt að fara núna, hvað ef öllu yrði skellt í lás? Ég hló bara að þessu þá, svo hringdi vinkona mín sem býr í Bandaríkjunum í mig og var að lýsa fyrir mér að það væru hermenn á öllum flugvöllum og úti um allt, þá fattaði maður að það var eitthvað alvarlegt í gangi,“ segir Jack. „Ég ætlaði bara að vera í London en er mjög feginn því núna að mamma hringdi í mig og bað mig að koma heim til Írlands. Ástandið í London var hræðilegt í faraldr- inum, bara eins og í bíómynd, en ég var í írsku sveitinni með fjöl- skyldunni minni og er mjög þakk- látur fyrir það.“ 5 Dollar Shakes Jack ólst upp í litlum bæ á Írlandi, hann spilaði fótbolta og hafði einn- ig mikinn áhuga á leiklist. „Ég var mjög góður í fótbolta þótt ég segi sjálfur frá og stefndi langt þar. En ég elskaði líka leiklist. Svo kom að því að ég þurfti að velja á milli. Ég átti að keppa á sama tíma og söngleikurinn í skólanum var frumsýndur. Ég fór á frumsýninguna af því að ég hafði æft svo mikið og lengi. Það þótti fótbolta strákunum ekki mjög kúl,“ segir hann. „Mér fannst alltaf ótrúlega gaman að leika og ég var bara þriggja eða fjögurra ára þegar ég lék þreytta dverginn í Mjallhvíti og dvergunum sjö. Þegar ég varð eldri fór ég svo meira að hugsa um hvað öðrum finnst og þá hætti ég í leikfélaginu í nokkur ár. Byrjaði svo aftur þegar ég var 15–16 ára og hef verið að leika síðan.“ Jack hafði ekki mikinn áhuga á hefðbundnu námi þegar hann var yngri og lagði ekki mikla áherslu á skólann. Það breyttist þegar hann hóf nám í leiklist í Gaiety-leiklistar- skólanum í Dublin. „Fyrsta árið var mjög rútínerað og mér fannst það ekkert svo skemmtilegt. Maður er brotinn alveg niður og svo byggður aftur upp. Seinna árið var svo ótrú- lega skemmtilegt en á sama tíma mjög erfitt.“ Það leið ekki langur tími frá því að Jack útskrifaðist þangað til hann fékk hin ýmsu hlutverk, hann er þó ekki aðeins leikari. Hann er einnig söngvari hljómsveitarinnar 5 Dollar Shakes. „Ég elska hljómsveitina og að spila tónlist. Á tímabili var hún í algjörum forgangi hjá mér en svo hefur það dvínað. Við erum allir að gera eitthvað annað en ég hef átt mjög erfitt með þetta, líður smá eins og ég sé að ganga í gegnum sam- bandsslit,“ segir Jack. „Strákarnir í hljómsveitinni eru allir vinir mínir síðan ég var lítill og ég sakna þess að gera tónlist með þeim. Það voru ótrúlega góðir tímar þegar lífið snerist um tónlist. Við komum reyndar allir saman um jólin og héldum tónleika þannig að bandið lifir enn, það var ótrúlega gaman.“ Elskar Ísland Jack hefur unað sér vel á Íslandi og ber landi og þjóð vel söguna, hið eina sem ekki hefur slegið í gegn hjá honum er kuldinn. „Ég held að ég hafi ekki borið nægilega virðingu fyrir loftslaginu hérna áður en ég kom. Ég hafði verið mikið á ferða- lögum áður en ég kom hingað, svo ég pakkaði bara upp úr einni tösku í aðra og tók ekki einu sinni með mér úlpu. Ég er bara búinn að vera að vinna með það að klæða mig í öll fötin sem ég er með svo ég drepist ekki úr kulda,“ segir hann og hlær. „Í Vikings kól Helga magra á fingrum og í kjölfarið missti hann fingurna. Mér líður eins og ég skilji hann betur núna eftir að hafa upp- lifað þennan kulda, það er ákveðin kaldhæðni í því,“ segir Jack. „Ég elska allt hérna nema þennan kulda. Fólkið er frábært og landið er stórfenglegt en ég hlakka til að losna við kuldann. Hann hefur reyndar hjálpað mér með hlutverkið í mynd- inni, ég verð svo pirraður þegar mér er svona kalt og í þessu hlutverki get ég notað pirringinn. Ég er mjög spenntur að koma hingað aftur í lok árs en svo hafa margir bent mér á að ég verði að koma að sumri til. Mig langar að gera það, sjá birtuna allan sólarhringinn og prufa náttúrulaug- arnar,“ segir Jack að lokum. n Birna Dröfn Jónasdóttir birnadrofn @frettabladid.is 26 helgin FRÉTTABLAÐIÐ 25. mARs 2023 lAUgARDAgUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.