Fréttablaðið - 25.03.2023, Qupperneq 54
Margmiðlunarskjárinn notar SYNC-
Move-hugbúnað Ford frekar en
hugbúnað Volkswagen.
Ford Explorer er með mun ákveðnari framenda en systurbíllinn VW ID.4. MYNDIR/FORD
Ford-bílaframleiðandinn
hefur kynnt til sögunnar
næsta rafbíl sinn sem fær að
endurvinna Explorer-nafnið.
Bíllinn er byggður á MEB-
undirvagni Volkswagen en
fyrirtækin gerðu með sér sam-
starfssamning um framleiðslu
rafbíla með MEB-undirvagn-
inum.
njall@frettabladid.is
Bíllinn er þó langt frá því að vera
sami bíllinn og ID.4 sem hann kepp-
ir beint við. Ford Explorer-rafbíllinn
verður boðinn með tveimur gerðum
rafhlaðna og er sú minni 55 kWst en
stærri rafhlaðan 82 kWst. Grunnút-
færslan verður 168 hestöfl með aftur-
drifi eingöngu og kemst þá 350 km
á hleðslunni. Einnig er afturhjóla-
drifsútgáfan fáanleg með öflugri
282 hestafla mótor og þá með stærri
rafhlöðunni. Sú útgáfa mun hafa
mesta drægið en það getur verið allt
að 540 km í þeirri útgáfu. Með stærri
rafhlöðunni er hleðsluhraðinn allt
að 170 kW. Öflugasta útgáfa bílsins
kemur með tveimur rafmótorum
sem skila samtals 335 hestöflum
sem er 40 hestöflum meira en í GTX-
útgáfu Volkswagen ID.4. Sá bíll mun
komast 490 km á hleðslunni og geta
dregið allt að 1.400 kg eftirvagn.
Innandyra verður bíllinn tals-
vert frábrugðinn ID.4 en fyrir miðju
verður 15 tommu margmiðlunar-
skjár sem er stillanlegur á marga
kanta. Explorer mun koma í tveimur
útfærslum, Explorer og Explorer
Premium. Ekki hefur verið gefið
upp hver búnaðarpakkinn er á milli
bílanna en Ford hefur sagt að allir
bílarnir muni koma með nuddi í
sætum, tvöfaldri miðstöð, lyklalausu
aðgengi og hita í stýri.
Verð bílsins verður kynnt nær
þeim tíma sem hann fer á markað
en fyrstu bílarnir verða afhentir í
lok ársins. Fyrstu bílarnir sem koma
hingað til lands koma snemma á
næsta ári samkvæmt heimasíðu
Brimborgar. n
Rafvæddur Ford Explorer
kynntur til sögunnar
Öflugasta útgáfa bílsins
kemur með tveimur
rafmótorum sem skila
samtals 335 hestöflum.
Verkleg útgáfa 4Runner í tvinnútfærslu og með nýjum drifbúnaði gæti veitt
Ford Bronco-jeppanum samkeppni. MYND/MOTORTREND
njall@frettabladid.is
Það lítur út fyrir að sjötta kynslóð
Toyota 4Runner fái umtalsverða
uppfærslu þegar hún kemur á mark-
að árið 2025, samkvæmt bandaríska
tímaritinu Motortrend. Núverandi
kynslóð þykir hafa dregist aftur
úr í samkeppni við bíla eins og
nýja Ford Bronco og kominn tími
á breytingar. Búast má við nýjum
undirvagni, vélum og hönnun en
stærsta fréttin er að nýr 4Runner
muni koma með tvinnbúnaði.
Talið er að næsta kynslóð 4Run-
ner fái í grunninn 4 strokka vélar
með forþjöppu, en einnig verði
öflug V6-útgáfa með tvinnbúnaði.
Lexus NX 350 er með 2,4 lítra vél
með forþjöppu sem skilar þar 275
hestöflum. Í Toyota Tundra er öflug
V6-vél með tvinnbúnaði og sú vél
gæti einmitt komið í 4Runner.
Toyota mun vera að þróa rafútgáfu
af Tacoma svo það er ekki loku fyrir
það skotið að rafdrifin útgáfa 4Run-
ner muni líta dagsins ljós þegar
fram líða stundir. n
Næsti Toyota 4Runner
verður í tvinnútfærslu
Ford Capri gæti snúið aftur á næsta
ári með MEB-undirvagni.
njall@frettabladid.is
Samkvæmt frétt í blaðinu Sun ætlar
Ford að endurvekja Capri-nafnið í
nýjum raf bíl. Mun bíllinn verða
annar bíll Ford sem kemur á MEB-
undirvagni Volkswagen samkvæmt
blaðinu. Búast má við að Ford frum-
sýni Capri snemma á næsta ári.
Ford Capri var mjög vinsæll
tveggja dyra sportbíll og var í fram-
leiðslu frá 1968 til 1986. Að sögn
yfirhönnuðar hönnunardeildar
Ford í Evrópu, Amko Leenarts, eru
gömul og fræg nöfn Ford-merkisins
mjög mikilvæg í raf bílavæðingu
Ford. Ford hefur notað nöfn eins
og Mustang og Puma á nýja bíla á
undanförnum árum. Búast má við
að nýr Capri fái aðeins meiri veg-
hæð en áður og fái annað sett af
hurðum fyrir aftursætisfarþegana.
Að öllum líkindum kemur hann á
sama undirvagni og nýr Explorer og
fær því líkast til sama vélbúnað. n
Ford Capri næstur með
MEB-undirvagni
SsangYong eða
ekki, bíllinn
mun alla vega
heita Torres
EVX.
MYND/KG MOBILITY
njall@frettabladid.is
SsangYong-merkið er ekki dautt úr
öllum æðum því í vikunni kynnti
merkið nýjan raf bíl sem kallast
Torres EVX. Bíllinn verður form-
lega frumsýndur á bílasýningunni
í Seúl í næstu viku ásamt nokkrum
tilraunabílum frá merkinu.
Árið 2020 fór SsangYong-merkið
í gjaldþrot þegar eigandi þess,
Mahindra, hætti að dæla í það pen-
ingum. Árið 2022 var það næstum
keypt af Edison Motors en hætt var
við kaupin. Stutt er síðan merkið var
keypt af KG Group og hefur nafninu
verið breytt í KG Mobility. Ef mynd-
irnar af bílnum er skoðaðar vel sést
ekkert SsangYong-merki á bílnum.
Rafdrifinn Torres er mjög ólíkur
Torres með brunahreyfli en er samt
með sama undirvagni. Það er aðal-
lega framendinn sem er frábrugðinn
með þunnum ljósum og grilli, en
einnig er innréttingin allt öðruvísi.
Þar má sjá tvo margmiðlunarskjái
og mun færri takka í mælaborðinu.
Ef bíllinn notar sömu tækni og í
Korando e-Motion er rafmótorinn
frammi í og drifinn áfram af 61,5
kWst rafhlöðu með drægi nálægt
360 kílómetrum. n
SsangYong kynnir nýjan rafbíl og nýtt nafn
Hágæða hreinsiefni
frá Koch-Chemie
Skeljungur.iS | Skútuvogi 1
38 bílar FRÉTTABLAÐIÐ 25. MARS 2023
laUGarDaGUr