Fréttablaðið - 25.03.2023, Page 64

Fréttablaðið - 25.03.2023, Page 64
frettabladid.is 550 5000 RitstjóRn ritstjorn@frettabladid.is AuglýsingAdeild auglysingar@frettabladid.is PRentun & dReifing Torg ehf. 2022 - 2025 bakþankar | Óttars Guðmundssonar Í æsku minni var grímuball Dansskóla Hermanns Ragnars á öskudag víðfræg skemmtun. Börn í furðubúningum þyrptust glöð í bragði í Skátaheimilið við Snorra- braut. Þau vissu ei litlu greyin að þau væru að draga upp rasískar staðalímyndir af öðrum þjóð- félagshópum. Ég var á þessu balli 1958 klæddur sem sjóræningi. Í ljósi breyttra viðhorfa ákvað ég fara á fund í Sjálfshjálparsamtökum um pólitíska rétthugsun. Ég tók til máls og sagðist sjá eftir „menn- ingarnáminu“ á grímuballinu. „Ég var með lepp fyrir auga og alhæfði þannig um útlit sjóræningja. Þetta var niðurlægjandi fyrir þá og aðra sjómenn!“ Næst tók til máls Hallgerður langbrók. Hún sagðist alltaf hafa verið pólitískt rétthugsandi. „Ég átti þrjá eiginmenn sem allir slógu mig utan undir. Ég lét drepa þá!“ Hún uppskar mikil fagnaðarlæti. „Svona á að taka þessa ofbeldis- menn,“ sagði þekkt hlaðvarpskona. Jónas Hallgrímsson skáld stóð upp og lýsti því hvernig honum tókst að eyðileggja Sigurð Breiðfjörð rímnaskáld með vægðarlausri umfjöllun í fjölmiðlum. „Hann var fyllibytta og kvennamaður sem átti ekkert betra skilið!“ Eftir kaffihlé tók fundarstjóri til máls og brýndi fundarfólk til að halda vöku sinni. „Nú eru bara tveir pólitískt rétthugsandi karlmenn í landinu: Bubbi M. og Gísli M. Við skulum hylla þá og gjalda varhug við öðrum.“ Fundurinn klappaði og fór með þessa bæn: „Guð gefi mér æðru- leysi til að stunda pólitíska rétt- hugsun, kjark til að slaufa öllum sem mér er sagt að slaufa og vit til að hlusta ekki á neinar mótbárur.“ Ég dreif mig heim og leið mun betur eftir fundinn. n Rétthugsun Fögnum sem OFTAST! MOPSIG hnífapör 895,-/16 í setti OFTAST hliðardiskar 150,-/stk. REKO glös 395,-/6 í pk. © Inter IKEA System s B.V. 2023 Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is Frábært úrval páska- eggja DREYMIR ÞIG UM CLT HÚS?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.