Skessuhorn - 09.11.2022, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 20228
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar,
sem haldinn var fimmtudaginn
3. nóvember, var lögð fram krafa
frá Fornbílafjelagi Borgarfjarðar
vegna lokunar á húsnæði félagsins
í Brákar ey snemma á síðasta ári. Í
kröfunni má finna útreikning sem
var unninn fyrir og af stjórn Forn-
bílafjelags Borgarfjarðar vegna þess
tjóns sem riftun leigusamnings
Borgarbyggðar við Fornbílafjelagið
hafi og muni valda því. Krafan sem
er samtals upp á næstum 112 millj-
ónir króna inniheldur meðal annars
framkvæmdir á núverandi sýn-
ingarsal, kaffistofu og að utan upp
á rúmar 60 milljónir, framkvæmdir
í fyrrum fjárrétt upp á rúmar 15
milljónir og tekjutap miðað við
núverandi leigusamning sem gildir
til ársins 2035 upp á 30 milljónir.
Auk þess kemur fram í kröfunni
að ekki liggi fyrir hvort félagið Ikan
ehf. muni leggja fram bótakröfur
á hendur Fornbílafjelaginu. „Fari
svo mun slíku verða vísað áfram
til Borgarbyggðar í ljósi riftunar
samningsins við FBF. Með þeirri
gjörð var samningssambandi á
milli Ikan ehf. og FBF slitið. Það er
viðurkennt af hálfu Borgarbyggðar.
Tekið skal fram að okkur hefur ekki
tekist að stöðva leigugreiðslur til
félagsins frá Ikan ehf. eftir lokun
húsnæðisins eða frá því mars á síð-
asta ári. Leigugreiðslurnar hafa
hins vegar verið skuldfærðar í bók-
haldi FBF.“
Í bókun byggðarráðs kemur
fram að ljóst er að ófyrirsjáan-
legur kostnaður fyrir sveitarfélagið
sem yrði í námunda við slíka fjár-
hæð myndi hafa veruleg áhrif á
rekstrarniðurstöðu ársins og svig-
rúm til fjárfestinga í nauðsynlegum
innviðum. Byggðarráð fól sveitar-
stjóra að vinna málið áfram gagn-
vart stjórn Fornbílafjelagsins.
vaks
Eftir hádegi á sunnudaginn var lýst
kjöri í kosningu um formann Sjálf-
stæðisflokksins á landsfundi flokks-
ins sem haldinn var í Laugardals-
höllinni. Var fundurinn sá fjöl-
mennasti sem haldinn hefur verið.
Mikillar eftirvæntingar gætti um
úrslit kosninganna. Alls kusu 1.712
og voru gild atkvæði 1.700. Bjarni
Benediktsson hlaut góða kosningu;
1.010 atkvæði eða 59,4%. Guð-
laugur Þór Þórðarson fékk 687
atkvæði eða 40,4%. Aðrir fengu
þrjú atkvæði.
Bjarni hélt í kjölfarið sigurræðu,
þakkaði gott traust flokksmanna og
endaði ræðu sína á að segja; „hjarta
mitt stækkaði töluvert mikið.“ Í
kjölfarið fylgdi dynjandi lófaklapp.
Guðlaugur Þór Þórðarson óskaði
Bjarna innilega til hamingju með
glæsilegt kjör og hvatti flokksmenn
til dáða.
Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir
fékk góða kosningu í embætti vara-
formanns. Loks bar Vilhjálmur
Árnason alþingismaður sigur úr
býtum í kosningu um ritara, en þrír
voru í kjöri. mm
Kristrún Frostadóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, hlaut á lands-
fundi flokksins nýverið góða kosn-
ingu sem formaður. Fékk hún
94,59% greiddra atkvæða. Kristrún
var reyndar eini frambjóðandinn
sem skilaði inn framboði og tekur
nú við keflinu af Loga Einarssyni
alþingismanni. Varaformaður var
kosinn Guðmundur Árni Stefáns-
son úr Hafnarfirði og ritari er Arna
Lára Jónsdóttir, bæjarstjóri Ísa-
fjarðarbæjar.
mm
Krefjast yfir 100 milljóna í
bætur vegna lokunar í Brákarey
Frá Brákarey. Í forgrunni er Grímshúsið en fjær er fjárréttin og mannvirki sláturhúss. Ljósm. mm.
Ný forysta í Samfylkingunni
Bjarni endurnýjaði umboð sitt til
formennsku í Sjálfstæðisflokknum
Þórdís Kolbrún, Bjarni og Vilhjálmur skipa nú æðstu embættin í flokknum. Ljósm.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Fyrir jólin 2020 kviknaði sú hug-
mynd í Grundarfirði að gera
aðventuglugga í bænum. Þá voru
samkomutakmarkanir vegna Covid
en fólk var hvatt til að fara út og
hreyfa sig. „Við vorum að velta
fyrir okkur hvað við gætum gert til
þess að lífga upp á bæjarlífið og úr
varð þessi hugmynd. Við prófuðum
að tala við grunnskólann og leik-
skólann og buðum fyrirtækjum að
taka þátt í þessu með okkur og allir
voru til í það,“ segir Þuríður Gía
Jóhannesdóttir starfsmaður menn-
ingarnefndar Grundarfjarðarbæjar.
Hugmyndin er sú að þátttakendum
er úthlutaður ákveðinn dagur í des-
ember þar sem þeir eiga að kveikja
á sínum glugga. Þá skreyta þeir
gluggann sinn á þann hátt sem þeir
vilja og þarf skreytingin að standa
fram að þrettándanum. Grundar-
fjarðarbær birtir svo mynd á Face-
book síðu sinni á hverjum degi til
jóla af aðventuglugga þess dags.
Þar gefst fólki tækifæri á að giska á
hvar í bænum glugginn er. Daginn
eftir er svo staðsetning gluggans
birt. „Árið 2020 settum við merk-
ingar inn á götukort um hvar væri
að finna gluggana, til að auðvelda
fólki að ganga á milli og skoða þá,
og við reiknum með að gera það
aftur í ár,“ segir Þuríður.
Í ár eru aðventugluggar settir
upp í þriðja sinn og virðist þetta
vera hefð sem komin er til að vera.
Nú þegar er búið að panta nokkra
glugga og greinilegt er að bæjar-
búar eru spenntir fyrir aðventunni.
Jólalög á aðventunni
Nú er einnig hafin undirbúnings-
vinna við upptökur á jólalögum
í Grundarfirði. Ætlunin er að fá
heimamenn til að syngja jólalög og
verða 4-5 upptökur birtar á Youtu-
be-rás Grundarfjarðarbæjar hvert
sunnudagskvöld á aðventunni. „Við
byrjuðum með þetta árið 2020 eins
og með aðventugluggana því við
vildum finna leið til að gleðja fólkið
hér og halda tónleika. Þá tókum
við upp fullt af lögum og birtum
4-5 upptökur á hverju sunnudags-
kvöldi og líka á Þorláksmessu,“
segir Þuríður og bætir við að ætl-
unin hafi verið að leika sama leik
síðustu jól. „Við vorum með allt til-
búið til þess að byrja að taka upp
en þá skall á enn ein Covid-bylgjan
þannig við þurftum að blása allt
af. En nú keyrum við þetta aftur í
gang,“ segir Þuríður.
Margir Grundfirðingar eru með
flottar raddir, að sögn Þuríðar og
segir hún að árið 2020 hafi margir
komið út úr skelinni með því að
taka þátt í þessu verkefni. Hún von-
ast einnig til að nemendur á öllum
stigum grunnskólans verði með í
ár. „Við erum að reyna í samstarfi
við íþrótta- og æskulýðsnefnd að
fá nemendur til að taka þátt sem
upphitun fyrir Samfés því það eru
margir í eldri hóp skólans sem eru
með flottar raddir en við þurfum
kannski að draga þær fram.“
Á mánudaginn síðasta var farið
að auglýsa eftir þátttakendum og
strax hafa fjórir skráð sig til leiks
en upptökur fara af stað strax eftir
helgi. Það eru menningarnefnd
Grundarfjarðarbæjar og Þorkell
Máni Þorkelsson organisti sem
standa að þessu verkefni.
gbþ /Ljósm. Grundarfjarðarbær
Lífleg aðventa fram
undan í Grundarfirði
Einn aðventuglugganna í Grundarfirði um jólin 2020.
Frá upptökum jólalaga 2020.