Skessuhorn - 09.11.2022, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 202226
Skammhlaup 2022 í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi fór
fram síðasta fimmtudag. Það var nú
haldið í annað sinn á þessu ári en
því hafði áður verið frestað síðustu
tvö ár vegna faraldursins. Skamm-
hlaupið var fyrst haldið árið 1999
og megintilgangurinn alltaf verið
sá að brjóta upp kennsluna í skól-
anum og hafa smá fjör og gaman í
bland við fíflagang. Alls kepptu í ár
sex lið nemenda sem var skipt upp
eftir litum og voru um 50 manns í
hverju liði.
Fjörið hófst rétt fyrir hádegi með
pylsuveislu og síðan var skrúð-
ganga nemenda í lögreglufylgd frá
skólanum niður í íþróttahúsið við
Vestur götu þar sem keppnin hófst.
Þar var keppt í ullarsokkaboð-
hlaupi, þrautabraut, stígvélasparki,
limbó og reiptogi. Að því loknu var
farið aftur upp í skóla þar sem alls
kyns þrautir voru lagðar fyrir liðin
og lauk keppninni á sal þar sem þau
tóku þátt í planki, að verpa eggjum,
„silly walk“ og örleikriti. Sigur-
vegarar dagsins voru bláa liðið og
um kvöldið var svo ball á Gamla
Kaupfélaginu til að ljúka Skamm-
hlaupinu með stæl. Blaðamaður
Skessuhorns fylgdist með deginum
og smellti af nokkrum myndum.
vaks Boðið var upp á pylsu með öllu í mötuneytinu.
Fjör á
Skammhlaupi í FVA
Það var mikið undir í ullarsokkaboðhlaupinu.
Bláa liðið vann ullarsokkaboðhlaupið. Hvítir voru með besta stuðningsliðið.
Þessi tvö úr bláa liðinu unnu stígvélasparkið.
Hvítir gerðu hvað sem þeir gátu í reiptoginu.
Grænir tóku einnig vel á því. Bláir voru bestir í reiptoginu.
Kennarar klæddu sig í búninga í tilefni dagsins.Það var vel tekið á því í plankinu. Þessir þrír entust lengst.
Örleikritin voru á alla vegu. Nemendur skemmtu sér vel. Bláa liðið sigraði í Skammhlaupinu.
Trausti Gylfason kennari var kynnir í
keppninni.