AVS. Arkitektúr verktækni skipulag - 01.06.2003, Síða 59
Oft er ekki önnur lausn í boði en
að staðsetja ruslagáma á bíla-
stæðinu.
_ Ekkert pláss er fyrir gáma og
ekki verður betur séð en að hönn-
uðir hafi „gleyrnt" að gera ráð fyrir
því að úrgangur fylgdi starfsemi í
húsinu.
_ Mörg dæmi eru þar sem blasir
við, að staðurinn þar sem ruslið
er, hafi verið „redding" á síðustu
stundu.
Hvað er til ráða?
Við hjá Gámaþjónustunni reynum
stöðugt að koma til móts við þarf-
ir viðskiptavina okkar. Okkur er
það fullljóst að gámar eru ekkert
sérstakt augnayndi og því eðlilegt
að húsráðendur vilji að sem
minnst beri á þeim. Þess vegna
höfum við málað gáma í þeim lit-
um sem óskað hefur verið eftir.
Gott dæmi um slíkt eru gámarnir
fyrir norðan Nýherjahúsið en þeir
falla vel inn í umhverfið. Fleiri
dæmi eru um að gámar hafi verið
málaðir í sama lit og umhverfið.
Best væri þó að hönnuðir húsa
hefðu samráð við okkur áður en
hús eru byggð. Við búum yfir allri
sérþekkingu á þessu sviði sem
þörf er á. Hægt er að benda á
góðar lausnir eins og þær að gera
ráð fyrir nokkrum tegundum
gáma og tunna í afgirtu gerði, ná-
lægt húsum, sem stóri bílar
kæmust þó að. Þeir þættir sem
hönnuðir húsa og lóða mættu
taka með í reikninginn eru:
_ Útbúa þarf sérstakt svæði utan-
húss, nálægt húsinu en með að-
gengi fyrir stóra bíla.
_ Óþarfi er að reisa byggingar í
kringum tunnur, kör og gáma.
Nægilegt er að reisa létta skjól-
veggi t.d. timburveggi með góð-
um hliðum.
_ Gera þarf ráð fyrir nokkrum
minni gámum fyrir mismunandi
úrgang.
Með samvinnu og góðu sam-
ráði er hægt að finna lausnir á úr-
gangsmálum í atvinnurekstri sem
Til fyrirmyndar. Hér er ílátum komið fyrir utanhúss, auðvelt er fjölga ílátum í samræmi við flokkun,
gott aðgengi er að geymslunni og loftræstingin kemur í veg fyrir lyktarvandamál. Athugið þó að
þetta er íbúðabyggð en ekki atvinnuhúsnæði. / An example of receptacles separated from the
buildíng; a large number are easily coordinated, allowing good access to the well-ventilated
storage area. Note this solution is for a housing complex and not an industríal one.
Hér er enginn gámur sjáanlegur. Þarna leynist samt 16 rúmmetra gámur. /
The 16 cubic-metre disposal unit is hidden from view.
auðvelda störf starfsmanna og
sparar fé með góðu skipulagi. ■
Höfundur er markaðsstjóri Gáma-
þjónustunnar hf.
RENNISLÍTT
• Flotílagnir í nýbyggingar
• Verksmiðju- og lagergólf
• Sérstök bílageymslugólf
• Afrétting gólfa undir gólfefni
• Tilboðsgerð og ráðgjöf
57