Bændablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Menntun er mikilvægur grund
völlur nýliðunar, það hefur sýnt sig
eftir að lífræn braut var sett á legg
á Garðyrkjuskólanum að Reykjum.
Þó vissulega búi bændur hér á landi
yfir þekkingu sem vert er að deila er
ljóst að sækja þarf þekkingu erlendis,
sér í lagi tæknilega þekkingu, og
mannauð í kennslu og rannsóknir.
Það er mjög mikilvægt að árlega
sé þróunarfé veitt inn í greinina,
en það hefur ekki verið gert með
skipulögðum hætti hér á landi,“ segir
Eygló.
„Tillögurnar spanna ágætlega
þá athygli sem þarf að vera á
framleiðsluhliðinni annars vegar, svo
sem endurskoðun stuðningskerfisins,
og markaðshliðinni hins vegar.
Lífrænt Ísland verkefnið yrði fest
í sessi enn frekar og stækkað en
því var komið á legg að erlendri
fyrirmynd sem reynst hefur vel.
Upplýsingagjöf gagnvart neytendum
og öðrum innkaupaaðilum er mjög
mikilvæg enda eru þeirra ákvarðanir
hvað mest ráðandi um framtíðina.
Lögð er áhersla á að eyrnamerkja fé
til vöruþróunar á lífrænni framleiðslu
sem er mjög mikilvægt til að gera
vörur sýnilegri og ákjósanlegri
í augum neytenda. Líkt og nefnt
er í tillögunum eru ýmis tækifæri
ónýtt hér á landi þegar kemur
að því að sækja fram, en vottuð
lífræn framleiðsla hefur tækifæri
hvort sem er hér á heimamarkaði
eða til útflutnings,“ segir Eygló
enn fremur um tillögurnar.Hún
telur að það séu traustar forsendur
fyrir aðgerðaráætlun um eflingu
lífrænnar framleiðslu hér á landi
og ávinningur í því bæði fyrir
umhverfið og almannaheill í
framtíðinni að taka ákveðin skref
til framtíðar.
Um 81 prósent svarenda mjög
eða frekar jákvæðir
Í mars 2020 lét VOR vinna fyrir
sig netkönnun um viðhorf fólks
til lífrænnar framleiðslu. Zenter
rannsóknir stóðu að könnuninni. Um
2.600 manna úrtak var að ræða og
svöruðu 1.353, fjórum spurningum.
Fyrst var spurt; hversu jákvæður
eða neikvæður ert þú gagnvart
lífrænni framleiðslu á Íslandi.
Um 50 prósent svarenda voru
mjög jákvæðir gagnvart lífrænni
framleiðslu á Íslandi, um 31 prósent
frekar jákvæðir, tæp 17 prósent
hvorki jákvæðir né neikvæðir, 1,6
prósent frekar neikvæðir og tæpt eitt
prósent svarenda mjög neikvæðir.
Næst var spurt um, hver væri helsta
ástæðan fyrir afstöðunni gagnvart
lífrænni framleiðslu á Íslandi. Um
24,6 prósent töldu lífræna framleiðslu
vera góða fyrir umhverfið, rúm 20
prósent sögðu framleiðsluna holla,
14 prósent góðan valkost, tæp 14
prósent að í framleiðslunni væri
minna af eiturefnum og aukaefnum,
12,7 prósent að íslensk framleiðsla
væri jákvæð og rúm sjö prósent að
um hreina framleiðslu væri að ræða.
Þegar spurt var um hvort fólk
veldi lífrænar íslenskar matvörur
umfram hefðbundnar íslenskar
matvörur, þegar þær stæðu til boða,
sögðust 5,6 prósent gera það alltaf,
tæp 24 prósent oft, 47,7 prósent
stundum og 22,8 prósent sögðust
aldrei gera það.
Varðandi það sem skiptir mestu
máli við val á lífrænum íslenskum
vörum (kjöti, mjólkurvörum,
grænmeti, kornvörum og annarri
matvöru) sögðu flestir ástæðuna
vera að ekkert skordýraeitur væri
í þessum vörum, eða 49,6 prósent,
48,3 prósent nefndu gæði, 38,1
prósent nefndu dýravelferð og
25,4 prósent að í þeim væru engar
erfðabreyttar lífverur.
Lífrænt Ísland
Eygló segir að þessi könnun hafi
sýnt ótvíræða jákvæðni neytenda
gagnvart lífrænni framleiðslu og
gefi góða innsýn í viðhorf þeirra.
Verkefnið Lífrænt Ísland var stofnað í
kjölfarið, en það er samstarfsverkefni
VOR, Bændasamtaka Íslands og
matvælaráðuneytisins. Markmið
þess er að auka lífræna framleiðslu
á Íslandi.
„Maður hlýtur að ætla að framtíð
lífrænnar ræktunar sé bara björt.
Þau fyrirtæki sem hafa rutt brautina
frá byrjun eða svo gott sem, eins
og Biobú, Móðir Jörð, Villimey,
Brauðhúsið og fleiri, eru komin til
að vera og taka pláss á markaði. Það
verður ekki annað séð en að þau lönd
sem settu sér stefnu og markmið hafi
gert rétt og séu að njóta ávaxtanna
af því. Ekki síst umhverfislega og
bætt sinn jarðveg á allan hátt. Það
er því eðlilegt að ætla kerfinu að
þjónusta þessa grein og á það leggjum
við áherslu, annað væri órökrétt,“
segir Eygló.
Áburðarmálin ein helsta
áskorunin
Fagráð í lífrænum landbúnaði hélt
málþing 2. mars þar sem tekist var
á við framtíðar áburðarframleiðslu
fyrir lífræna matvælaframleiðslu,
sem er ein helsta áskorunin
fyrir framþróun í þessum geira
landbúnaðarins. Eygló segir að
bændur séu að framleiða eins
mikinn áburð heima á bæjum og
þeir geta gert.
„Þá reynir á að býlin séu vel
tækjum búin til að geta komið
lífrænu efni með sem bestum hætti í
áburðarhæft form, eins og til dæmis
með vandaðri safnhaugagerð, sem
verður alltaf hjartað í lífrænum
búskap að ég tel. En margir munu
þurfa að sækja efni utan frá og
einstök býli geta tekið að sér það
hlutverk að vinna hráefni frá öðrum,
svo sem sveitarfélögum, og það eru
nú þegar dæmi um slíkt hér á landi.
Við í VOR veltum þó einnig fyrir
okkur að væntanlegar lífgaskerfi
sem eru á teikniborðinu til dæmis
í kringum landeldið gætu orðið
kröftugt innlegg inn í þróun lífræns
landbúnaðar hér á landi og göngum
reyndar út frá því enda eru þessi
kerfi að þjóna lífrænum bændum
til dæmis í Danmörku. Það þarf
væntanlega að gera ráð fyrir
fjölbreyttum lausnum enda eru
skilyrði þvert yfir landið mjög ólík
og mikilvægt að skoða það kerfi sem
á að þjóna lífrænni framleiðslu því
áburður er grunnhráefnið,“ útskýrir
Eygló.
20% afsláttur af öllum
innréttingum til páska.
Við aðstoðum þig við hönnun á þinni
drauma innréttingu.
Sauðfjárbændurnir Eydís Magnúsdóttir og Rúnar Máni Gunnarsson í Sölvanesi í Skagafirði tóku við vottunarskírteinum
sínum á sýningunni Íslenskur landbúnaður sem haldin var í Laugardalshöll í október á síðasta ári. Formaður Félags
framleiðenda í lífrænt vottaðri matvælaframleiðslu telur að hægt væri að auka hlutfall vottaðs landbúnaðarlands
hratt ef sauðfjárræktin myndi taka við sér. Mynd / Lífrænt Ísland
Helgi Rafn Gunnarsson, framkvæmdastjóri mjólkurvinnslunnar Biobús. Þar
er stefnt að mikill framleiðsluaukningu á þessu ári. Mynd / smh
Eygló Björk Ólafsdóttir, formaður
VOR og bóndi í Vallanesi. Mynd / Aðsend