Bændablaðið - 23.03.2023, Síða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
FJÓSA-
INNRÉTTINGAR
DSD fjósainnréttingar sem framleiddar eru í Hollandi eru sérsmíðaðar fyrir íslenskar
kýr og hafa þegar sannað gildi sitt í íslenskum fjósum.
Innréttingarnar eru hannaðar og prófaðar eftir ströngustu gæðakröfum og miða að velferð
bæði dýra og manna. Áralöng reynsla hefur leitt af sér innréttingakerfi sem auðvelt er að
aðlaga nánast öllum þörfum nútímafjósa.
Hafðu samband: bondi@byko.is
TIL Á LAGER
UTAN ÚR HEIMI
Norðmenn borða kjöt
Reykt kjöt frá Noregi eða spekemat. Hlutfall Norðmanna sem ekki borða kjöt
helst stöðugt. Mynd / Øyvind Holmstad – Wikimedia Commons
Ný könnun sýnir að 96 prósent
Norðmanna borða kjöt, sem er
svipað hlutfall og hefur verið
undanfarin tíu til fimmtán ár.
Í könnuninni kemur fram að
sjö prósent norsku þjóðarinnar
skilgreinir sig sem sveigjanlegar
grænmetisætur (n. fleksitarian)
sem leyfa sér að borða kjötmeti
við ákveðnar aðstæður.
Einungis fjögur prósent lætur
kjötbita aldrei inn fyrir sínar varir.
Ungt fólk sýnir grænmetisfæði
meiri áhuga en þeir sem yngri eru.
Þrátt fyrir þetta borða hinar yngri
kynslóðir meira kjöt en þær eldri.
Frá þessu greinir Landbruk 24.
Í sömu könnun var fólk innt eftir
hvaða nýju fæðutegundir það vildi
prufa. 46 prósent segjast vilja prufa
þörunga, 29 prósent myndu borða
skordýr, 24 prósent vilja borða kjöt
framleitt á rannsóknarstofu og 22
prósent segjast sátt við að borða
erfðabreytta fæðu.
/ÁL
Minnka skaða rops
Finnska mjólkursamlagið Valio og
rannsóknamiðstöð Finnlands,
VTT, hafa farið af stað í tilrauna-
verkefni styrkt af ESB með það
markmið að umbreyta metani við
fjós í koltvísýring.
Helming sótspors mjólkur-
framleiðslu má rekja til metanríks
rops nautgripa eða metans frá
haughúsum.
Báðar þessar lofttegundir teljast
til gróðurhúsalofttegunda, en metan
hefur til skamms tíma 28 sinnum
meiri áhrif til hlýnunar jarðar en
koltvísýringurinn. Í andrúmsloftinu
brotnar metan niður á tíu til tólf árum,
en tæknin sem er til skoðunar flýtir
því ferli. Innan Evrópusambandsins
ber landbúnaður ábyrgð á tíu prósent
losunar. Af sótspori landbúnaðarins
í heild má rekja 43 prósent til
ropans sem myndast við meltingu
jórturdýra. Frá þessu er greint á
heimasíðu VTT.
Tæknin sem verið er að skoða
byggir á plasma, eða rafgasi, sem
getur skilið metan í frumeindir
sínar, sem eru vetni og kol. Við það
verður til önnur gróðurhúsategund,
koltvísýringur, sem þrátt fyrir að
vera skaðleg, hefur mun minni áhrif
til loftslagsbreytinga samanborið
við metan. Rafgas myndast þegar
rafeindirnar í lofttegund ná ákveðnu
hitastigi. Rafgas finnst meðal annars
í norðurljósum og flúrperum.
Plasmabúnaðinum er komið
fyrir utan við gripahúsin og á
að geta umbreytt 90 prósent
metansins í minna skaðlegar
gróðurhúsalofttegundir. Tæknin
er talin geta minnkað losun
mjólkurframleiðslu um 30 til
40 prósent. ESB stefnir að
kolefnishlutlausum landbúnaði
árið 2035 og eru forsvarsmenn
verkefnisins bjartsýnir á að þetta sé
ein lausn af mörgum í þá átt. /ÁL
Finnskar kýr á beit. Mynd / Jamo Images
Hampur sem hænsnafóður
Nýlega var lögð fram í
Bandaríkjum Norður-
Ameríku beiðni um leyfi
til að nota hamp í fóður
fyrir hænur.
Verði beiðnin samþykkt
verður hænsnahöldurum
veitt leyfi til að gefa
varppúddunum hampfræ og
hampkökur sem unnar eru úr
iðnaðarhampi.
Umsóknin er lögð fram
eftir tveggja ára rannsóknir
á hampfóðri fyrir varphænur.
Niðurstöður rann-
sóknanna eru sagðar
sýna að hampurinn
hefur engin skaðleg
áhrif á hænurnar
né þeirra sem neyta
eggjanna.
Fáist leyfi samþykkt
verður það mikill akkur
fyrir hampræktendur í
Bandaríkjunum því
markaður fyrir hænsna-
fóður þar er gríðarlega stór.
/VH
Rannsóknir:
Erfðatæknin gæti
bjargað banananum
Bananar eru vinsæl ber og
heimsframleiðsla á þeim hátt í 150
milljón tonn á ári. Nánast öll þessi
milljón tonn eru bananar af sama
yrkinu sem kallast Cavendish. Við
erum því í raun öll að borða sama
bananann.
Sveppurinn FR4 hefur lengi
ógnað bananarækt í heiminum og
jafnvel talið að hætta þurfi ræktun
þeirra eða draga verulega úr
henni. Nýjar rannsóknir í
erfðafræði lofa góðu
og geta hugsanlega
komið uppáhalds
bananayrkinu okkar
til bjargar.
Þrátt fyrir að það finnist yfir
þúsund yrki af bönunum er nánast
eingöngu eitt sem er fáanlegt í
verslunum hér á landi og víðast á
Vesturlöndum, enda ríflega 90% af
öllum bönunum í boði. Cavendish
er hluti af daglegum kosti hundruð
milljóna manna.
Cavendish er frá Kína
Yrkið er gamalt og kemur upp-
runa lega frá Kína. Ræktun þess
var almenn um 1950 og tók það
við af yrkinu Gros Michel
sem var óræktunarhæft vegna
sveppasýkingar sem lagðist á rætur
plantnanna og kallast Pananaveiki.
Cavendish-bananar þykja ekki
jafn bragðgóðir og Gros Michel en
líf- og geymslutími þess er lengri.
Sveppasýking
Yrkið Cavendish hefur átt undir
högg að sækja undanfarinn áratug.
Ástæðan er Fusarium sveppur sem
hefur breiðst hratt út og drepur
plönturnar.
Útbreiðsla sveppsins hófst á Fiji-
eyjum og barst þaðan um Asíu til
Afríku og Mið-Austurlanda.
Sveppurinn,
sem kallast
Fusarium oxy-
sporum f.sp.
cubense TR4,
hefur herjað á
bananarækt í Asíu
í rúm tuttugu ár og
gert mikinn usla í
Kína, Indónesíu,
M a l a s í u
og Taívan.
Árið 2013
varð hans
fyrst vart
í Afríku
og síðan hefur
hann verið að breiðast
út þar sem bananar eru ræktaðir í
álfunni og yfir til Mið-Ameríku.
Helsta ástæða hraðrar útbreiðslu
sveppsins er sögð vera alþjóðleg
verslun og flutningur á bönunum milli
landa. Á sama tíma og sýking vegna
sveppsins breiðist út hefur verið reynt
að finna yrki sem getur komið í staðinn
fyrir Cavendish en þær prófanir skilað
litlu. Sveppurinn hefur lagst á mörg
þeirra og þau sem þola hann hafa ekki
reynst eins bragðgóð og með eins
langan geymslutíma og Cavendish.
Innanrotnun
Fusarium TR4 lifir í jarðvegi og
smitast með æðakerfi bananaplantna
og veldur því að þær rotna innan
frá. Eftir sýkingu dregur verulega
úr uppskeru og drepast plönturnar
vanalega á innan við þremur árum.
Sveppurinn hefur því valdið
ræktendum miklu tapi og
þar sem ekki hefur fundist
leið til að vinna á honum
eftir að hann finnst í
jarðvegi þarf að hætta
bananaræktuninni.
Stórfyrirtæki og
bananabarónar leysa
það með því að flytja
ræktunina annað
en flutningunum
fylgir að fella þarf
náttúrulega skóga
og brjóta nýtt
land undir nýrækt
á bönunum.
S m á b æ n d u r
hafa sjaldnast
möguleika til
þess og sitja því
eftir með sárt ennið
og þurfa að finna
sér aðrar tegundir til
ræktunar.
Tilraunir með erfðatækni
Fyrirtæki sem þekkt er fyrir
umfangsmikla bananarækt í Mið-
Ameríku og víðar um heim hefur á
undanförnum árum gert tilraunir með
að erfðabreyta Cavendis og öðrum
yrkjum til að þola sýkingu sveppsins
og ræktun þeirra á tilraunaökrum í
Hondúras. Niðurstöður rannsóknanna
og kortlagning erfðamengis
bananaplöntunnar lofa góðu og
vísbendingar eru um að búið sé að
finna gen sem aukið gætu mótstöðu
þeirra gegn sveppnum. /VH