Bændablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 42
42 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
Hið árlega og einkar áhugaverða
danska fagþing nautgripa-
ræktarinnar, Kvægkongres, var
haldið í lok febrúar sl. og líkt og
undanfarinn áratug voru þar flutt
ótal erindi sem eiga mörg hver
erindi við íslenska bændur.
Fagþingið, sem er í senn bæði
ársfundur félagasamtaka danskra
nautgripabænda og fagfundur
helsta vísindafólks í greininni,
stóð í tvo daga og var skipt upp
í 12 málstofur með 67 erindum.
Í þessari grein verður gripið
niður í nokkur erindi sem voru
flutt í málstofunum um hagfræði,
samfélagsleg áhrif og bústjórn.
1. Hagfræði
Í þessari málstofu voru flutt fimm
erindi og var afar áhugavert erindið
sem Per Brems Jensen flutti en
hann starfar við hrávörukaup og
-sölu. Hann fjallaði um útlitið á
hrávörumarkaðinum og hvernig
hann telur að markaðurinn muni
þróast á komandi árum. Í stuttu
máli sagt telur hann útlitið ekki
sérlega gott hvað þetta varðar og
telur að þó svo að hrávöruverð sé
e.t.v. heldur að dala nú um stundir
þá sé heimurinn á uppsveiflu
hvað þetta varðar. Eins og sjá má
af meðfylgjandi mynd, sem hann
sýndi og sýnir verðþróun svokallaðs
CRB stuðuls, en það er stuðull
sem mælir verðþróun á algengum
hrávörum á heimsmarkaði, þá hefur
verðlag þróast í eins konar 30 ára
sveiflum frá þarsíðustu aldamótum
og hann telur að svo verði einnig
nú. Heimurinn sé því á siglingu
inn í verðuppsveiflu og verði þar
næstu árin.
Í þessu ljósi mælti hann með
því að bændur reyndu að gera
kaupsamninga á hrávöru langt
fram í tímann og á sama tíma binda
sölu á sínum vörum í samninga sem
gilda í stuttan tíma, svo unnt sé að
bregðast hratt við hækkunarþörf.
Danir að auka
mjólkurframleiðsluna
Af öðrum erindum má nefna
erindi Thomas Carstensen hjá
afurðafélaginu Arla. Hann
fjallaði um markaðsmál og
mjólkurframleiðsluna og nefndi
m.a. að mjólkurframleiðslan í
Danmörku væri nú að aukast á ný
eftir nokkuð stöðuga framleiðslu á
liðnum árum. Nú væri t.d. áætlað
að framleiðslan myndi aukast um
meira en 50 milljónir lítra á árinu.
Þegar hann horfði til markaðs-
aðstæðna sagði hann ljóst að
gríðarlega hátt afurðastöðvarverð
nú um stundir í Evrópu myndi
án vafa lækka á þessu ári og
nálgast heimsmarkaðsverðið á ný.
Skýringin fælist einfaldlega í minni
kaupgetu í Evrópu nú en áður, en
mikil verðbólga í flestum löndum
hefur snarminnkað kaupgetu fólks
og það fært neyslu sína í ódýrari
vöruflokka.
Þetta hafi komið beint niður
á sölu á t.d. gulum osti og
mjólkurdufti. Þá væri Kína að
draga úr innflutningi mjólkurvara
í kjölfar mikillar uppbyggingar þar
á stórbúum auk þess sem margar
þjóðir í Afríku, sem hingað til
hafa tekið við miklu magni af t.d.
mjólkurdufti, ættu í efnahagslegum
erfiðleikum sem sæist best á
gengisþróun landanna. Þessi staða
hefur snarhækkað verð á innfluttum
vörum sem hefur skilað sér beint
í minnkandi eftirspurn eftir
mjólkurvörum. Á móti kemur að
fólki í heiminum er að fjölga.
Það væru því vaxtarmöguleikar
til staðar en ljóst að fram undan
væri ákveðinn óstöðugleiki, m.a.
vegna stríðsins í Úkraínu, sem gerir
það að verkum að erfitt sé að spá
langt fram í tímann.
2. Samfélagsleg áhrif
Þetta var einkar áhugaverð
málstofa en áhersla fyrirlesaranna
var á samspil nautgriparæktar og
samfélagsins, bæði þess danska
og heimsins. Erindin voru nokkuð
fjölbreytt og sneri eitt þeirra, flutt
af Nina Preus frá SEGES, að því
hvernig neysluvenjur væru að
breytast. Fram kom í máli hennar
að neytendur dagsins í dag, í
kjölfar Covid og vegna stríðsins í
Úkraínu, væru mun aðhaldssamari
en áður og horfðu í auknum mæli
á stórinnkaup, afsláttartilboð og
hefðbundna matargerð. Þá hafa
margir neytendur áhyggjur af
umhverfinu, mengun og matarsóun.
Nýleg könnun á neysluhegðun
danskra neytenda sýnir að þrátt
fyrir framangreindar áhyggjur
þá hafi orðið hverfandi litlar
breytingar á neysluhegðuninni
en skammtastærðirnar væru þó
minni. Þannig hefur t.d. engin
hlutfallsleg breyting orðið á kjöt-
eða mjólkurvöruneyslu danskra
neytenda á 12 mánaða tímabili,
þ.e. jafnmargir njóta þessara vara
nú og fyrir ári síðan en magnið væri
þó minna. Annars konar fæði, þ.e.
plöntufæði, væri ekki að aukast
svo nokkru næmi og þegar Nina
horfði til þróunarinnar í heiminum
almennt þá væri ljóst að neysla á
mjólkurvörum og kjöti væri stöðugt
að aukast. Þetta skýrist fyrst og
fremst af fólksfjölgun og vaxandi
hópi millistéttar í Asíu sem hefur
nú efni á að kaupa sér heldur dýrari
matvörur en áður.
Það væri því þörf fyrir hefð-
bundnar landbúnaðarvörur á
komandi áratugum og í meira
mæli en hingað til. Þannig
mætti vænta 15% aukningar á
kjötsölu heimsins fram til ársins
2031 og 21% aukningar á sölu
mjólkurvara í heiminum. Bændur
yrðu þó að vera með vörur sínar á
heimsmarkaðinum til þess að njóta
þessa vaxtar, en það eru danskir
bændur einmitt.
Verksmiðjuframleiðsla
Annað áhugavert erindi í
málstofunni, sem flutt var af
starfsfólki Háskólans í Árósum,
sneri að verksmiðjuframleiðslu á
bæði kjöti og mjólk. Undanfarin ár
hefur heyrst af því að verið sé að
vinna að því að finna verkferla svo
unnt sé að framleiða kjöt og mjólk
í hefðbundnum verksmiðjum, þar
sem notaðar séu stofnfrumur sem
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Á FAGLEGUM NÓTUM
Fagþing dönsku nautgripa-
ræktarinnar 2023
– Fyrsti hluti
Verðþróun CRB stuðulsins sýnir að verð sveiflast nokkuð taktfast þar sem
hver sveifla mælist í um 30 árum.
Metanþefarinn.
Tilfellið er að
þegar bændur
eru að ná mjög góðum
árangri þá verður bilið í
meðalbúið oft ansi stórt
og þá vantar raunhæfari
viðmið svo hægt sé að
ná enn lengra.“
SKÓGRÆKT
Tegund þessi er sumargrænt
lauftré með óvenjulega hæfni
til að þrífast í blautum jarðvegi
með kyrrstæðu vatni.
Þetta segir Þorbergur
Hjalti Jónsson, sérfræðingur á
rannsóknasviði Skógræktarinnar,
í ritgerð um svartelri sem kom
út í 36. tölublaði Rits Mógilsár
árið 2018 með titlinum Vanmetið
fenjatré. Þar kemur fram að
svartelri vaxi í votlendi við fljót
og meðfram ám og lækjum um
mestalla Evrópu, frá Skandinavíu
til Miðjarðarhafslanda og austur
um Litlu-Asíu til Írans en líka á
stöku stað í dölum Atlasfjalla í
Norður-Afríku, Marokkó, Túnis
og Alsír. Vert sé að huga betur að
ræktun tegundarinnar hérlendis.
Svartelri er miðlungsstórt tré
og ætti að geta náð a.m.k. 20
metra hæð á Íslandi. Algeng hæð
á upprunasvæðum er 18-25 metrar
en dæmi eru um yfir 40 metra há
tré við bestu aðstæður. Tegundin
er beinvaxin og myndar keilulaga
krónu. Viðurinn er til margra hluta
nytsamlegur. Í samanburði við
aðrar elritegundir sem þekktari
eru hjá okkur, svo sem gráelri, er
svartelrið hraðvaxnara og verður
stærra. Hins vegar vex það hægt
í mólendi, eins og reyndar öll
önnur lauftré. Reynslan af ræktun
svartelris er lítil hér á landi. Sum
kvæmi sem flutt hafa verið inn
sýna léleg þrif, önnur mun betri.
Því er talsverð kvæmaleit eftir áður
en hægt er að dæma tegundina
efnilega eða segja til um hvar
ræktun hennar muni takast best.
Elritegundir hafa svipaðan
eiginleika og hvítsmári,
rauðsmári, baunagras, lúpína og
fleiri belgjurtir að lifa í öflugu
samlífi við örverur á rótum
sínum sem gefur trjánum nitur,
eitt helsta fjörefni plantna. Í
tilviki elritegunda er sambúðin
við geislasvepp af ættkvíslinni
Frankia og í ræktun er mikilvægt
að tryggja að slík svepprót sé
til staðar áður en gróðursett er.
Svartelri gerir líka miklar kröfur
um birtu. Tegundin er með öðrum
orðum ljóselsk og hentar því sem
frumherji í skógrækt.
Styrkleikar svartelris eru
áðurnefndir niturbindandi
eiginleikar og sömuleiðis hraður
vöxturinn sem gerir að verkum að
svartelri gæti komið til greina sem
timburtré á Íslandi. Okkur vantar
einmitt fleiri tegundir lauftrjáa sem
orðið geta stórvaxin timburtré,
en að svo stöddu er það í raun
einungis alaskaösp sem fyllir
þann flokk hérlendis. Heldur
erfiðara er að segja um veikleika
tegundarinnar á Íslandi vegna
þess hve lítil reynsla er af henni
í skógrækt enn sem komið er. Þó
virðist henni hætt við haustkali
og miklum afföllum í æsku. Slíkt
mætti þó ef til vill forðast með
réttum ræktunaraðferðum. Þá er
þetta einnig nokkuð skammlíf
tegund að jafnaði því algengt
er erlendis að fúa fari að gæta í
trjábolnum um sextugt. Trjástofnar
svartelris verða sjaldan eldri en
120 ára en trén geta fjölgað sér
bæði með teinungum og fræi, líkt
og birkið á Íslandi.
Þó nokkuð er af svartelri í
íslenskum görðum en tegundin
hefur ekki verið notuð í markvissri
skógrækt. Í skóginum á Mógilsá
undir Esjuhlíðum má sjá svart- og
gráelritré sem vaxa hlið við hlið.
Þar er vaxtarþróttur svartelrisins
augljós umfram gráelrið. Hver
veit hvað framtíðin ber í skauti sér
fyrir svartelri á Íslandi ef frekari
kvæmaleit fer fram. Þorbergur
Hjalti Jónsson ályktar í það
minnsta í áðurnefndri ritgerð sinni
um svartelri að hér fari vanmetin
tegund. Hann bendir m.a. á að
svartelri frá 65. gráðu norðlægrar
breiddar í Finnlandi hafi reynst vel
á Íslandi, til dæmis í Lystigarðinum
á Akureyri þar sem það er sagt
harðgert, vaxi vel og kali ekkert.
Niðurstaða Þorbergs Hjalta í ritgerð
sinni er því sú að full ástæða sé til
að reyna ræktun svartelris meira
í skógrækt á Íslandi, sérstaklega
á flatlendu, framræstu landi þar
sem ösp og greni hafa átt erfitt
uppdráttar vegna sumarfrosta.
Heiti svartelris hefur gjarnan
komið upp í umræðu á kaffistofum
skógræktarfólks og vilja sumir
kalla það rauðelri enda heitir
tegundin rødel á dönsku. Það stafar
af því að þegar tré eru felld roðnar
viðurinn fljótlega í sárinu. Vísunin
til svarta litarins helgast aftur á
móti af dökkum lit barkarins og
„drungalegu yfirbragði trés fenja
í næturhúminu“ eins og Þorbergur
Hjalti orðar það. Í flestum
germönskum málum er svarti
liturinn í heiti þessarar trjátegundar
og í íslensku virðist það ætla að
verða ofan á. Það minnkar líka
rugling við aðra elritegund, ryðelri,
sem heitir t.d. red alder á ensku.
Sú tegund er reyndar ekki síður
áhugaverð hérlendis.
Hér hefur verið talað um elri en
endum þetta á svolítilli málfræði.
Elri er hvorugkyns og beygist elri
um elri frá elri til elris. Reyndar
er líka til karlkynsmyndin elrir.
Önnur karlkynsmynd er aftur
á móti ölur og líklega er hún
upprunalegri. Strangt tiltekið
er beyging hennar ölur um
ölur frá ölri til ölurs en yfirleitt
fer sú beyging út og suður hjá
málnotendum. Auðveldara er að
eiga við myndina elri í mæltu og
rituðu máli þótt hin sé sannarlega
öllu skemmtilegri, ekki síst ef
litið er til fleirtölunnar, ölrar um
ölra frá ölrum til ölra. Þannig
gæti einhver sagt á förnum vegi:
Hefur þú tekið eftir svartölrunum
í garðinum mínum?
Pétur Halldórsson.
Svartelri (Alnus glutinosa)
Stæðileg svartelritré í skóginum
á Mógilsá. Myndir / Pétur Halldórsson.
Ungt og efnilegt svartelritré á
Suðurlandi.
Mynd / Þorbergur Hjalti Jónsson