Bændablaðið - 23.03.2023, Page 49
49Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
ÓMISSANDI Í SAUÐBURÐINN
LAMBBOOST OG FLORYBOOST eru fæðubótarefni sem verka styrkjandi og
efla ónæmiskerfi unglamba. 100% náttúrulegar vörur sem löngu hafa sannað sig.
Auðvelt í notkun, þarf ekki að blanda og kemur með íslenskum leiðbeiningum.
Nánari upplýsingar hjá dýralæknum og umboðsaðila www.dyraheilsa.is
Lambboost er fæðubótarefni sem er auðugt af
broddmjólk og næringarefnum og er sérstaklega
hannað með þarfir lítilla og léttra lamba í huga.
Heilbrigð þarmaflóra – Mjólkursýrugerlar
Eflir ónæmiskerfið – Broddur
Örvandi – Jurtakraftur (kóla, gúarana)
Eykur líkamlegan styrk – Flókin samsetning vítamína og járns
Eykur orku – Nauðsynlegar fitusýrur, glúkósi, þríglyseríðar
LAMBBOOST
FLORYBOOST
Floryboost stuðlar að jafnvægi þarmaflórunnar og
saltbúskap líkamans þegar meltingartruflanir gera vart við sig.
Verndar þarmana – Viðarkol og leir sem draga í sig eiturefni
Kemur jafnvægi á saltbúskap líkamans – Natríumklóríð,
magnesíumklóríð, kalíumklóríð og fosföt
Eykur orku – Dextrósi
Styrkir erta slímhúð – Nauðsynlegar olíur unnar m.a. úr rósmaríni,
cajeput, timótei og thymol
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - hitataekni.is - Sími 588 6070
SJÁLFVIRK POTTASTÝRING MEÐ SNERTISKJÁ OG VEFVIÐMÓTI
POTTASTÝRING
Sláturfélag Suðurlands leitar að starfsmanni í viðhalds- og tæknideild félagsins á Selfossi.
Við leitum að kraftmiklum og jákvæðum einstaklingi til að bætast í öflugan hóp SS fólks á
góðum vinnustað.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almennt viðhald á búnaði og húsnæði starfsstöðvarinnar
Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Reynsla af viðhaldsvinnu
Vélstjóri/vélvirki eða reynsla af vinnu við kæli- og frystiklefa, eða rafvirkjamenntun
Skipulagshæfileikar og geta til að vinna sjálfstætt
Jákvæðni, góðir samskiptahæfileikar og rík þjónustulund
Frekari upplýsingar um starfið gefur Benedikt Benediktsson í netfangi benedikt@ss.is
Sláturfélags Suðurlands er 115 ára, öflugt og framsækið matvælafyrirtæki í
eigu búvöruframleiðanda á Suður- og Vesturlandi og almennra hluthafa.
Höfuðstöðvar þess eru í Reykjavík og þar eru auk skrifstofu, markaðs-
og söludeildir. Á Hvolsvelli er meginhluti kjötiðnaðar staðsettur ásamt
frystihúsi og vörudreifingu kjötvara. Á Selfossi rekur félagið sláturhús ásamt
úrbeiningu á kjöti og pökkunarstöð.
Nánari upplýsingar um félagið má finna á heimasíðu þess, www.ss.is
Starf í tæknideild á Selfossi
BLAÐAMAÐUR
ÓSKAST
Umsóknarfrestur: 4. apríl 2023
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem
umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og
hæfni til að gegna starfinu.
Umsóknir sendist á vigdis@bondi.is
Upplýsingar um starfið veitir Guðrún Hulda Pálsdóttir,
ritstjóri Bændablaðsins á gudrunhulda@bondi.is
Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
Mjög gott vald á íslensku ritmáli
Þekking og áhugi á íslenskum landbúnaðarmálum og málefnum
annarra undirstöðuatvinnugreina íslensks samfélags
Geta til að vinna hratt en nákvæmt og undir álagi
Frumkvæði, drifkraftur og sköpunarkraftur
Góð samskiptahæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og
greiningarhæfni
Góð almenn tölvukunnátta. Þekking á vefumsjónarkerfum og
umbroti kostur
Bændablaðið auglýsir eftir blaðamanni í 100% starf.
Menntun og hæfni:
Nú eru tæp tvö ár frá því Bænda-
samtök Íslands og búgreinafélögin
sameinuðust.
Hefur þessi
mikla breyting
á félagskerfi
bænda tekist
með eindæmum
vel og fólk
verið jákvætt
þó auðvitað séu
hlutir sem þarf
að leyfa að þróast
og fínpússa, eins
og gengur. Eitt af því er skipulag
búgreina- og Búnaðarþings.
Það hafa eflaust margar
hugmyndir verið ræddar þegar
kemur að skipulagningu búgreina-
og Búnaðarþings. Þrátt fyrir
að sameiningin hefði falið í sér
tækifæri til einföldunar og sparnaðar
var niðurstaðan sú að hafa þetta
eins og svipað og áður, þegar
búgreinafélögin voru með sína
aðalfundi og svo var Búnaðarþing
mánuði seinna.
Með óbreytt skipulag að leiðar-
ljósi var meðal annars sett í sam-
þykktir BÍ svohljóðandi 13. gr.
„Búgreinadeildir og aðildarfélög geta
sent mál sem snerta landbúnaðinn
í heild til umfjöllunar á þinginu.“
Sem þýðir, samkvæmt lögfræðingi
BÍ, að aðeins búgreinadeildir og
aðildarfélög BÍ geta sent ályktanir
á Búnaðarþing. Því þarf að hafa,
meðal annars, þennan tíma á milli
þinga, svo að ályktanirnar sem koma
af búgreinaþingi komist í nefndir og
inn á Búnaðarþing. Þessu þarf að
mínu mati að breyta þannig að allir
félagsmenn BÍ geti sent tillögur inn
á Búnaðarþing. Og þar sem að við
lifum á tímum fjarfunda þá væri lítið
mál að skella í eitt aukabúnaðarþing
og kippa þessu í liðinn. Þá getum
við farið að huga að því að hafa
búgreinaþing á sama tíma og
Búnaðarþing.
Ég legg til að í stað þess að halda
þingin hvort á sínum tímanum verði
búgreina- og Búnaðarþing haldið
á sama tíma. Þannig væri hægt að
spara fjármagn og verðmætan tíma
starfsmanna, tíma sem er þá ekki
varið í mikilvæga hagsmunagæslu
fyrir okkur bændur á meðan
undirbúningi þinganna stendur.
Með þessu væri alls ekki
verið að sameina þetta í eitt þing
enda á búgreinaþing að vera fyrir
viðkomandi búgrein en Búnaðarþing
fyrir alla heildina. Heldur yrði þetta
keyrt hvert á eftir öðru á sama tíma.
Með því myndi sparast mikill tími
og fjármunir, bæði fyrir BÍ og ekki
síður fyrir fulltrúa sem að þá þurfa
aðeins að koma einu sinni á þing, en
ekki tvisvar eins og núna er.
Með þessum sparnaði væri
hægt að greiða ekki bara fargjald
heldur líka dagpeninga fyrir kjörna
fulltrúa þingsins, svo að þeir eigi
fyrir uppihaldi og þurfi ekki að
borga með sér eins og staðan er
í dag. Ég tel mjög mikilvægt að
þessu verði breytt, enda viljum við
að fólk geti gefið kost á sér sem
fulltrúi óháð fjárhag eða fjarlægð
frá þingstað. Allar raddir þurfa að
heyrast til þess að við fáum sem mest
út úr þingunum. Kýlum á þetta og
gerum þetta að stórum og flottum
viðburði, sem allir geta raunverulega
gefið kost á sér að taka þátt í, okkur
bændum til sóma og skemmtunar.
Vaka Sigurðardóttir,
formaður eyfirskra kúabænda.
Bændastemning
Vaka
Sigurðardóttir.
Glimrandi gleði á búgreinaþingi 2023.
LESENDARÝNI