Bændablaðið - 23.03.2023, Side 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
Einfalt og gott velja margir
í hversdagsmatinn. Hvernig
væri að rifja upp gamla góða
plokkfiskinn og bæta ögn í
með því að bæta blaðlauk við
klassísku uppskriftina?
Plokkfisk má gera úr hvítum fiski
sem losnar auðveldlega í sundur
eftir suðu. Í gamla daga voru helst
afgangar af soðningunni, þar sem
fiskur hafði verið soðinn á beini,
nýttir, en núna er algengara að
fólk eldi fiskinn fyrir þennan rétt.
Algengast er að nota ýsu og þorsk
en ekkert er að því að prófa aðrar
tegundir, t.d. löngu, sem er algengt
að finna í fiskbúðum. Þá er líka
sniðug tilbreyting að nota saltfisk,
nætursaltaðan fisk eða reykta
ýsu. Grunnuppskrift að plokkfiski
inniheldur alltaf lauk, kartöflur
og hvítan jafning sem nefnist
„bechamel“ á útlensku.
Svo má leika sér með bragðið,
að gratinera réttinn í ofni, bæta við
kryddi, s.s. karrí o.s.frv.
Við notum ögn af blaðlauk hér,
hann á líka mjög vel við reykta
ýsu, gefur milt bragð sem á vel við
fiskinn og kartöflurnar.
Aðferð:
Kljúfið blaðlauk eftir endilöngu
og saxið, leggið í vatn og skolið
vel til að fjarlægja sand og mold.
Þerrið og skrælið lauk og
hvítlauk og saxið. Mýkið allan
lauk á hægum hita upp úr
matarolíu í nokkrar mínútur. Takið
til hliðar.
Bræðið smjör í víðum potti,
stráið hveiti yfir og hrærið vel
sam an. Hellið mjólk sam an við
í smá um skömmt um og hrærið
stöðugt. Látið sjóða við væg
an hita í 20 mínútur og hrærið
reglulega í á meðan, þessi sósa
brennur mjög hratt við og þarf
stöðuga athygli.
Bætið fiski og kart öfl um í og
blandið vel saman. Smakkið til
með salti og pipar eftir smekk.
Setjið blönd una í eld fast mót
og stráið rifnum osti yfir, setjið í
180° C heitan ofn í 20 mín út ur, eða
þar til ost ur inn brúnast. Berið fram
með rúg brauði og smjöri.
Njótið vel!
Þau Birkir Snær Gunnlaugsson og Hanifé
Agnes Mueller-Schoenau reka kjúklinga-
og sauðfjárbú í V-Húnavatnssýslunni, auk
lítillar hrossaræktar, og hér fáum við að
kynnast þeim.
Býli: Sandar.
Staðsett í sveit: Heggstaðanesi við Miðfjörð
í VesturHúnavatnssýslu.
Ábúendur: Birkir Snær Gunnlaugsson og
Hanifé Agnes MuellerSchoenau.
Fjölskyldustærð: Birkir, Hanna og tíkurnar
Birna og Frigg.
Stærð jarðar og gerð bús? Okkar hluti
Sanda eru um 1.000 ha og nýtum við um 45
ha af túnum. Á jörðinni er sauðfjárbú og lítil
hrossarækt, einnig rekum við kjúklingabú sem
staðsett er á Tannstaðabakka.
Fjöldi búfjár og tegundir? 450 kindur, 25
hross og pláss fyrir um 25.000 kjúklinga í
tveimur eldishúsum.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur
fyrir sig á bænum? Birkir sinnir gegningum
í fjárhúsum, sinnir útiganginum og fer í
eftirlitsferð í kjúklingahúsin. Síðan tekur við
ýmiss konar viðhald og tilfallandi verkefni. Að
lokum er farinn annar rúntur í fuglahúsin og
kvöldgjöfin í kindurnar eftir það. Hanna fer
í skrifstofuvinnu á Hvammstanga.Eftir það
sinnir hún tamningum og reiðkennslu ásamt
bústörfum.
Skemmtilegustu/ leiðinlegustu bústörfin?
Skemmtilegustu eru hefðbundin hauststörf,
smalamennskur, lömb valin til lífs og jafnvel
fyrri partur sauðburðar.
Leiðinlegustu bústörfin? Kannski seinni
partur sauðburðar en það fer eftir tíð og lifun
lamba.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á
jörðinni eftir fimm ár? Í svipuðum farvegi,
væri gaman að byggja hesthús en það fer eftir
efnahag og tíma.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, rjómi,
smjör og skyr.
Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu?
Heill kjúklingur eða lambalæri.
Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin?
Í sauðburði árið 2020 var ekki til staðar
rafstrengur niður í fjárhús en þá var ljósavél
brúkuð til að lýsa og dæla vatni úr vatnsbóli.
Hún ákvað að segja upp störfum í miðri
burðarhjálp eina nóttina og sátum við þá í
svartamyrki með rollugreyinu. Notuðum við
ljósin á símunum til að klára verkefnið og
sameiginleg ákvörðun var tekin um að þetta
yrði síðasti sauðburður með ljósavél. Sumarið
eftir var farið í að plægja háspennukapal
að fjárhúsunum en þau eru staðsett um tvo
og hálfan kílómetra frá einbýlishúsinu.
Einnig var tækifærið nýtt í plægingu á nýrri
vatnslögn og ljósleiðara en þessi bragarbót
olli straumhvörfum í vinnuaðstöðu og færði
fjárhúsin inn í 21. öldina.
Sandar
BÆRINN OKKAR
MATARKRÓKURINN
Plokkfiskur með blaðlauk
-Fyrir 4-6 manns
Hafliði Halldórsson
haflidi@icelandiclamb.is
Plokkfiskur
2 lauk ar
1 blaðlaukur
2 hvít lauksrif
2 msk. matarolía
100 g smjör
2½ dl hveiti
4 dl mjólk
1 tsk. salt
½ tsk. svartur nýmulinn pipar
800 g soðin ýsa eða þorskur
300 g soðnar kartöflur, í bitum
100 g rifinn ostur