Bændablaðið - 23.03.2023, Síða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023
Krossnefur er fremur stór finka með afar sérhæfðan gogg. Skoltarnir ganga á víxl þannig að nefið liggur í kross. Þannig er goggurinn sérhæfður til þess að ná fræjum úr könglum með því að glenna
þá í sundur. Þessi sérhæfing hefur m.a. orðið til þess að þeir hátta varptímanum sínum eftir fæðuframboði eða þroska grenifræja. Varptíminn er því jafn sérstakur og fuglinn sjálfur eða um hávetur,
frá útmánuðum fram á vor og getur hann orpið nokkrum sinnum yfir allt árið. Krossnefur er staðfugl og einn af þeim fuglum sem hefur sest hér að með aukinni skógrækt. Utan varptíma eru þeir
félagslyndir eins og finkum er gjarnan lagið. Þeir eiga það til að leggjast á heilmikið flakk, sér í lagi ef þéttleiki þeirra verður mikill eða dregur úr fæðuframboði. Líklegt er að slíkar aðstæður hafi
orðið til þess að hingað flæktist mjög mikið magn af krossnef á árunum 2008/2009 og síðan þá hafa þeir orpið hér nokkuð stöðugt. Þessir sérstöku lífshættir gera það að verkum að erfitt er að meta
nákvæmlega fjölda þeirra en áætlað er að hér séu allt frá 100–500 varppör. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
FRÆÐSLA
Nýverið fór daginn að lengja og sólarglætu
varð vart, í kjölfarið þó stimplað sem „false
spring“. Svona skemmtilegheit eru víst
undanfari páskahrets sem gleður hjörtun
mismikið – en með sólskin í huga getum við
hugsað um farsælli tíð.
Allar horfur eru amk. á heitu sumri og þá
er ekki úr vegi að njóta sín til hins ýtrasta,
vera sem glöðust og frjálslegust í fasi. Með
flaksandi hár, berfætt og brjóstahaldaralaus
getum við kvenpeningurinn notið sumarsins...
...brjóstahaldaralaus hugsa nú sumir með efa.
Frænkurnar í forgang
Brjóstahaldaralausar konur eru því miður
uppspretta bæði líkamlegra og andlegra
óþæginda sumra og því ekki annað í stöðunni
en að taka af og til tillit til þessara viðkvæmu
sála. Auðvitað verður einnig að lesa stundum
í aðstæður og bjóða ekki umhverfinu upp á
óbeisluð brjóst ef athyglin á að beinast að
öðru mikilvægara. (Lesist; við athafnir á borð
við jarðarfarir, skírn, brúðkaup, vinnufundi
alvarlegs efni og þar fram eftir götunum.)
En hvert er nú best að snúa sér í þessum efnum?
Jú. Nú eru nefnilega á markaðnum
svokallaðar „nippies“ sem eiga ættir að
rekja til brjóstadúska burlesque dansara
og ætlaðar til að hylja geirvörtur. Einnig
má kaupa „nippies-tape“ eða límband/teip
ætlað yfir þetta viðkvæma svæði, auk þess
að hafa þann eiginleika að geta einnig nýst
við brjóstalyftingu. Fást límböndin svo og
frænkur brjóstadúskanna í ýmsum litum, enda
er mannkynið afar litríkt. Ganga frænkurnar
einnig undir nafninu peistís samkvæmt atvinnu-
mönnum í þessum efnum.
Kartöfluuppskeran hápunkturinn
En svo er spurning hvort ekki séu gæðin
mismunandi á þessum elskum, svo og
litadýrðin? Í könnun sem blaðamaður miðilsins
VICE gerði á málinu, kom eftirfarandi í ljós
eftir að viðkomandi reyndi ýmsar tegundir við
hin helstu veðrabrigði. Í fyrsta sæti var tegund
frænkna undir merkinu Gatherall.
Gekk blaðamaður VICE rösklega upp
fjall, stakk sér þar sveittur í á og skalf svo
úr kulda eftir volkið. Sátu frænkurnar
vel á brjóstunum, hnikuðust ekki til
og huldu að fullu sperrtar geirvörtur
kuldasjokksins eftir baðið.
Gatheralls fást í nokkrum litbrigðum
og henta því flestum kynþáttum. Kosta
um fjögur þúsund krónur – eða 28$ á
vefsíðunni www.express.com. Annað
sæti vermdi merkið Bonamona,
ódýrari valkostur sem fæst
á Amazon.com. Þar eru
þrjú sett í pakka sem
hægt er að endurnýta
auk þess sem sérstakir
geirvörtupúðar fylgja
með fyrir viðkvæma.
Ef hugur er á að versla sér frænkur í háum
verðflokki er mælt með þeim sem bera
einfaldlega nafnið Nippies. Um ræðir þunnar
en fremur stífar frænkur sem gefa brjóstunum
einkar fallegt form. Þær verða líka þynnri út
á brúnirnar, og þá nær ósýnilegar í gegnum
hvaða fatnað sem er. Til viðbótar býður merki
Nippies upp á fjölbreyttasta litavalið. Vefsíða
merkisins má finna á www.barenecessities.com.
Til viðmiðunar
Við tilraunir á þessari vöru er ýmislegt sem þarf að
hafa í huga. Hversu vel/lítið mótar fyrir þeim undir
þunnum bolum, eru þær á einhvern hátt hamlandi
eða óþægilegar eða fylla þær notandann
sjálfstrausti og öryggiskennd? Þegar
um tilraunaferli er að ræða er til dæmis
hægt að fara léttklædd í grænmetis-
og ávaxtakæli verslana, brydda upp
á spjalli við einhvern nærstaddan og
gera sér grein fyrir hvort viðmælendum
manns sé tíðlitið á brjóstasvæðið eða
hvort kartöfluuppskeran
sé hápunktur sam-
ræðnanna.
Ef hægt er að halda uppi samræðum jafnframt því
að vera með gæsahúð – en ósýnilegar geirvörtur
– er takmarkinu náð. Á vefsíðu undirfatarisans
Victoria´s Secret má svo bæði finna frænkur
og húðlituð límbönd sem eiga bæði að gegna
hlutverki þeirra, sem og ef viðkomandi vill
geta lyft brjóstunum örlítið. Ekki fá límböndin
jafngóða dóma og frænkurnar og talið er best að
nota þau einungis í 1-2 klst. í senn. Hefur reynslan
sýnt að eftir lengri tíma eyðist límið auk þess
sem það getur valdið kláða eða annarri ertingu.
Svo væri nú agalega sorglegt að vera búin að
líma upp á sér brjóstin, strunsa um með sperrtan
barm en uppgötva svo að annað brjóstið væri
farið að húrra niður á við. Betra kannski að
halda sig við frænkurnar og leyfa öllu að gossa
– enda þó sýnilegar geirvörtur fái suma til að
grípa andann á lofti, þykir stærð og lögun brjósta
öll fögur. Njótum okkar því í sumar glaðar og
frjálslegar í fasi. /SP
Tíska:
Glöð og frjálsleg í fasi