Bændablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 58

Bændablaðið - 23.03.2023, Qupperneq 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 23. mars 2023 Krossnefur er fremur stór finka með afar sérhæfðan gogg. Skoltarnir ganga á víxl þannig að nefið liggur í kross. Þannig er goggurinn sérhæfður til þess að ná fræjum úr könglum með því að glenna þá í sundur. Þessi sérhæfing hefur m.a. orðið til þess að þeir hátta varptímanum sínum eftir fæðuframboði eða þroska grenifræja. Varptíminn er því jafn sérstakur og fuglinn sjálfur eða um hávetur, frá útmánuðum fram á vor og getur hann orpið nokkrum sinnum yfir allt árið. Krossnefur er staðfugl og einn af þeim fuglum sem hefur sest hér að með aukinni skógrækt. Utan varptíma eru þeir félagslyndir eins og finkum er gjarnan lagið. Þeir eiga það til að leggjast á heilmikið flakk, sér í lagi ef þéttleiki þeirra verður mikill eða dregur úr fæðuframboði. Líklegt er að slíkar aðstæður hafi orðið til þess að hingað flæktist mjög mikið magn af krossnef á árunum 2008/2009 og síðan þá hafa þeir orpið hér nokkuð stöðugt. Þessir sérstöku lífshættir gera það að verkum að erfitt er að meta nákvæmlega fjölda þeirra en áætlað er að hér séu allt frá 100–500 varppör. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson FRÆÐSLA Nýverið fór daginn að lengja og sólarglætu varð vart, í kjölfarið þó stimplað sem „false spring“. Svona skemmtilegheit eru víst undanfari páskahrets sem gleður hjörtun mismikið – en með sólskin í huga getum við hugsað um farsælli tíð. Allar horfur eru amk. á heitu sumri og þá er ekki úr vegi að njóta sín til hins ýtrasta, vera sem glöðust og frjálslegust í fasi. Með flaksandi hár, berfætt og brjóstahaldaralaus getum við kvenpeningurinn notið sumarsins... ...brjóstahaldaralaus hugsa nú sumir með efa. Frænkurnar í forgang Brjóstahaldaralausar konur eru því miður uppspretta bæði líkamlegra og andlegra óþæginda sumra og því ekki annað í stöðunni en að taka af og til tillit til þessara viðkvæmu sála. Auðvitað verður einnig að lesa stundum í aðstæður og bjóða ekki umhverfinu upp á óbeisluð brjóst ef athyglin á að beinast að öðru mikilvægara. (Lesist; við athafnir á borð við jarðarfarir, skírn, brúðkaup, vinnufundi alvarlegs efni og þar fram eftir götunum.) En hvert er nú best að snúa sér í þessum efnum? Jú. Nú eru nefnilega á markaðnum svokallaðar „nippies“ sem eiga ættir að rekja til brjóstadúska burlesque dansara og ætlaðar til að hylja geirvörtur. Einnig má kaupa „nippies-tape“ eða límband/teip ætlað yfir þetta viðkvæma svæði, auk þess að hafa þann eiginleika að geta einnig nýst við brjóstalyftingu. Fást límböndin svo og frænkur brjóstadúskanna í ýmsum litum, enda er mannkynið afar litríkt. Ganga frænkurnar einnig undir nafninu peistís samkvæmt atvinnu- mönnum í þessum efnum. Kartöfluuppskeran hápunkturinn En svo er spurning hvort ekki séu gæðin mismunandi á þessum elskum, svo og litadýrðin? Í könnun sem blaðamaður miðilsins VICE gerði á málinu, kom eftirfarandi í ljós eftir að viðkomandi reyndi ýmsar tegundir við hin helstu veðrabrigði. Í fyrsta sæti var tegund frænkna undir merkinu Gatherall. Gekk blaðamaður VICE rösklega upp fjall, stakk sér þar sveittur í á og skalf svo úr kulda eftir volkið. Sátu frænkurnar vel á brjóstunum, hnikuðust ekki til og huldu að fullu sperrtar geirvörtur kuldasjokksins eftir baðið. Gatheralls fást í nokkrum litbrigðum og henta því flestum kynþáttum. Kosta um fjögur þúsund krónur – eða 28$ á vefsíðunni www.express.com. Annað sæti vermdi merkið Bonamona, ódýrari valkostur sem fæst á Amazon.com. Þar eru þrjú sett í pakka sem hægt er að endurnýta auk þess sem sérstakir geirvörtupúðar fylgja með fyrir viðkvæma. Ef hugur er á að versla sér frænkur í háum verðflokki er mælt með þeim sem bera einfaldlega nafnið Nippies. Um ræðir þunnar en fremur stífar frænkur sem gefa brjóstunum einkar fallegt form. Þær verða líka þynnri út á brúnirnar, og þá nær ósýnilegar í gegnum hvaða fatnað sem er. Til viðbótar býður merki Nippies upp á fjölbreyttasta litavalið. Vefsíða merkisins má finna á www.barenecessities.com. Til viðmiðunar Við tilraunir á þessari vöru er ýmislegt sem þarf að hafa í huga. Hversu vel/lítið mótar fyrir þeim undir þunnum bolum, eru þær á einhvern hátt hamlandi eða óþægilegar eða fylla þær notandann sjálfstrausti og öryggiskennd? Þegar um tilraunaferli er að ræða er til dæmis hægt að fara léttklædd í grænmetis- og ávaxtakæli verslana, brydda upp á spjalli við einhvern nærstaddan og gera sér grein fyrir hvort viðmælendum manns sé tíðlitið á brjóstasvæðið eða hvort kartöfluuppskeran sé hápunktur sam- ræðnanna. Ef hægt er að halda uppi samræðum jafnframt því að vera með gæsahúð – en ósýnilegar geirvörtur – er takmarkinu náð. Á vefsíðu undirfatarisans Victoria´s Secret má svo bæði finna frænkur og húðlituð límbönd sem eiga bæði að gegna hlutverki þeirra, sem og ef viðkomandi vill geta lyft brjóstunum örlítið. Ekki fá límböndin jafngóða dóma og frænkurnar og talið er best að nota þau einungis í 1-2 klst. í senn. Hefur reynslan sýnt að eftir lengri tíma eyðist límið auk þess sem það getur valdið kláða eða annarri ertingu. Svo væri nú agalega sorglegt að vera búin að líma upp á sér brjóstin, strunsa um með sperrtan barm en uppgötva svo að annað brjóstið væri farið að húrra niður á við. Betra kannski að halda sig við frænkurnar og leyfa öllu að gossa – enda þó sýnilegar geirvörtur fái suma til að grípa andann á lofti, þykir stærð og lögun brjósta öll fögur. Njótum okkar því í sumar glaðar og frjálslegar í fasi. /SP Tíska: Glöð og frjálsleg í fasi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.