Muninn - 01.05.2016, Blaðsíða 25
23
Flestir sem þekkja mig vita líklegast að mér finnst ekkert
skemmtilegra en að ferðast á nýja og framandi staði. Ég kýs
oftast að ferðast einn, enda gefur það manni endalaust frelsi.
Fyrir um það bil tveim árum fór ég í fyrsta skipti einn út fyrir
Evrópu. Ég man ennþá eftir hræðslunni og spennunni þegar
ég steig upp í flugvélina, vitandi að eftir sólarhring væri ég í
nýju framandi landi þar sem ég þekkti engan. Þegar ég lenti
í Nairobi, höfuðborg Kenía, tók menningarsjokkið við. Allt
þarna var frábrugðið því sem ég var vanur, hvort sem það
var fólkið, lyktin, landslagið eða maturinn. Með tímanum
byrjaði ég að venjast landinu og leið ekki á löngu þangað til
ég byrjaði að elska það. Það var sárt að kveðja landið eftir sjö
lærdómsríkar vikur en fattaði ég þegar ég kom heim að þetta
væri eitthvað sem ég þyrfti að gera aftur. Síðan þá hef ég verið
heltekinn af því ferðast og nýti hvert einasta tækifæri til að fara
til útlanda.
Eftir að ég byrjaði að ferðast mikið er ein spurning sem ég
fæ marg oft. Hvernig hefuru eiginlega efni á þessu? Ég vil þá
stöðugt minna fólk á þá staðreynd að maður þarf ekki að vera
ríkur til að ferðast. Ef þú hefur virkilega áhuga á því að ferðast
þá seturu það í forgang. Ég eyði ekki miklum peningum í föt
eða í nýjan síma, heldur spara ég og nýt svo peninginn í það
sem ég hef virkilega áhuga á
Hérna koma nokkrar leiðir sem ég hef nýtt mér til að spara
pening á ferðalögum mínum.
Notaðu flugleitarvélar - Síður eins og dohop.is og momondo.
com til dæmis. Þær leita af fluginu þínu á vefjum óteljanda
flugfélaga og gefa þér upp ódýrasta kostin.
Oft getur verið sniðugt að nýta sér lággjalda flugfélög eins og
EasyJet og millilenda á ódýrum flugvöllum.
Notaðu Couchsurfing - Ókeypis gisting heima hjá fólki út um
allan heim. Stundum færðu þitt eigin herbergi, stundum sófa,
stundum dýnu, en það er alltaf frítt! Bæði góð leið til að kynnast
nýju fólki og fá fría gistingu.
Ef couchsurfing hentar þér ekki eru hostel næst ódýrasti
kosturinn. Gisting í koju í herbergi með öðru fólki. Einnig
bjóða hostel oft upp á ókeypis afþreyingu, t.d. skoðunartúra og
pöbbarölt.
Annar möguleiki er að vinna fyrir frírri gistingu og mat. Síður
sem bjóða upp á það eru t.d. workaway.com og wwoof.net.
Eldaðu þinn eigin mat - Besta leiðin til að spara á meðan þú
ferðast er að elda þinn eigin mat. Ef þú notar couchsurfing er
gestgjafinn líklegast með eldhús sem má nota. Eins með flest
öll hostel, tjaldsvæði og jafnvel sum gistiheimili. Einnig er
sniðugt að vera alltaf með nestisbox og hnífapör í töskunni. Þá
er einfaldlega hægt að stökkva inn í næstu matvöruverslun og
smyrja sitt eigin nesti.
Farðu á puttanum - Tiltölulega örugg og algeng leið til að
ferðast frítt á milli staða í sumum heimshlutum. Óáreiðanleg en
samt spennandi ferðamáti sem kostar þig ekki krónu. -Bjarki Bernardsson