Muninn - 01.05.2016, Síða 79
77
DJ DODDI MIX
- æskan, ferillinn og draumarnir
Þorsteinn Marínó Egilsson eða DJ Doddi Mix eins
og hann er betur þekktur er fæddur og uppalinn á
Akureyri, á Eyrinni, enda mikill Eyrarpúki. Þorsteinn
Marínó fæddist þann 2 júní 1987 sem gerir hann 29 ára
á þessu ári. Doddi hefur svo sannarlega gert garðinn
frægann hér í Eyjafirði sem plötusnúður. Meðfram
plötusnúðaferlinum starfar Doddi í Hlíðarfjalli á veturna
en á sumrin sér hann um að slá gras bæjarins. Lengi
vel sat Doddi á skólabekk í Verkmenntaskólanum á
Akureyri og fílaði sig einstaklega vel. Doddi náði þó
aldrei að klára námið að sökum skorts á tíma en hann
á ekki nema 10 einingar eftir. Doddi var mjög virkur í
félagslífinu og var meðal annars sviðsmaður þegar VMA
setti á laggirnar söngleikinn Jesus Christ Superstar.
Doddi tók einnig þátt í söngkeppni VMA eitt árið en
segir það meira hafa verið uppá grín.
,,Ég veit alveg að ég er rammfalskur” segir Doddi
en honum er mjög minnistætt þegar hann komst
að því fyrst. Hann var þá í 9.bekk, fullur vonar um
sönghæfileika sína og hugðist taka þátt í söngkeppni
skólans með Rammstein lagið Sonne. Hann var í
rólegheitum að æfa sig inn í herbergi þegar mamma hans
kom að honum.
,,Hún sagði mér að ég
væri eins og breimandi
köttur”
Doddi lét það þó ekki á sig fá. ,,Ég tók samt þátt þó
að mömmu þætti söngröddin mín hræðileg. Ég setti
gerviblóð uppí mig og þóttist æla blóði. Mér var sama
hvort fólk var að hlæja eða ekki þetta var bara visst
skemmtanagildi. Það var þá sem ég fann hvað mig
langaði að troða upp”
Doddi segir það hafa hjálpað sér mikið í DJ
bransanum að hafa áður verið á sviði og gert allt vitlaust.
,,Ég ákvað að það að vera plötusnúður, frekar en söngvari,
væri meira fyrir mig. Sviðsframkoman hefur samt nýst
mér. Þetta helst allt í hendur. Ég er alltaf hoppandi með
liðinu þegar ég er að DJ’ast”
Doddi Mix var aðeins 7 ára gamall farinn að sýna
plötusnúða starfinu áhuga.
„Ég byrjaði að fikta við tónlist og safna mér tónlist. Ég
var alltaf í tónlistardeildinni í gamla Bókval 9 ára gamall.
Þar á bakvið borðið var dj mixer og tveir geislaspilarar. Ég
eyddi heilu dögunum að hlusta á tónlist, kom beint eftir
skóla og var til lokunar. Þar lærði ég mikið um tónlistina.”
Það var fleira í æskunni sem átti stóran þátt í að skapa
plötusnúðs ímyndina en það eru ekki endilega allir sem
þekkja söguna af listamannsnafninu Doddi Mix.
„Þegar ég var 8 ára æfði ég fótbolta með Þór.
Ég kom alltaf með mix á æfingar, strákarnir
fóru að kalla mig Dodda Mix og það bara
festist.”
Þegar Þorsteinn var 12 ára fór hann á plötusnúða
námskeið og varð það í raun upphaf ferilsins. Hann
byrjaði, 12 ára að aldri, að spila á grunnskólaböllum.
Með tímanum þróaðist hann og breyttist í bransanum.
„18 ára byrja ég að vinna sem tæknimaður í Sjallanum.
Þar kynntist ég mörgum stærstu poppstjörnum Íslands.
Ég tengdist Sjallanum emotional rótum þarna. Fyrsta
giggið mitt þar var að dj-a á dátanum. Paparnir voru að
spila í Sjallanum þetta kvöld og ég spyr vin minn sem er
að vinna þarna hvort það vanti plötusnúð á efrihæðina.
Hann sagði já. Og ég bara sló til”.
Síðan þá hefur Doddi spilað heilmikið í Sjallanum
en nú síðast hélt hann ball þar árið 2014 með 12:00.
,,Það var mjög gaman að 12:00
strákunum þegar Nökkvi og þeir
voru í bandinu” segir Doddi en hann
sannfærði strákana í 12:00 um að koma norður og fylltu
þeir í sameiningu Sjallann.
Umsjón: Karólína Rós Ólafsdóttir og Lovísa H Jónsdóttir