Árbók frjálsíþróttamanna - 01.07.1943, Blaðsíða 66
berg, og bezta Austurríkismanninum B. Vygoda. Urðu þeir sem
von var á uudan Jóni, sem þó hljóp mjög vel framan af og hélt
lengi í við þá. Það sem hann skorti aðallega var þol og skerpa
í endasprettinum, enda var ofsahiti á meðan hlaupið fór fram.
Fyrstur í riðlinum varð Svíinn Lindberg á 11,6 sek. Austurríkis-
maðurinn 2. og Jón 3. (sennilega á 12,1 sek.) rétt á undan Serb-
anunt Milischevitsch. Má það kallast góð frammistaða af Jóni,
sem vitanlega var lítt æfður á við hina. Hinn 10. júlí (kl. 10,50
f. h.) átti 200 m. hlaupið að fara fram, en þar sem Jón var þá
rnjög illa fyrir kallaður, tók hann eigi þátt í því, enda þótt hann
væri skráður. Hinsvegar tók hann þátt í glímukeppni Islending-
anna 15. júlí, í stað eins glimumannanna.
Á íþróttamóti, sem haldið var í Malmö lenti Jóni aftur saman
við Svíann Lindherg í 100 m. hlaupi og tvo Bandaríkjatnenn, sem
ekki höfðu getað keppt í Stokkhóhni vegna meiðsla. Urðu þeir
nú 1. og 2.; sá fyrri hljóp á 10,7 sek. eða einum tiunda hluta úr
sekúndu lietri tíma en Olympiusigurvegarinn. Svíinn varð þriðji,
en Jón varð að sætta sig við að vera án verðlauna, eins og við
var að búast, í kcppni við slíka garpa.
A Olympiuleikana í Antwerpen 1920, voru engir íþróttainenn
sendir til keppni, en þó fóru tveir íþróttamenn á leikana á veg-
um I. S. I. til að kynna sér nýjungar á sviði íþróttamálanna.
Voru það þeir Ben. G. Wáge og Ólafur Sveinsson.
2. utanför:
Alþjóðamót K.F.U.M. í Kaupmannahöfn 1927.
Lagt var af stað úr Reykjavík með „Lyru“ 30. júní. I förinni
tóku þátt alls 8 keppendur, þeir Jón Kaldal, (fararstjóri), Asgeir
Einarsson, Garðar S. Gíslason, Geir Gígja og Helgi Eiriksson til
keppni í frjálsum íþróttum og auk þess 3 sundinenn, Björgvin
Magnússon, Ingólfur Guðmundsson og Jón Pálsson.
Til Bergen komu þeir 4. júlí og voru þá vel hressir. Voru
þar haldnar æfingar og hlupu þeir Garðar og Helgi þá 100 m.