Jökull - 01.01.2019, Side 154
Society report
VORFERÐ JÖRFÍ 2019
Finnur Pálsson og Magnús Tumi Guðmundsson
Jarðvísindastofnun Háskólans, Öskju, Sturlugötu 7, 101 Reykjavík, fp@hi.is
Vorferð JÖRFÍ á Vatnajökul 2019 var farin dagana
29. maí til 9. júní. Að þessu sinni var ferðin með held-
ur öðru sniði en oftast hefur verið. Ákveðið var vegna
mikillar aðsóknar og nægra verkefna að skipta leið-
angrinum í tvö tímabil og urðu skiptin þriðjudaginn 4.
júní. Farið var um Skálafellsjökul þar sem aurbleyta
var svo mikil framan við Tungnaárjökul að leiðin að
honum var ófær. Þetta stafar af hröðu hopi jökuls-
ins undanfarin ár. Er þetta í fyrsta skipti í 66 ára
sögu vorferða sem ófærð við jökulrönd veldur því að
ferðin er færð á Skálafellsjökul. Þátttakendur í fyrri
hluta leiðangursins voru 23 og 22 í þeim seinni, en
5 manns voru allan tímann. Fyrri hópurinn gisti að-
faranótt fimmtudagsins á Vagnstöðum og fyrir bragð-
ið var leiðangurinn kominn af stað á jökul um hádeg-
isbil og hægt að nota daginn til að vinna að ýmsum
fyrirhuguðum verkum.
Kalt var á jöklinum allan tímann og færi með ein-
dæmum gott, líka stillt og bjart flesta daga í fyrri hluta
ferðarinnar, en heldur meiri vindur úr norðri seinni
hlutann en þó að mestu bjart og aðstæður til vinnu
góðar. Fyrir vikið voru ferðir um jökulinn auðveldar
og dagarnir nýttust vel til mælinga og annarra starfa.
Í leiðangrinum var unnið að mjög fjölbreyttum
verkefnum. Þau helstu voru: Vetrarafkoma mæld á
nokkrum stöðum, m.a. í Grímsvötnum Háubungu og
Bárðarbungu. Á Bárðarbungu og í Grímsvötnum voru
boraðir um 15 m langir kjarnar til könnunar á hitastigi
og eðlismassa. Íssjármælingar voru gerðar á Bárð-
arbungu og austan hennar, í Grímsvötnum, í Eystri
Skaftárkatli og norðan Skaftárkatla að rótum Bárðar-
bungu. Í Grímsvötnum voru breytingar vegna jarð-
hita kortlagðar og innri gerð íshellunnar könnuð með
jarðsjá. Vitjað var um jarðskjálfta- og GPS stöðv-
ar á jöklinum, m.a. á Öræfajökli og fjórfótur settur
á Vestari Svíahnúk. Þar var GPS tæki skilið eftir og
mældi þar allt sumarið til loka ágúst. Einnig voru
mældir inn nokkrir fastpunktar á öðrum jökulskerj-
um. Á Dyngjujökul, nærri jafnvægislínu, voru sett
þrjú síritandi GPS tæki, en vísbendingar eru um að
skriðhraði þar sé að aukast og framhlaup í aðsigi. Á
Bárðarbungu voru endurteknar þyngdarmælingar frá
fyrri árum til að kanna breytingar vegna umbrota síð-
ustu ára, jarðhitaketill í suðurbrúnum hennar kortlagð-
ur og gassýnum safnað. Hópur dvaldi í Kverkfjöll-
um í nokkra daga við rannsóknir á snefilefnum í guf-
unni þar. Gasmælingar voru líka gerðar í Grímsvötn-
um og á Saltara. Þá var farið af Grímsfjalli um jök-
ul að vesturjaðri Síðujökuls til að kanna nyrsta hluta
gossprungunnar úr Skaftáreldum, en hún náði þar inn
í jökulinn. Í fyrri hluta voru Valdimar Leifsson og
Ragnar Th. Sigurðsson með hópnum í nokkra daga
við kvikmyndagerð, vegna 100 ára afmælis Veður-
stofu Íslands á næsta ári. Í seinni hlutanum voru tveir
blaðamenn sem öfluðu efnis til greinaskrifa í íslenska
og hollenska prentmiðla. Einnig var sérstaklega unn-
ið að myndatöku niður yfir skriðjökla Öræfajökuls og
fleira, auk upptöku á efni um störfin sem unnin eru
í jöklaferðum. Í seinni hluta ferðarinnar voru með í
nokkra daga tveir starfsmenn Neyðarlínunnar og unnu
að viðgerðum og endurbótum á rafstöð og tetra sendi
á Grímsfjalli. Að venju var unnið að viðhaldi skála og
búnaðar á Grímsfjalli og flutt þangað eldsneyti fyrir
rafstöðina þar og farartæki ferðarinnar.
Nefna má að jarðhiti í Grímsvötnum hefur auk-
ist á síðustu árum á því svæði vestast í Grímsvötnum
sem kennt er við Vatnshamar, en hann hvarf í jökul
á árunum 1960–1980. Í flugferð yfir Vatnajökul í ág-
JÖKULL No. 69, 2019 153