Jökull - 01.01.2020, Page 102
Að fóstra jökul
Þegar jöklar hörfa breytast aðstæður við sporð-
inn og á mörgum stöðum hafa myndast lón þvert á
mælisnið. Um 1960 tók að myndast lón við Breiða-
merkurjökul, miðja vegu milli Jökulsárlóns og Breið-
árlóns, við Nýgræðukvíslar. Frá því rann kvísl austur
í Jökulsárlón en lón þetta hvarf nokkrum árum síð-
ar. Flosi Björnsson (1906–1993) á Kvískerjum, sem
sinnti jöklamælingum þarna, hafði nokkru áður flutt
merkjaröðina vestur fyrir lónið (15. mynd). Þetta
var ekki eina skiptið sem hliðra varð merkjaröðinni
vegna lóna við jökuljaðarinn. Bræðurnir á Kvískerj-
um færðu mælilínuna með því að setja niður ný merki
hornrétt frá vörðum og byrja á annarri línu án þess
að tapa samfellu fyrri mælinga. Austan Jökulsárlóns
tókst nokkuð vel að halda merkjaröðinni fram til um
1959 en eftir að lón tóku að myndast við jökuljaðar-
inn varð að hliðra merkjunum til austurs. Að lokum
varð sjálfhætt á þessari línu vegna Stemmulóns og tek-
in upp mælilína nær Fellsfjalli (15. mynd).
Í seinni tíð hafa GPS-staðsetningatæki tekið við
af málbandinu og hefur það gefist vel. Aðstæður við
marga jökulsporða þróast nú á svipaðan hátt. Jöklarnir
hörfa í hlýnandi loftslagi og sporðlón myndast í dæld-
um sem þeir hafa sorfið í undirlag sitt. Slík lón tor-
velda aðgengi að sporðinum og geta hindrað mæling-
ar. Á undanförnum árum hefur verið brugðist við með
að nota fjarlægðarkíki til þess að mæla vegalengd að
jökuljaðrinum, eftir ákveðinni stefnu frá föstu merki
framan við lónið. Unnt er að mæla breytingar á jökl-
inum með fjarkönnun svo sem gervihnattamyndum og
loftmyndum sem er allgóð aðferð, ekki síst ef mæl-
ingar með GPS-tæki eru torveldar. Fjarkönnun er þó
ekki í öllum tilfellum eins nákvæm og mæling á stöðu
sporðsins á vettvangi.
Vandamál tengd sporðamælingum við jökul sem
gengur út í lón eru ekki ný af nálinni. Ragnar Stefáns-
son í Skaftafelli lýsir mælingu á Morsárjökli árið 1960
svo: „Við merkið hjá Merkifelli hefur nú myndazt all-
stórt lón, svo þar eru ekki tiltök að mæla. Telja má, að
lón hafi myndazt nær óslitið meðfram öllum jöklinum,
austan frá Skorum og vestur undir Miðfell. Aðeins á
einum stað er allhár malarhryggur, sem skiptir lóninu
í sundur. Þar setti ég nýtt merki, 50 m frá jökli. Við
miðmerkið reyndi ég að koma á mælingu, með því að
ég óð yfir meiripart af lóninu og kastaði síðan streng
yfir skoru við jökulskörina, sem ekki var væð.“
13. mynd. Mælingamenn að störfum. – a) Sporðamæling Gígjökuls, Ármann Ingi Sigurðsson (t.v.) og Sveinn
Svavarsson (t.h.) við mælitækið. Ljósmynd: Páll Bjarnason, 27. nóvember 2009. b) Bragi Skúlason við eina
af sporðamælingavörðunum norðan Sátujökuls. Ljósmynd: Valgeir Steinn Kárason, 22. september 2011. c)
Sporðamæling Bægisárjökuls upp á gamla mátann, spotti festur í vörðuna. Framhaldsskólakennarar við MA
aðstoða við mælinguna. Ljósmynd: Jónas Helgason, 1. september 2010. d) Jónas Helgason hvílir sig við
vörðu framan við Hálsjökul í Svarfaðardal. Ljósmynd: Þórir Haraldsson, 11. september 1990. e) Mælistika
nr. 160 við einn af hinum stórgerðu jökulgörðum Skálafellsjökul, Sigfinnur Snorrason við sporðamælingu.
Ljósmynd: Oddur Sigurðsson, 10. október 1992. f) Sporðamæling Búrfellsjökuls á Tröllaskaga í hópi góðra
samferðamanna. Ljósmynd: Sveinn Brynjólfsson, 17. september, 2017. g) Hagafellsjökull eystri mældur, Jó-
hanna Katrín Þórhallsdóttir tilbúin í jöklagöngu. Ljósmynd: Einar Ragnar Sigurðsson, 8. október, 2007. h) Jón
Baldursson og Auður Sif Jónsdóttir mæla fjarlægð að Króksjökli með spotta. Ljósmynd: Kristjana Eyþórsdótt-
ir, 20. ágúst 2003. – In the field. – a) Terminus measurements of Gígjökull (N-Eyjafjallajökull). Photograph:
Páll Bjarnason, November 27, 2008. b) Measurement cairn north of Sátujökull (N-Hofsjökull). Photograph:
Valgeir Steinn Kárason, September 22, 2011. c) Measuring Bægisárjökull on Tröllaskagi. Photograph: Jónas
Helgason, September 1, 2010. d) Jónas Helgason resting by the cairn in front of Hálsjökull in Svarfaðardal-
ur (N-Iceland). Photograph: Þórir Haraldsson, September 11, 1990. e) A glacier sign by one of the coarse
moraines of Skálafellsjökull (S-Vatnajökull). Photograph: Oddur Sigurðsson, October 10, 1992. f) A group
measuring the termini of Búrfellsjökull on Tröllaskagi. Photograph: Sveinn Brynjólfsson, September 17, 2017.
g) Terminus measurements of Hagafellsjökull eystri (S-Langjökull). Photograph: Einar Ragnar Sigurðsson,
October 8, 2007. h) Measuring the terminus of Króksjökull (E-Langjökull) the old way, by tying a piece of
string to the reference point. Photograph: Kristjana Eyþórsdóttir, August 20, 2003.
JÖKULL No. 70, 2020 99