Jökull - 01.01.2020, Side 110
Að fóstra jökul
einnig aðgengilegar. Talsvert er um að gögnunum sé
hlaðið niður og þau nýtt í ýmis konar fræðsluefni og
skólaverkefni. Sporðamælingar hafa einnig nýst í rit-
gerðum háskólanemenda.
Niðurlag
Frá því að sporðamælingar hófust hér á landi árið
1930 hafa alls verið stundaðar mælingar á um 120
mælistöðum. Þeir hafa verið virkir í mislangan tíma, í
einhverjum tilfellum hafa ákveðnir staðir tekið við af
öðrum, sem t.d. hefur þurft að færa vegna breytinga
í landslagi framan jökulsins eða breytinga í straum-
stefnu jökultungunnar. Nú eru virkar mæliraðir á um
50 stöðum en við suma jökulsporða eru fleiri en ein
mælilína, eins og t.d. við Skeiðarárjökul og Breiða-
merkurjökul.
Sporðamælingarnar eru mikilvægt framlag til
vöktunar á umhverfisbreytingum sem nú eiga sér stað
víða um heim vegna hlýnandi loftslags. Hop jök-
ulsporða er ein af mest áberandi afleiðingum lofts-
lagsbreytinga. Rýrnun íslenskra jökla og sporðamæl-
ingarnar hafa vakið talsverða athygli fjölmiðla og
annarra, innanlands sem utan. Í þeirri umfjöllun er
mikilvægt að hafa tiltækar tölur sem slá máli á þær
breytingar sem eiga sér stað. Þrátt fyrir að fjarkönnun-
argögn hafi á síðari árum orðið æ mikilvægari í vökt-
un jöklabreytinga eru vettvangsathuganir nauðsynleg-
ar. Reglubundin ljósmyndun, könnun og skrásetning á
breytingum felur í sér mikilvæga upplýsingaöflun um
jöklana. Þátttaka áhugafólks í mælingunum er einnig
mikilvæg og gott dæmi um hvernig almenningur get-
ur lagt til vinnu í þágu vísinda og vöktunar á náttúru
landsins. Sporðamælingunum er sinnt af áhugamönn-
um og þær auka þekkingu lærðra og leikra á náttúr-
unni, sama úr hvaða geira þjóðfélagsins fólk kemur.
Framtíð sporðamælinga Jöklarannsóknafélagsins ætti
því að vera björt, svo lengi sem íslenskir jöklar end-
ast í hlýnandi loftslagi. Félagið vill koma á framfæri
þökkum til allra sem sinnt hafa mælingum frá upphafi.
Summary
The article presents an overview of the history of the
monitoring programme of glacier termini fluctuations
in Iceland. The programme was initiated by meteorol-
ogist Jón Eyþórsson in 1930, and the measurements
were initially carried out by local farmers. In recent
decades, the measurements have been conducted by
volunteers of the Iceland Glaciological Society with a
very diverse professional background. Every autumn,
the distance to the glacier terminus has been measured
from a reference post, usually marked with a cairn
and/or a metal pole. Glacier terminus variations in Ice-
land since 1930 show a clear relationship with climate
changes. The terminus variations data set also con-
tains information about the surges of many glaciers.
HEIMILDIR
Andreassen, L., H. Elvehøy, B. Kjøllmoen, R. V. Enge-
set og N. Haakensen 2005. Glacier mass-balance and
length variation in Norway. Ann. Glaciol. 42, 317–
325. https://doi.org/10.3189/172756405781812826
Crochet, P. 2007. A study of regional precipitation trends
in Iceland using a high-quality gauge network and
ERA-40. J. Clim. 20(18), 4659–4677. https://doi.org/-
10.1175/Jcli4255.1
Crochet, P., Tómas Jóhannesson, Trausti Jónsson, Oddur
Sigurðsson, Helgi Björnsson, Finnur Pálsson og I.
Barstad 2007. Estimating the spatial distribution of
precipitation in Iceland using a linear model of oro-
graphic precipitation. J. Hydrometeorol. 8(6), 1285–
1306. https://doi.org/10.1175/2007JHM795.1
Cuffey, K. M. og W. S. B. Paterson 2010. The Physics of
Glaciers. Burlington, Elsevier, 4th edition, 704 pp.
Dragosics, M., O. Meinander, Tinna Jónsdóttir, T.
Durig, G. De Leeuw, Finnur Pálsson, P. Dagsson-
Waldhauserova og Thorsteinn Thorsteinsson 2016. In-
sulation effects of Icelandic dust and volcanic ash on
snow and ice. Arab. J. Geosci. 9, 126. https://doi.org/-
10.1007/s12517-015-2224-6
Eggert Ólafsson 1943. Ferðabók Eggerts Ólafssonar og
Bjarna Pálssonar 1752–1757. Reykjavík, H. Hálfdán-
arson.
Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson 1978. Ferðabók Eg-
gerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar um ferðir
þeirra á Íslandi 1752–1757, 1–2. bindi. Steindór
Steindórsson frá Hlöðum íslenskaði árið 1942.
Reykjavík, Örn og Örlygur, 296 pp.
Evans, David J. A. 2011. Glacial landsystems of Sat-
ujökull, Iceland: A modern analogue for glacial
landsystem overprinting by mountain ice caps. Ge-
omorphology 129(3–4), 225–237. https://doi.org/-
10.1016/j.geomorph.2011.01.025
JÖKULL No. 70, 2020 107