Jökull - 01.01.2020, Blaðsíða 116
Jöklabreytingar 2018–2019
Gervitunglamyndir frá 14. september 2018 og 9. september 2019 sem sýna breytingar á sporði Entujökuls.
Mynd: Senintel-2/Copernicus. – Satellite images from September 14th 2018 and September 9th 2019 showing
how Entujökull outlet glacier has advanced. Hægt er að bera myndirnar saman á eftirfarandi slóð: – See also:
http://brunnur.vedur.is/pub/tj/tmp/framgangur/entujokull/2019/kort/Slidermap/
Mikil umfjöllun hefur verið um jöklabreyting-
ar að undanförnu og er það ekki síst vegna mikill-
ar athygli sem minningarathöfn um Okjökul vakti
sumarið 2019. Fjöldinn allur af erlendum og inn-
lendum fjölmiðlamönnum, listamönnum, rithöfund-
um og fleirum hefur lagt leið sína á Veðurstof-
una til þess að ræða við gamla og nýja umsjónar-
menn sporðamælinga um jökla- og loftslagsbreyting-
ar. Áframhaldandi samstarf verður milli jöklahóps
Veðurstofu Íslands, Jarðvísindastofnunar Háskól-
ans, Landsvirkjunar, Náttúrustofu Suðausturlands
og Vatnajökulsþjóðgarðs, um miðlun upplýsinga um
jöklabreytingar á Íslandi, með stuðningi umhverfis-
og auðlindaráðuneytisins. Fyrir nokkrum árum var
ákveðið að gefa út árlegt fréttabréf um íslenska
jökla sem hægt er að nálgast á eftirfarandi slóð:
http://www.vedur.is/gogn/joklar/utgafa/frettabref/
Mikilvægt er að halda til haga á miðlægum stað nið-
urstöðum jöklarannsókna og það auðveldar þeim sem
leita svara við spurningum um viðbrögð jöklanna við
hlýnandi loftslagi að nálgast upplýsingar bæði á ís-
lensku og ensku.
Snæfellsjökull
Hyrningsjökull og Jökulháls – Enn er notast við mál-
band til þess að mæla breytingar á sporði Hyrnings-
jökuls. Vegna þess að ís í jökulruðningum er að
bráðna hefur hann lækkað og það gæti skekkt mæling-
una. Jökultungan hefur þynnst og mjókkað. Á Jökul-
hálsi voru jaðarinn og jöklamerkin á kafi í snjó, þrátt
fyrir hlýtt sumar.
Drangajökull
Kaldalónsjökull – Erfitt var um vik að mæla þetta
haustið. Jökultungan hefur öll rýrnað og Kaldalóns-
jökull sjálfur líka. Stórt svæði austan/ofan jökulþýfis
er orðið autt. Mikill dauðís er áfastur jökuljaðrinum
sem ekki er hættandi að fara út á samkvæmt Viðari
Má Matthíassyni.
Reykjarfjarðarjökull hopaði um 42 m sem er það
mesta sem Þröstur Jóhannsson hefur mælt. Sporður-
inn er nú að nálgast sama stað og hann var fyrir 18
árum áður en framhlaup hófst.
Leirufjarðarjökull hopaði um 100 m milli ára. Ásgeir
Sólbergsson tekur fram að undanfarnir vetur hafi ver-
ið mjög snjóléttir, fáir skaflar í fjöllunum í Leirufirði
síðla sumars.
Norðurlandsjöklar
Bægisárjökull – Karl Stefánsson er tekinn við sporða-
mælingunum. Við þökkum við Jónasi Helgasyni vel
unnin störf. Haustið 2019 var gengið með GPS-tæki
meðfram sporðinum. Bera þarf þær mælingar saman
við staðsetningu viðmiðunarpunktanna framan jökuls.
Tungnahryggsjökull heldur áfram að hopa nokkra
metra milli ára.
JÖKULL No. 70, 2020 113