Jökull - 01.01.2020, Page 117
Hrafnhildur Hannesdóttir
Bægisárjökull hefur hopað 30 m frá 2010. Tröllahyrna fyrir miðri mynd og sést í rætur Jökulborgarinnar hægra
megin. – The terminus of Bægisárjökull has retreated 30 m since 2010. Karl Stefánsson has now taken over the
measurements from Jónas Helgason. Ljósm./Photo: Karl Stefánsson, 20. ágúst, 2019.
Búrfellsjökull – Auðvelt var að greina sporð Búrfells-
jökuls þetta haustið og mældist hop á báðum mælilín-
um samkvæmt skýrslu Sveins Brynjólfssonar.
Deildardalsjökull – Sá hluti sporðsins sem var GPS-
mældur var snjólaus með öllu, jaðarinn mjög greini-
legur og urðarlaus. Því var auðvelt að mæla að þessu
sinni. Að jafnaði hörfaði jökullinn um 5 m.
Gljúfurárjökull – Sporðamæling var gerð samhliða
göngum í Sveinsstaðarétt, fjarlægð frá mælipunkti
með málbandi leiddi í ljós litla breytingu milli ára.
Grímslandsjökull – Sem fyrr var jökulsporðurinn hul-
inn snjó og því ekki hægt að mæla hann með vissu, en
Sigurði Bjarklind og félögum sýndist að hann sé að
þynnast talsvert. Þeir fylgjast grannt með snjóalögum
frá Heiðarhúsum í Flateyjardal.
Tungnahryggsjökull – Þórhildur Halla Jónsdóttir og
fylgdarmenn mældu sporð Tungnahryggsjökuls þetta
haustið.
Langjökull
Kirkjujökull – Mælingin var framkvæmd þannig að
gengið var eftir jökuljaðrinum með GPS-tæki. Kirkju-
jökull hefur hopað um 60 m.
Geitlandsjökull – Fjarlægðarmælir var notaður til þess
að meta breytingar á stöðu Geitlandsjökuls sem heldur
uppteknum hætti og hörfar mikið milli ára.
Hagafellsjöklar – Lítið er eftir af dauðísnum sem
slitnaði frá sporði Eystri Hagafellsjökuls í fyrra. Hop-
ið er núna á pari við mælingar síðustu ára eða um
150 m. Gengið var meðfram jaðri Vestari Hagafells-
jökuls til að fá nákvæmari upplýsingar um jökuljaðar-
inn, en mikil drulla er framan jökuls og erfitt að kom-
ast að honum.
Jökulkrókur/Króksjökull – Kristjana Eyþórsdóttir og
Jón Baldursson náðu mælingu á sporði Króksjökuls
eftir 24 km göngu í blíðskaparveðri. Lagt var af stað
frá Litla Oddnýjargili í stað þess að ganga hefðbundn-
ari leið frá Þröskuldi.
Þórisjökull – Guðbjörn Margeirsson náði ekki að
heimsækja sporðana tvo í norðanverðum Þórisjökli
sem byrjað var að mæla haustið 2018.
Hofsjökull
Blágnípujökull – Jökullinn nokkuð sprunginn upp eft-
ir sporðinum enda íshellir þar undir. Jökullinn hopar
milli ára, en erfiðlega gekk að komast að jökuljaðrin-
um í mælistefnunni.
114 JÖKULL No. 70, 2020