Jökull - 01.01.2020, Page 145
Óendanleikinn framundan
niður snýr er nýlegt kort sem sýnir fjölda mælilína á
Vatnajökli frá undanförnum árum og áratugum. Þó
kortið sýni ekki allar mælingar sem gerðar hafi ver-
ið á þessu tímabili þá sýnir samanburðurinn þá miklu
þróun í könnun og vísindalegum mælingum sem átt
hefur sér stað. Eftirmiðdaginn 31. ágúst, eftir að hóp-
urinn hafði klárað að bera á húsin og áður en haldið
var úr skála út að öskjunni komu þátttakendur í ferð-
inni saman og hlýddu á frásagnir þeirra Eriks Sturkell
og Helga Björnssonar af leiðangri þeirra Ygberg og
Wadell og hvaða gildi ferð þeirra og uppgötvanir fyrir
100 árum höfðu.
Samhliða var boðið upp á súkkulaðiköku með
áprentuðu korti úr sykurmassa af landakorti Wadell og
hún borin fram á diskunum. Diskarnir eru varðveittir
í Grímsvatnaskálanum. Í kjölfarið hélt hópurinn, sem
samanstóð af 22 einstaklingum, í bílum af Grímsfjalli
að þeim stað sem líklegt er talið að þeir félagar hafi
sett tjald sitt niður forðum. Annar liður í verki okk-
ar á staðnum var öllu loftkenndari, en í honum fólst
að leiðangursfólk var beðið að ganga frá þeim stað
þar sem bílunum var lagt að barmi Grímsvatnaöskj-
unnar í þögn. Þessi bón okkar var hugsuð sem að-
ferð til þess að hver og einn gæti nálgast umhverfið
í íhugun um staðinn, á þeim tímamótum sem dagur-
inn táknaði. Þögnin varði í stutta stund, á meðan fólk
gekk eitt og sér og í smáum hópum út á öskjubrúnina
og ekki heyrðust önnur hljóð en brak í snjó og skrjáf
í fötum. Eftir stutta stund sleppti þögninni og fólk
hóf að tala saman á ný og létt var yfir hópnum sem
síðan hélt í stutta gönguferð á Svíahnjúk vestari (3.
mynd). Vægi þagnar er breytilegt eftir aðstæðum og
er þögnin gjarnan notuð sem leið til þess að búa til nýtt
og ósýnilegt rými þar sem margir geta verið saman á
ólíkum forsendum. Þannig vildum við skapa farveg
fyrir hvern og einn til þess að eiga sína innri upplifun
af því andartaki að sjá Grímsvatnaöskjuna birtast og
mögulega finna sig staðsettan í skörun við tímann og
þá staðreynd að á sama tímapunkti hundrað árum fyrr
litu mennsk augu staðinn í fyrsta sinn svo vitað sé.
Sem myndlistarmenn nálgast höfundar þessarar
greinar Vatnajökul sem leið til þess að spegla hið smáa
3. mynd. Hópurinn samankominn á brún Grímsfjalls vestan við Vestari Svíahnjúk. – The group on August 31,
2019 on the rim of the Grímsvötn caldera, exactly 100 years after the visit of Ygberg and Wadell. Ljósm./Photo:
Katla Líndal, 31.08.2019.
142 JÖKULL No. 70, 2020