Jökull - 01.01.2020, Qupperneq 162
Vorferð 2020
Eyjólfur Magnússon hugar að GPS-tæki á Húsbónda, Pálsfjall í baksýn. Ljósmynd/ Photo: Hrafnhildur Hannes-
dóttir, 3. júní 2020. – Eyjólfur Magnússon testing the GPS instrument on Húsbóndi, Pálsfjall in the background.
árkötlum fannst tækið eftir talsverða leit með ýmis
konar búnaði (recco-snjóflóðaleitartæki, snjóflóðaleit-
arstangir og málmleitartæki). Einnig voru mældir
GPS-punktar á Húsbónda, Vetti, Kistu og í Esjufjöll-
um og GPS-stöð var lagfærð frá því í afkomuferð-
inni fyrr um vorið á Vestari Svíahnúk. Nýtt GPS-
tæki var sett upp í Grímsvötnum sem mælir með
meiri nákvæmni en eldra tæki Jarðvísindastofnun-
ar. Í tengslum við nýtt RANNÍS-verkefni um árs-
tíðabundna sveiflu í skriðhraða jökla voru sett upp
GPS-tæki á Skaftárjökli og á Skeiðarárjökli vestan
við Vött. Farinn var leiðangur inn í Svöludal, upp
að Þverártindsegg og í Mávabyggðir í endurtöku-
ljósmyndun, sem felst í því að leita uppi mynda-
tökustaði gamalla mynda og taka ljósmynd frá sama
stað. Einnig var sinnt viðhaldi á jarðskjálftamælum
(á Vetti, Húsbónda, Dyngjujökli og Kistu). Reynt var
að koma skikki á vefmyndavél á gafli Gamla skála, en
það verk kláraðist í annarri ferð. Radíósamband Veð-
urstofunnar frá Grímsfjalli og niður á Skeiðarársand
var lagt niður, þar sem undanþáguleyfið fyrir þeirri
tíðni var afnumið af Póst- og fjarskiptastofnun. Öll
fjarskipti fara nú um samband Neyðarlínunnar. Sumir
leiðangursmenn voru áhugasamir um að vera áfram á
fjallinu og fylgjast grannt með íshellunni í Grímsvötn-
um og bíða eftir gosi. Ekki var einhugur um að bíða
eftir því!
Dagana 5.–8. júní kom skálanefnd í vinnuferð á
Grímsfjall, sinntu þeir ýmsum lagfæringum og end-
urbótum, meðal annars í kringum rafstöðina. Til að
hleypa skálanefnd að í sín verkefni, hélt vorferðarfólk
sig í „sóttkví“ í Gamla skála þessa daga. Ágætisveður
var á jöklinum mestalla ferðina, en mikið hvassviðri
gerði 6. júní og urðu talsverðar skemmdir á vélsleðum
og matarkistum. Festing fyrir sólarsellu splundraðist
og fauk fram af fjallinu. Reynt var að fara niður af
jökli 8. júní, en niðurferð breyttist í sovét og hélt leið-
angursfólk vel hvílt til byggða þann 9. júní. Á jökul-
röndinni skiptist Veðurstofuhópurinn upp og viðhald
á GPS- og jarðsjálftastöðvum sunnan jökuls tók við
hjá hluta hópsins.
The 2020 Spring Expedition
The annual spring expedition of the society to Vatna-
jökull was unusual in 2020. Due to covid restriction
only a small group of scientists and technicians of
the Icelandic Meteorological Office and the Institute
of Earth Sciences at the University of Iceland joined
forces in early June. Numerous installations and ren-
ovations of the GPS equipment and seismic monitors
were carried out, along with radio echo sounding sur-
veys, gravitational and gas measurements, repeat pho-
tographic site visits, and more. Members of the soci-
ety had some maintenance work to do around the huts
on Grímsfjall during the first week of June as well.
JÖKULL No. 70, 2020 159