Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 7

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 7
Kveðja sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi Greetings from the Ambassador of the European Union to Iceland Jafnrétti er eitt af helstu áhersluatriðum Evrópusambandsins, samanber átak okkar um „Samband jafnréttis“ (Union of Equality). Við trúum því að fjölbreytt samfélög séu sterkari fyrir vikið. Aðgerðir sem stuðla að jafnrétti taka á sig ýmsar myndir og er okkur mjög annt um að styðja við réttindi hinsegin fólks, en við teljum það vera eina af grunnstoðum jafnréttisbaráttunnar. Það er mikilvægt að missa ekki sjónar á mikilvægi baráttunnar þótt hátíðarhöldin hér á Íslandi séu haldin fyrir opnum dyrum – víða í heiminum er einfaldlega ekki í boði að flagga regnbogafánanum jafnvel þótt árið sé 2022. Á undanförnum árum hefur ESB staðið fyrir ýmsum verkefnum í löndum þar sem réttindi hinsegin fólks eru takmörkuð og þar sem almennir borgarar jafnt sem aðgerðasinnar upplifa útskúfun og ofsóknir. Sendinefndir ESB víða um heim hafa unnið með hinsegin aðgerðasinnum sem hafa tengsl við samfélögin og grasrótina á hverjum stað fyrir sig, markmiðið er að aðlaga baráttuna fyrir mannréttindum að aðstæðum hverju sinni. Sem dæmi um slík verkefni má nefna 350 milljóna króna verkefni sem stendur vörð um réttindi hinsegin fólks í Mjanmar, El Salvador, Hondúras og Máritíus. Eins hratt ESB af stað verkefni sem vinnur að þjálfun og valdeflingu hinsegin aðgerðasinna í Bólivíu, Kólumbíu, Ekvador og Perú. Sendinefnd ESB í Suður-Afríku hefur einnig komið á laggirnar starfshópi í samstarfi við þarlent dómsmálaráðuneyti, en hópurinn vinnur að samantekt á stöðu mannréttinda í landinu og hefur eftirlit með mannréttindabrotum gegn hinsegin fólki. Jafnframt stofnaði ESB sérstakt teymi í Rúanda sem stendur vörð um hinsegin aðgerðasinna á svæðinu og ver þá fyrir áreiti og ofbeldi. Þetta eru einungis nokkur dæmi um þau fjölbreyttu verkefni sem ESB er stolt af því að sinna í samstarfi við aðgerðasinna og stjórnmálafólk. Við erum líka vel meðvituð um að það er víða pláss fyrir umbætur heima við. Gott dæmi um verkefni sem snúa að aðstæðum innan ESB er skýrsla um herferðir upplýsingafölsunar um hinsegin fólk, en sú skýrsla var framkvæmd fyrir Evrópuþingið. Skýrslan kortleggur upplýsingaóreiðu sem beinist að hinsegin fólki og greinir hvaðan hún kemur og hvernig hún dreifist innan ESB – markmiðið er að berjast gegn herferðunum, dreifa staðreyndum í stað uppspuna og standa vörð um hinsegin fólk innan ESB. Jafnréttisbaráttunni er aldrei lokið. Að standa vörð um og bæta réttindi hinsegin fólks um allan heim krefst tíma og orku og hefur ESB skuldbundið sig til árangurs í þeim efnum. Fyrir hönd sendinefndar ESB á Íslandi er það sannur heiður að styðja við bakið á Reykjavík Pride 2022. The European Union is committed to a true Union of Equality. We believe that diversity makes societies stronger. Promoting equality can take many different forms, and supporting LGBTQIA+ rights - one of the essential pillars of equality - is very close to our heart. As we celebrate pride in Iceland, it is imperative that we do not lose sight of the situation in many other countries of the world, where proudly hoisting a rainbow flag is simply not an option, even in 2022. Over the past years, the EU has engaged in diplomatic as well as practical efforts in many countries where LGBTQIA+ rights are limited, and where individuals as well as human rights’ defenders face social stigma or persecution. To this end, EU Delegations have cooperated with local LGBTQIA+ activists to decide the best way to improve human rights in respect of the local context. As an example, I can mention a 2.5 million EUR (350 million ISK) programme to protect and defend the rights of queer people in Myanmar, El Salvador, Honduras, and Mauritius; or a regional programme focused on training and empowering LGBTQIA+ rights activists in Bolivia, Colombia, Ecuador, and Peru. In South Africa, the EU Delegation jointly with the South African Department of Justice launched an LGBTQIA+ task force to review the situation of human rights in the country, and to monitor violations of the rights of queer persons. In Rwanda, the EU offers a rapid response mechanism to protect individual LGBTQIA+ rights defenders vulnerable to violence or harassment. These are just some examples of the many ongoing projects the EU is proud to be a part of, in close cooperation with local activists and political actors. At the same time, we also recognise that there is always room for improvement closer to home. A good example of some of our internal work is a recent report on disinformation campaigns about LGBTI+ people in the EU, produced for the European Parliament. The report identifies the types of disinformation being spread and their sources, so that we can better fight them, offer facts instead of fiction, and protect LGBTQIA+ persons in the EU. The work towards true equality is never completed. Protecting, improving, and safeguarding the rights of LGBTQIA+ people all over the world is an ongoing mission that requires time and energy. The European Union has a strong commitment to this mission. On behalf of the EU Delegation to Iceland, I am proud to support the 2022 Reykjavík Pride. Lucie Samcová - Hall Allen sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi Ambassador of the European Union to Iceland
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.