Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 77

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 77
Ég hafði ekki hugmynd um við hverju ég mætti búast þegar ég ákvað að opinbera tvíkynhneigð mína fyrir fjórum árum síðan. Ég lifði ekki í neinni blekkingu um sjálfan mig, ég er í forréttindastöðu, hvítur miðaldra sís-karlmaður í góðu starfi og orðinn óþarflega þekktur í þjóðfélaginu. En þótt sú staða gerði það að einhverju leyti ólíklegra að ég yrði fyrir aðkasti vegna kynhneigðar minnar bauð það samt upp á nýtt og safaríkt fóður í skítkastið sem allir sem taka þátt í opinberri umræðu þurfa að þola núorðið. Og sumir neyttu færis, ég hef sjaldan séð ömurlegri umræðu um mig í kommentakerfinu. Takk internet! Það hefur tekið mig langan tíma að átta mig á sjálfum mér. Hvað er tvíkynhneigð, hvað þýðir þetta allt og hvernig passar það við mínar tilfinningar? Ég er enn að uppgötva og læra. Það hjálpar að vera giftur konu sem er líka tvíkynhneigð og skilur því að mörgu leyti hvað er að brölta um innra með mér. Við höfum því stuðning hvort af öðru, í þessu eins og lífinu öllu. Slátrum staðalmyndunum Sökum þess hversu seint ég kom út og hafði verið lengi með konunni minni voru mýturnar sem ég þurfti aðallega að eiga við litaðar af því, t.d. um að tvíkynhneigðir geti ekki verið trúir mökum sínum og að tvíkynhneigðir karlmenn séu í raun hommar haldnir sjálfsblekkingu. Sumir vinir og kunningjar héldu að ég væri hættur með konunni minni og orðinn hommi. Jafnvel var fullyrt við fjölskyldumeðlim nýlega að ég væri skilinn og farinn að búa með manni (sem uppskar töluverða kátínu hjá tengdamóður minni sem hlakkar mikið til að hitta þennan auka tengdason). Mýtur um tvíkynhneigð eru furðu margar en afgreiðum nokkrar í hvelli: já, ég er tvíkynhneigður, það er ekki bara millibilsástand þar til ég verð hommi; já, ég er tvíkynhneigður þótt ég sé búinn að vera ástfanginn af konunni minni í rúm 30 ár; nei, ég þarf ekki fjölda elskhuga til að uppfylla kynferðislega græðgi; nei, ég þarf ekki að fíla kynin alveg og alltaf jafnt; og síðast en ekki síst: já, tvíkynhneigðir karlmenn eru til og ég er einn þeirra. Þessi staðalímyndakafli er að vísu skrifaður á meðan ég geri mad finger guns í uppábrotnum gallabuxum sitjandi á hlið með annan fótinn yfir stólbakið, en við tölum ekki um það. Margir tvíkynhneigðir þekkja líka að þurfa hálfpartinn að koma út aftur og aftur, eins og það gleymist milli atriða. Sérstaklega ef þau eru í sambandi, þá ræðst ætluð kynhneigð iðulega af því hvort makinn er samkynja eða gagnkynja. Ítrekuð svona móment geta orðið pínu vandró. Mér þykir samt alveg rosalega vænt um allar kveðjurnar og samtölin sem hvert út-úr-skápnum tilefni hefur vakið upp hjá fjölskyldu, vinum og vinnufélögum. Þau sýna mér hvað ég er umkringdur yndislegu fólki og mun heppnari en svo alltof margir sem mæta miklu mótlæti, jafnvel algjörri höfnun. Er þá líf mitt að fela mig og vera feiminn? Ein lífseig staðalímynd um tvíkynhneigð er að tvíkynhneigðir hafi það betra en aðrir í hinsegin samfélaginu því þau geti falið sig í hinu heteronormatífa samfélagi. Og hey, þú þarna Jóhannes, varst þú ekki akkúrat þessi staðalímynd? En lykilorðin í þessari setningu eru „falið sig“. Allir hópar hinsegin samfélagsins hafa þurft að fela sig í hinu heteronormatífa samfélagi og við erum væntanlega öll sammála um að það er ekkert jákvætt við það. Þetta lífseiga viðhorf hefur, ásamt öðru, jaðarsett tvíkynhneigt fólk, bæði í samfélaginu almennt en líka innan hinsegin samfélagsins – einmitt þar sem tvíkynhneigðir þurfa að geta leitað viðurkenningar og stuðnings. Það getur verið gerlegt að fela sig en gerlegt þýðir ekki það sama og auðvelt eða heilbrigt. Utan frá séð féll ég áður vissulega inn í heterosamfélagið en það þýðir ekki að það hafi verið eitthvað frábært og næs eða uppfyllt allt sem ég þurfti sem einstaklingur. Þvert á móti finn ég alveg ótrúlega sterkt, miklu sterkar en ég átti von á, hvað það skiptir mig öllu máli að vera úti, opinn og sýnilegur sem tvíkynhneigður maður. Það er eins og það hafi fyllt upp í holu í sálinni sem ég vissi ekki að var til staðar. Það eru nefnilega svo ótrúlega margir litlir hlutir sem maður felur, sleppir, segir ekki, gerir ekki eða gerir öðruvísi til að falla inn í heteronormið. Segi ég á kaffistofunni að mér finnist kvikmyndaleikarinn sem er til umræðu líka rosa hot, eða bít ég í tunguna á mér á meðan konurnar tala um hann? Pósta ég á samfélagsmiðla hvað mér finnst og hvernig mér líður í raun, eða hætti ég við því einhvern gæti farið að gruna? Allir sem eru eða hafa verið inni í skápnum þekkja þúsund svona lítil móment, sem virðast kannski lítið merkileg hvert fyrir sig en mynda samt mikilvægan hluta af því hver maður er. Og þegar ég hætti að leika þennan meðvitaða og ómeðvitaða feluleik fann ég frelsi sem líkist engu sem ég gat ímyndað mér fyrirfram. Þegar ég, eftir gleðigönguna fyrir fjórum árum talaði við fjölskyldu mína og birti á samfélagsmiðlum að ég væri tvíkynhneigður hélt ég að ég væri bara að smella út einhverju sem væri ekkert stórmál og væri bara gott að klára. Ég skildi ekki fyrr en eftir á að ég hafði í raun gefið sjálfum mér sjálfan mig. Þess vegna tók ég þá ákvörðun á síðasta ári að segja já þegar einhver vildi ræða kynhneigðina við mig opinberlega og nota þannig tækifærið til að reyna að auka sýnileikann. Ef ég sem opinber persóna er ekki til í það, hvernig get ég þá kvartað yfir því að sýnileiki tvíkynhneigðra sé lítill? Hvað er svona merkilegt við það? Því miður virðast fáar nýlegar íslenskar rannsóknir til um stöðu tvíkynhneigðra á Íslandi en rannsóknir frá Bandaríkjunum sýna að tvíkynhneigðir eru rúmlega helmingur allra í hinsegin samfélaginu. Sýnileikinn er hins vegar afar lítill og afmáun tvíkynhneigðar (bi erasure) – það að líta framhjá, fjarlægja, falsa eða útskýra burt merki um tvíkynhneigð úr samfélagslegri umræðu, sögunni, fjölmiðlum, menningarefni, akademísku efni o.s.frv. – er raunverulegt vandamál sem vinnur sterkt á móti sýnileikanum. Lítið en lífseigt íslenskt dæmi um slíka afmáun er þrálát notkun fjölmiðla á orðasambandinu „hjónabönd samkynhneigðra“ um samkynja hjónabönd. Það er líka sár staðreynd að ungt (og eldra) tvíkynhneigt fólk sem er að fóta sig í kynhneigð sinni geti helst leitað fyrirmynda í vísindaskáldsögum og fantasíuefni vegna þess hversu fáar tvíkynhneigðar persónur er að finna í menningarefni sem byggir á raunveröldinni. Þetta vandamál er auðvitað ekki bundið við tvíkynhneigða, en það gerir þetta bara verra. Svo eru viðhorfin ennþá svo spes. Rannsóknirnar sýna til dæmis að oftar en ekki telur samfélagið tvíkynhneigðar konur aðeins vera að taka hliðarspor til að þóknast eða heilla karlmenn á meðan tvíkynhneigðir karlar séu það aðeins þar til þeir viðurkenna fyrir sjálfum sér að þeir séu hommar. Sem sagt: Allir tvíkynhneigðir laðast í alvörunni að karlmönnum. Jáseisei. Feðraveldið er víða, og sjálfsánægt. Upplifun þeirra out tvíkynhneigðu karlmanna sem ég hef rætt við er að síshet samfélagið virðist tilbúnara til að umbera tvíkynhneigð kvenna en karla. 77
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.