Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 50
Gleðigangan
The Pride Parade
Frá Hallgrímskirkju,
laugardaginn 6. ágúst kl. 14:00
Gleðigangan er hápunktur Hinsegin
daga. Í henni sameinast hinsegin fólk
í einum hópi með fjölskyldum sínum
og vinum til að staðfesta tilveru
sína, sýnileika og gleði, ásamt því að
minna á þau baráttumál sem skipta
hvað mestu máli hverju sinni.
Hinsegin dagar skipuleggja
Gleðigönguna en atriðin sjálf
eru sprottin úr grasrótinni og
einstaklingar og hópar geta skipulagt
atriði og skráð sig til þátttöku í
göngunni. Skilyrði fyrir þátttöku er að
atriðin miðli skilaboðum sem varða
veruleika hinsegin fólks á einn eða
annan hátt.
Gönguleið
Gangan leggur af stað frá
Hallgrímskirkju stundvíslega kl.
14:00 og bíður ekki eftir neinum.
Gengið verður eftir Skólavörðustíg,
Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi
og endað á Sóleyjargötu við
Hljómskálagarðinn þar sem taka
við glæsilegir útitónleikar að göngu
lokinni.
Skráning og þátttaka
Þátttakendur sem ætla að vera
með atriði í Gleðigöngunni skulu
sækja um eigi síðar en 31. júlí á
hinsegindagar.is/gledigangan.
Nánari upplýsingar um gönguna
veitir göngustjórn á netfanginu
gongustjorn@hinsegindagar.is.
Athugið að ekki er hægt að veita
atriðum aðgang að göngunni
nema rafræn umsókn hafi verið
send inn og skilmálar samþykktir.
Hinsegin dagar leggja áherslu á að
þau sem vilja ganga með, en hafa
ekki sótt um þátttöku og eru ekki
með sérstakt atriði, bíði með að slást
í hópinn þar til síðasti vagninn hefur
farið framhjá.
Auglýsingar bannaðar
Hinsegin dagar eru stoltir af því
að Gleðigangan í Reykjavík er ein
af fáum sambærilegum göngum í
heiminum þar sem auglýsingar eru
óheimilar. Með auglýsingabanninu
er undirstrikað að gangan er
grasrótarviðburður og þátttakendur
taka þátt til að styðja baráttuna og
málstaðinn en ekki til að styrkja eða
auglýsa fyrirtæki.
Í örfáum undantekningartilvikum
eru auglýsingar heimilar en þá þarf
að sækja sérstaklega um undanþágu
til göngustjórnar. Athugið að allar
ósamþykktar auglýsingar á bílum og
fatnaði þarf að hylja áður en gangan
fer af stað. Brot á þessum reglum
getur valdið brottvísun úr göngunni.
Gleðigöngupotturinn
Með samstarfssamningi Hinsegin
daga og Landsbankans varð
til sérstakur styrktarpottur
Gleðigöngunnar. Pottinum er ætlað
að styrkja einstaklinga og hópa til
þátttöku í Gleðigöngunni og þannig
m.a. aðstoða þátttakendur við að
standa straum af kostnaði við hönnun
atriða, leigu ökutækja, efniskaup og
fleira.
Dómnefnd velur styrkþega
úr innsendum umsóknum og
úthlutar styrkjum með það að
markmiði að styðja framúrskarandi
From Hallgrímskirkja church,
Saturday 6 August at 2 pm
hugmyndir til framkvæmda.
Miðað er við að fjárhæðir styrkja úr
Gleðigöngupottinum séu á bilinu
100.000–500.000 kr. Dómnefndin
hefur heimild til að halda eftir að
hámarki 200.000 kr. til veitingar
hvatningarverðlauna að hátíð lokinni.
Þar með hafa allir styrkir og verðlaun
Hinsegin daga verið færð undir einn
hatt og því er ekki hægt að sækja
um aðra styrki eða endurgreiðslu
kostnaðar vegna þátttöku í
Gleðigöngu Hinsegin daga.
Sjá nánar á
www.hinsegindagar.is/
gledigongupottur
The Pride Parade
Groups that wish to participate in the
parade must apply to Reykjavik Pride
before 31 July by filling out a form on
the website, www.reykjavikpride.is. For
further information about the parade
please contact the parade managers
via gongustjorn@hinsegindagar.is.
The parade starts at 2 pm sharp and
goes from Hallgrímskirkja church,
down Skólavörðustígur, Bankastræti,
Lækjargata, and Fríkirkjuvegur. The
parade concludes at Sóleyjargata, near
Hljómskálagarður, where an outdoor
concert takes place.
50