Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Síða 50

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Síða 50
Gleðigangan The Pride Parade Frá Hallgrímskirkju, laugardaginn 6. ágúst kl. 14:00 Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast hinsegin fólk í einum hópi með fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði, ásamt því að minna á þau baráttumál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni. Hinsegin dagar skipuleggja Gleðigönguna en atriðin sjálf eru sprottin úr grasrótinni og einstaklingar og hópar geta skipulagt atriði og skráð sig til þátttöku í göngunni. Skilyrði fyrir þátttöku er að atriðin miðli skilaboðum sem varða veruleika hinsegin fólks á einn eða annan hátt. Gönguleið Gangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00 og bíður ekki eftir neinum. Gengið verður eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn þar sem taka við glæsilegir útitónleikar að göngu lokinni. Skráning og þátttaka Þátttakendur sem ætla að vera með atriði í Gleðigöngunni skulu sækja um eigi síðar en 31. júlí á hinsegindagar.is/gledigangan. Nánari upplýsingar um gönguna veitir göngustjórn á netfanginu gongustjorn@hinsegindagar.is. Athugið að ekki er hægt að veita atriðum aðgang að göngunni nema rafræn umsókn hafi verið send inn og skilmálar samþykktir. Hinsegin dagar leggja áherslu á að þau sem vilja ganga með, en hafa ekki sótt um þátttöku og eru ekki með sérstakt atriði, bíði með að slást í hópinn þar til síðasti vagninn hefur farið framhjá. Auglýsingar bannaðar Hinsegin dagar eru stoltir af því að Gleðigangan í Reykjavík er ein af fáum sambærilegum göngum í heiminum þar sem auglýsingar eru óheimilar. Með auglýsingabanninu er undirstrikað að gangan er grasrótarviðburður og þátttakendur taka þátt til að styðja baráttuna og málstaðinn en ekki til að styrkja eða auglýsa fyrirtæki. Í örfáum undantekningartilvikum eru auglýsingar heimilar en þá þarf að sækja sérstaklega um undanþágu til göngustjórnar. Athugið að allar ósamþykktar auglýsingar á bílum og fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer af stað. Brot á þessum reglum getur valdið brottvísun úr göngunni. Gleðigöngupotturinn Með samstarfssamningi Hinsegin daga og Landsbankans varð til sérstakur styrktarpottur Gleðigöngunnar. Pottinum er ætlað að styrkja einstaklinga og hópa til þátttöku í Gleðigöngunni og þannig m.a. aðstoða þátttakendur við að standa straum af kostnaði við hönnun atriða, leigu ökutækja, efniskaup og fleira. Dómnefnd velur styrkþega úr innsendum umsóknum og úthlutar styrkjum með það að markmiði að styðja framúrskarandi From Hallgrímskirkja church, Saturday 6 August at 2 pm hugmyndir til framkvæmda. Miðað er við að fjárhæðir styrkja úr Gleðigöngupottinum séu á bilinu 100.000–500.000 kr. Dómnefndin hefur heimild til að halda eftir að hámarki 200.000 kr. til veitingar hvatningarverðlauna að hátíð lokinni. Þar með hafa allir styrkir og verðlaun Hinsegin daga verið færð undir einn hatt og því er ekki hægt að sækja um aðra styrki eða endurgreiðslu kostnaðar vegna þátttöku í Gleðigöngu Hinsegin daga. Sjá nánar á www.hinsegindagar.is/ gledigongupottur The Pride Parade Groups that wish to participate in the parade must apply to Reykjavik Pride before 31 July by filling out a form on the website, www.reykjavikpride.is. For further information about the parade please contact the parade managers via gongustjorn@hinsegindagar.is. The parade starts at 2 pm sharp and goes from Hallgrímskirkja church, down Skólavörðustígur, Bankastræti, Lækjargata, and Fríkirkjuvegur. The parade concludes at Sóleyjargata, near Hljómskálagarður, where an outdoor concert takes place. 50
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.