Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 10
„Viltu typpi í rass?“ Spurning sem er
hugsanlega ekki við hæfi að hafa eftir
á prenti í virðulegu tímariti sem þessu
en engu að síður nauðsynlegt því þetta
er spurningin sem skóp sigur Lady
Zadude í dragkeppni Íslands sem fór
fram í Tjarnarbíó í maí sl., og það á sjálfan
uppstigningardag.
Keppendur buðu upp á sannkallað
hlaðborð af fjölbreyttum atriðum.
Twinkle Starr opnaði keppnina með
kröftugum flutningi á standardinum My
Way og gaf „croonerum“ þessa heims
ekkert eftir. Tókst atriðið svo vel að
Twinkle hlaut þriðja sætið í keppninni.
Keppnin var fjölbreytt og svona til þess
að undirstrika fjölbreytileikann í þessari
keppni saumaði næsti keppandi á svið
eftir frú Twinkle Starr í magann á sér með
nál og tvinna. Það þótti heldur óvenjulegt
enda barst kliður um salinn og einstaka
vein heyrðust meðal áhorfenda.
Lola Von Heart hreppti annað sætið í
keppninni. Lola mætti í fögrum, rauðum
kjól og var greinarhöfundur hreinlega
ekki viss um hvort þarna stæði Sigga
Beinteins endursköpuð úr Eurovision
1990 eða Lola, því kjóllinn minnti mjög
á fræga kjólinn hennar Siggu. Lola er
greinilega lunkinn dansari en hún steig
óaðfinnanleg spor á sviðinu sem, eins
og áður sagði, skilaði henni silfrinu í
keppninni í ár.
En það sem skóp sigurinn var eilífa
spurningin sem flestir hommar kannast
við, ertu toppur eða botn? Vilhjálmur
Ingi Vilhjálms eða Lady Zadude spurði
þessarar spurningar í frumsömdu lagi
og texta sem sló vægast sagt í gegn, því
ekki nóg með að hún næði sér í titilinn
Dragdrottning Íslands heldur hlaut
hún titilinn vinsælasta stúlkan, eða „fan
favourite“ og þreyttist Lady Z ekki á að
minna fólk á það eftir keppnina. Það
er ljóst að þessi drolla er komin til að
vera og verður hún áberandi á Hinsegin
dögum í ár.
„Lady Zadude hefur verið að þróast
og gerjast í nokkur ár, eða frá því
ég fór í drag fyrst. Líkt og allir
dragskemmtikraftar, ögrar hún
kynjanormum samfélagsins, það
eitt og sér er mér afar hugleikið og
mikilvægt,“ sagði Vilhjálmur Ingi, sem
er alltaf kallaður Villi, þegar hán var
spurt út í karakterinn eftir sigurinn í
Tjarnarbíói. „Hennar sérkenni er lifandi
flutningur á þekktum lögum með
breyttum textum sem segja frá hinsegin
veruleika, frá hennar sjónarhorni að
sjálfsögðu. Það getur nefnilega enginn
Nálar, söngur, glimmer og typpi í rass í Tjarnarbíói
10