Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 40

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 40
að deyja. Leiddi hugann sem minnst að þessu, forðaðist heldur þá sem voru búnir að missa einhvern nákominn, fannst erfitt að láta minna mig sífellt á þennan nálæga dauða. En auðvitað komst ég ekkert hjá því. Við héldum samt öll áfram að skemmta okkur. Alltaf. Eitt kvöldið lyftu þeir honum í hjólastólnum upp á efri hæðina á 22 og við fögnuðum honum öll. Föðmuðum hann og kysstum. Við tókum ekki á okkar fólki með hönskum, við vissum betur. Eða vissum við betur? Ég man það ekki, en þetta gerðum við allavega. Og svo drukkum við meira og dönsuðum og það liðu mörg ár þar til ég leiddi sérstaklega að því hugann að þarna sá ég hann í síðasta skipti, næstum blindan í hjólastólnum. Ég veit ekki af hverju þessi minning hefur sótt svona stíft á mig undanfarin ár. Ég hélt að þetta væri liðin tíð. En ekkert af þessu er liðin tíð, lúrir bara þarna undir og laumast svo aftan að manni þegar minnst varir. Eru það ekki einkenni áfalla? Aldrei alveg örugg nema með öðru hinsegin fólki Ég veit ekki af hverju ég hugsa svona mikið um þetta allt núna. Kannski er það óhjákvæmilegt, fyrst mér hefur tekist svona vel að þræða borgaralega meðalveginn öll þessi ár. Svo vel að Þorvaldur okkar Kristinsson sá ástæðu til að minna mig á að maður yrði að næra öfuguggann í sér. Ég skildi alveg hvað hann átti við, kveikti vandræðalega snöggt á því og vissi upp á mig skömmina. Ég var bara þreytt og skildi ekki af hverju þetta væri enn svona. Gat ég virkilega ekki komist undan þessu öráreiti öllu með því að lifa hamingjusamlega það sem eftir væri með konunni minni og dætrum okkar? Var ekki allt eins og það átti að vera? Við með áfallastreituna erum ekki flink að tala um þetta og átta okkur á hvað vantar, hverju er ofaukið, hvað við sitjum uppi með. En ég hef spurt þau mörg, jafnaldra mína, hvort þau upplifi það sama og ég: Að vera hvergi 100% örugg og óhrædd að vera við sjálf nema í hópi annars hinsegin fólks. Og þau taka öll undir að þannig sé það. Það er alveg sama hversu dásamlega foreldra, systkini, tengdafólk, vini, samstarfsfólk þú átt. Þú ert hvergi 100% óhult nema í hópi annars hinsegin fólks. Í hvert sinn sem ég hitti dásamlegu hinsegin vinina mína þá léttir af mér fargi sem ég hafði ekki áttað mig á að lægi á mér. Ég get andað dýpra en áður, það er bjartara, hlýrra. Það skiptir auðvitað engu hvort þar eru jafnaldrar mínir á ferð eða yngra hinsegin fólk, sá hópur hefur ekkert komist undan áreitinu frekar en við sem eldri erum. Mig grunar reyndar að allt þetta rifjist upp núna vegna þess að stundum líður mér eins og mér hafi verið kippt 40 ár aftur í tímann. Hatrið sem núna beinist að trans fólki lýtur öllum sömu lögmálum og hatrið sem áður beindist að okkur. Það eru öll sömu rökin. Nei, öll sama rökleysan. Allt sama fólkið sem talar og talar og talar um tilfinningar annars fólks. Hvernig því getur hreinlega ekki liðið svona, hvernig því hlýtur að líða eða ætti a.m.k. að líða, hvernig heimsmyndin öll er undir því komin að þetta fólk sé ekki það sjálft. Að það sé kannski pínulítið öðruvísi, það má sko alveg, en bara upp að þeim mörkum að allt eðlilega fólkið með normal skoðanirnar geti sætt sig við það. Ekki fara út fyrir þann ramma, þá má tala um þig eins og hver önnur óhreinindi sem þarf að afmá. Troddu þessu helvítis umburðarlyndi Verst hefur það alltaf lagst í mig þegar fólk hreykir sér af eigin „umburðarlyndi“. Það er auðvitað ekkert upp á umburðarlyndi sem slíkt að klaga. Við ættum öll að umgangast hvert annað af virðingu, kærleik og umburðarlyndi. Mér er hins vegar gjörsamlega ómögulegt að færa merkingu umburðarlyndis í samskiptum yfir á það að einhver verði að þola tilvist mína. Þola að ég lifi lífi mínu eins og ég kýs. „Þú getur troðið þessu helvítis umburðarlyndi þínu!“ hef ég öskrað. Margoft. En oftast í hljóði. Ég hef líka dregið andann djúpt og reynt að ræða málin, útskýra að ég skilji og viti að viðkomandi sé svo ósköp fordómalaus og sjái ekkert að mér og takk kærlega fyrir það sko (því ég veit að það er betra að fara ofur varlega að þessum meirihluta, hann er svo undarlega styggur þegar efast er um ágæti hans), en mér sé svo meinilla við þetta orð í þessu samhengi. Af því að mér þyki alltaf, samkvæmt orðsins hljóðan, að þar með hafi fólk tekið meðvitaða ákvörðun um að umbera mig. Núna veit ég að allar tilraunir til að ræða þetta eru dæmdar til að mistakast. Streit fólkinu sárnar alveg svakalega, ég á sko alveg að vita hvað þau eru góðar manneskjur og það er ótrúlega grimmt af mér að ætla þeim eitthvað illt og hvaðan kemur mér eiginlega rétturinn til að gefa í skyn að hugsanlega sé grynnra á fordómunum hjá þeim en þau vilja vera láta? Já, hvaðan ætli mér komi sá réttur? Ég er öll svona öfugsnúin og vanþakklát og samt þreytist fólk ekki á að segja manni að það sé svo fordómalaust að því sé andskotans sama þótt ég sé hinsegin. Það er bara ekkert sem þarf að ræða í því samhengi. Umburðarlyndið, sjáðu til. Sem þýðir auðvitað þegar að er gætt að hinn öruggi meirihluti nennir bara ekki að leggja á sig að hugsa hálfa hugsun um hinseginleikann, býður ekkert upp á raunverulegan skilning og setur mig þar með óhjákvæmilega á minn sérstaka bás. Svona örlítið til hliðar við hina. Ég er samt í allra skástu stöðunni af okkur öllum. Komin yfir miðjan aldur, allir voða sáttir við borgaralegu lesbíuna sína og hennar fjölskyldu, ekkert nema umburðarlyndið á alla kanta. Þetta er bara komið hjá mér, frágengið. Full mannréttindi í höfn. Ekki málið. Ég trúði þessu meira að segja sjálf um tíma, á þeim árum sem ég var í minnstu sambandi við hinsegin samfélagið og þar með sjálfa mig. En það vantar alltaf herslumuninn hjá þeim langflestum. Mannréttindi okkar eru bara þunn skán. Eða öllu heldur litrík 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.