Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 11
með heilindum sagt hinsegin sögur
nema við sjálf. Húmorinn er svo mín
nálgun og minn frásagnarstíll, en það
breytir ekki umfjöllunarefninu eða
skilaboðunum,“ bætir Villi við og það var
öllum áhorfendum í Tjarnarbíó einmitt
ljóst, að húmorinn er Villa ofarlega í huga
þegar hán býr til efni fyrir Lady Zadude.
Hán bætti við að hán sækti innblástur
til dragdrottningarinnar Sherry Vine, en
hún einmitt sérhæfir sig í að snúa textum
vinsælla laga upp í hinsegin grín.
Villi hefur fyrst og fremst sérhæft sig í að
standa bakvið sviðið við skipulagningu
viðburða á hinsegin senunni og segir að
Lady Zadude hafi beðið allt of lengi á
hliðarlínunni. „Þegar ég sá auglýsinguna
fyrir Dragkeppni Íslands fannst mér það
kjörið að demba mér út í djúpu laugina
og fara í dragið af fullum krafti. Fólk eins
og ég, þ.e. sem er með offramboð af
ADHD, þarf nefnilega eitthvað svona til
að koma sér af stað stundum,“ segir Villi
og hlær.
Eins og áður kom fram hlaut Villi styrk
í verðlaun til þess að koma fram á
Hinsegin dögum og mega áhorfendur
vænta mikillar gleði í atriðunum háns.
„Ég lít á draglistamenn sem nokkurs
konar sjúkrahústrúða. Árið er búið að
vera heldur betur ömurlegt þar sem
ráðist er að okkur úr ótrúlegustu áttum,
þó sér í lagi að trans fólki. En líkt og
sjúkrahústrúðar koma oft inn í erfiðar
aðstæður til að gefa fólki þó ekki sé
nema smá hlé frá raunveruleikanum,
komum við dragfólkið inn og gerum
okkur besta til að lyfta upp gleðinni og
baráttuandanum. Það er markmiðið með
atriðinu mínu í ár, að gefa okkur orku fyrir
áframhaldandi baráttu,“ segir Villi, spennt
fyrir Hinsegin dögum í ár.
Needles, singing, glitter and a
cock in the ass in Tjarnabíó
The Icelandic drag competition 2022
The 2022 Icelandic drag competition was
held in Tjarnarbíó in May. The winner of
a vibrant and diverse competition was
Lady Zadude, who performed an original
song about the age old question: are you
a top or a bottom? She views drag artists
like hospital clowns: they come in to lift the
spirits of queer people when the going gets
tough and we all need a short break from
reality. Lady Zadude will be performing
during Reykjavík Pride.
11