Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 63

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 63
Árið 2017 hlaut Fríða Agnarsdóttir heiðursmerkið fyrir óeigingjörn störf í þágu félagsins. Fríða hafði um árabil setið í stjórn félagsins, haft umsjón með regnbogasal Samtakanna ‘78 og mannað barinn á opnum kvöldum. Hún hafði stýrt, stokkið til, aðstoðað, ráðlagt, skúrað og allt þar á milli. Segja má að á vettvangi Samtakanna ‘78 hafi Fríða unnið ósýnilegt ævistarf en það er engu að síður mikilvægt starf. Samtökin ‘78 væru ekki þau sem þau eru í dag ef ekki hefði verið fyrir dýrmæt störf Fríðu, sem þó voru oft unnin í sjálfboðavinnu. Guðrún Ögmundsdóttir hlaut heiðursmerki Samtakanna ‘78 árið 2019 fyrir þrotlausa baráttu, m.a. fyrir jöfnum hjúskap samkynja para. Guðrún, eða Gunna eins og mörg okkar kölluðum hana, sat á þingi árin 1999-2007 og var þar einn helsti erindreki hinsegin fólks. Það var meðal annars fyrir tilstilli Gunnu að frumvarp sem færði okkur fullan hjúskaparrétt, ættleiðingarrétt para af sama kyni og rétt allra kvenna til tæknifrjóvgunar varð að lögum árið 2006. Þótt kirkjan stæði enn utan við þessi lög var þetta mikilvægur áfangasigur fyrir hinsegin fólk á Íslandi og til marks um eldmóð Gunnu á sviði mannréttinda. Guðrún var heiðruð fyrir að vera fyrirmyndarbandamaður, vinur og baráttukona. Heiðursmerki Samtakanna ‘78 var veitt Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrsta opinberlega samkynhneigða forsætisráðherra heims, árið 2021. Þegar Jóhanna varð forsætisráðherra árið 2009 þótti það ekki endilega tiltökumál hér heima að hún væri lesbía en enginn skyldi efast um mikilvægi þessa áfanga í baráttu hinsegin fólks á heimsvísu. Í Jóhönnu fékk hinsegin fólk sterka fyrirmynd sem fór í opinberar heimsóknir um víða veröld með konu sinni og braut hvert glerþakið á fætur öðru. Það var því sérlega sælt að ein hjúskaparlög voru að endingu samþykkt í forsætisráðherratíð Jóhönnu og að þær Jónína hafi verið með fyrstu samkynja pörunum til að ganga í hjónaband eftir gildistöku þeirra. Það skiptir máli hver ræður. Með tilvist sinni og samfélagsstöðu hefur Jóhanna haft áhrif á sjálfsmynd ótal hinsegin fólks. Nú síðast í vor hlaut Einar Þór Jónsson heiðursmerki Samtakanna ‘78 fyrir samtvinnaða baráttu sína fyrir réttindum HIV jákvæðs fólks og hinsegin fólks á Íslandi. Einar Þór var einn fyrsti Íslendingurinn til að tala opinskátt um líf sitt með HIV undir nafni. Þetta var fyrir þrjátíu árum og alla tíð síðan hefur Einar Þór verið hluti af forystu HIV jákvæðra á Íslandi. Saga HIV á Íslandi er samofin sögu Samtakanna ‘78. Með jákvæðni, æðruleysi og þrautseigju hefur Einari og samstarfsfólki hans tekist að snúa viðhorfi almennings til HIV. Fyrir samfélag hinsegin fólks er ævistarf Einars Þórs hvalreki sem seint verða gerð almennileg skil. Þau eru fjölbreytileg handtökin í sögu hinsegin fólks á Íslandi. Hver ævi einstök, hver sigur mikilvægur og ekkert unnið eitt síns liðs. Samtökin ‘78 standa í þakkarskuld við fjölmargt fólk og ég vona að ég fái tækifæri til að smella litlu barmmerki í vel valið hnappagat við tækifæri. Það er í senn það minnsta og mikilvægasta sem ég get gert. Samtökin ‘78’s badge of honour Samtökin ‘78, the national queer organization of Iceland, award a badge of honour to “individuals who have made a great impact in the fight for human rights for queer people, be that in politics, social issues, or behind the scenes.” In the last five years the badge has been awarded four times: to a lifelong volunteer with Samtökin ‘78 Fríða Agnarsdóttir, politician Guðrún Ögmundsdóttir, former prime minister Jóhanna Sigurðardóttir, and HIV/AIDS activist Einar Þór Jónsson. The opportunity to thank people for their hard work is important to organizations such as ours and we are thankful for the opportunity to do so. 63
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.