Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Síða 14

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Síða 14
PINKICELAND.IS DESTINATION WEDDINGS TRAVEL PLANNING & FOR 10 YEARS LO VE CELEBRATING WE ARE A VALUES BASED COMPANY OWNED AND RUN BY MEMBERS OF THE LGBTQ+ COMMUNITY. WE STRIVE FOR EQUALITY, RESPECT, HONESTY, SUSTAINABILITY & KINDNESS. WE HOPE YOU DO TOO* *that basically means that if you're racist, sexist or queer- phobic we can't work with you. also, if this applies to you please seek help immediately! Í skólastofum landsins starfa yfir 7000 kennarar, um 5300 í grunnskólum og 1800 í framhaldsskólum. Margir þeirra þekkja hinseginleikann vel og reynast góðir bandamenn, en einnig eru þeir kennarar til sem tala á þá vegu að hreinlega skaðlegt er gagnvart hinsegin nemendum og hinsegin kennurum og starfsfólki skólanna. Nýlega birti grunnskólakennari færslu á fésbókinni þar sem tekið var undir hatursfull sjónarmið Dr. Jordan Peterson gagnvart trans ungmennum og trans fólki. Eftir kvörtun og ábendingar brást KÍ við með yfirlýsingu þar sem tekinn er af allur vafi um að stefna KÍ er að virða og styðja hinsegin samfélagið og fordæma hatursorðræðu, fordóma og fáfræði innan veggja skólasamfélagsins. Fréttina má finna á síðu Kennarasambandsins. Arna Magnea Danks, leikkona, áhættuleikstjóri, kennari og aktívisti, hefur starfað sem grunnskólakennari í 17 ár, ásamt því að sinna stundakennslu í áhættuleik við Kvikmyndaskóla Íslands, LHÍ og Menntavísindasvið HÍ af og til frá árinu 2012. Hún deildi með okkur nokkrum grunnatriðum sem mikilvægt er fyrir kennara að hafa í huga í starfi sínu. 1. Mikilvægt er fyrir skólasamfélagið að hlusta á og virða raddir hinsegin kennara og taka mark á þegar er verið að leiðrétta rangfærslur, benda á öráreiti, fáfræði og fordóma. 2. Ávallt að sýna nemendum sem koma út nærgætni, virðingu og hlusta á óskir nemenda um fornöfn. Enda skylda kennara og samfélagsins að hlíta samþykkt barnasattmála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna. 3. Sækja fræðslunámskeið á vegum Samtakanna ‘78 sem hluta af sí- og endurmenntun kennara. 4. Lesa sér til á viðurkenndum og opinberum síðum og bókum er fjalla um hinseginleikann, t.d. otila.is/ 5. Alltaf, alltaf spyrja annan kennara, vin, ættingja sem tengist hinseginleikanum, ef þú ert í vafa um hvernig þú getir sem best stutt við hinsegin nemendur, foreldra og starfsfólk. 6. Ef trans/kynsegin nemandi vill nota annað nafn en viðkomandi fékk úthlutað, þá ber að virða tilfinningar og vilja nemandans. Enda kveður barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna skýrt á um rétt barna til að á þau sé hlustað og tilfinningar þeirra virtar. 7. Sýnið samstöðu í verki þegar nemendur, starfsfólk og/eða trans/ kynsegin einstaklingar verða fyrir öráreiti, gaslýsingu, rangkynjun eða fordómum. 8. Þrýstið á ykkar skóla að innlima aðgerðaáætlun gagnvart einelti, áreitni og ofbeldi vegna hinseginleika í aðgerðaráætlunina um jafnréttismál. 9. Þrýstið á aukna fræðslu innan skólans, bæði með því að fá hinsegin kennara/nemendur/starfsfólk til að ræða við annað starfsfólk og nemendur, en ekki síst með því að fjölga þeim skiptum sem Samtökin ‘78 koma inn með fræðslu. Ekki er nóg að vera með fræðslu á 3-4 ára fresti fyrir nemendur og starfsfólk, þetta þarf að vera á hverju einasta hausti til að skila virkilegum árangri í baráttunni gegn fáfræði, fordómum og hatri. 10. Á undan allri menntun þarf að koma umhyggja, tilitsemi og virðing. Einungis ef barni líður vel er það tilbúið til að hlusta og læra. Tökum frá tíma til að ræða við nemendur um fjölbreytileika mannlegrar tilvistar og hlustum á raddir hinsegin nemenda þegar þau segja frá sinni upplifun. Á bakvið hugtakið menntun er mennskan og hana þurfum við að rækta á kærleiksríkan, umburðarlyndan og skilningsríkan máta, framar allri annarri menntun. Ten points for queer inclusive schools and teachers. Teacher and trans activist Arna Magnea Danks lays out a 10-point action plan for schools and teachers to embrace their queer students. Iceland has over 7000 teachers and the teachers’ union has in a recent case affirmed their pro queer rights stance. Arna provides us and her colleagues with the actions they need to take. Vellíðan nemenda er grundvöllur að árangri þeirra í námi Ábendingar frá hinsegin kennara Höfundur: Arna Magnea Danks
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.