Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Blaðsíða 16
Við erum Ungmennaráð Samtakanna ‘78
Við erum fulltrúar hinsegin ungmenna
á Íslandi, sem þýðir að við sjáum
um væntingar og þarfir yngri
kynslóðarinnar. Ungmennaráðið var
samþykkt í mars 2021, en við hófum ekki
störf okkar fyrr en í janúar síðastliðnum.
Í ráðið er valið með kosningum á vegum
Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar í
ágústmánuði. Þetta árið eru Sólbjartur
Oddviti, Andreas Tinni, Teddy Coda Birna,
Refur Leó, Sóley, Nóam Óli og Dagbjartur
Jóhannsson í stjórn. Við viljum koma
með ný, fersk sjónarmið inn í Samtökin
og tala fyrir hönd ungmenna.
Hæ!
Í síbreytilegum heimi er stanslaus þörf
á túlkun og tjáningu. Fólk er að koma
út úr skápnum yngra en nokkur sinni
fyrr og því er þörf á að bregðast við
því með meiri stuðningi. Við viljum
opnara samfélag og öruggari rými til
að gera ungmennum kleift að sýna
heiminum hver þau eru. Okkur finnst
óþolandi að fólk, þá mestmegnis börn
og unglingar, séu að gelta á hinsegin
fólk og fólk sem passar ekki inn í þröngt
box kynjatvíhyggjunnar. Ungt fólk
virðist ekki átta sig á því hve skaðleg
þessi hegðun getur verið. Það að gelta
á hinsegin manneskju er ekki skaðlaust
grín. Það að gelta á manneskju lítillækkar
þolendur þess. Það gefur til kynna að
þolandi sé ekki meira virði en hundur.
Það að hinsegin manneskjur þurfi að
forðast hluti/aðstæður, og að þau séu
ekki örugg úti á götu er ekki í lagi. Jafnvel
þótt hatur liggi ekki alltaf að baki þessari
hegðun þá dregur það ekki úr skaðleika
geltsins. Ungt fólk telur sig vera bara að
taka þátt í skrítnu net-trendi en þetta
eru hreinlega ekkert annað en fordómar.
Það þarf að fræða ungt fólk um hversu
skaðlegir fordómar geta verið. Það er
sorglegt að árið 2022 þurfi hinsegin
fólk enn að lifa við fordóma. Það að
16