Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Page 22

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Page 22
Höfundur: Vera Illugadóttir Ég fór til Oslóar í vor í fyrsta sinn. Ég var í félagsskap hinsegin fólks og náttúrulega leituðum við uppi hinsegin staði að heimsækja. Fyrsta kvöldið sáum við vinkona mín auglýst barsvar á gamalgrónum hinsegin bar rétt við hótelið okkar. Verandi áhugafólk um slíkt sport æddum við af stað og stóðum okkur alveg svona mátulega miðað við fjölda spurninga um norska pólitík og landafræði. En það sem stóð upp úr var staðurinn sjálfur. London Pub var stofnaður 1979 og ber þess merki — innréttingarnar hafa lítið breyst frá opnun, og breskt pöbbaþema er líklegast frekar óvenjulegt á hinsegin börum í dag. Mörg voru greinilega fastagestir, höfðu jafnvel verið fastagestir allt frá opnun fyrir meira en fjörutíu árum. Aldursbil gesta var með því mesta sem ég hef séð á hinsegin stað nokkurs staðar. Við fórum aftur kvöldið eftir. Þá var rífandi dragbingó í gangi og kúnnahópurinn jafn fjölbreyttur í aldri og öðrum eiginleikum. Svo litríkar týpur að maður gat ekki annað en fyllst stolti og kærleika yfir að tilheyra sama litríka en þó samhenta hinsegin samfélagi. Það fór svo að þá fimm daga sem við vorum í Osló gátum við ekki annað en farið á London Pub hvert einasta kvöld. Fimm kvöld í röð. Eitt kvöldið fylgdist hálfur barinn með æsispennandi pool-keppni lesbía þar sem lá við slagsmálum af kappsemi. Annað kvöld lögðum við á okkur talsvert erfiði við að útvega klink til að geta notað fornfálegan glymskratta í einu horni barsins og barþjónninn sem virtist alltaf á vakt varð í þessa örfáu daga okkar besti vinur í Osló. Dansstaðir og barir eru góðir til síns brúks en maður fékk strax á tilfinninguna að London væri eitthvað annað: hinsegin félagsmiðstöðin sem vantar svo víða. Til dæmis í Reykjavík. Þrjátíu og þremur dögum eftir síðasta kvöldið sem við vörðum á London Pub, aðfaranótt 25. júní 2022, skaut hryðjuverkamaður að fólki á líflegu útisvæðinu við London og næstu krá við hliðina. Þetta var á heitu föstudagskvöldi, daginn fyrir gleðigöngu Oslo Pride og eflaust sjaldan skemmtilegra á London en einmitt þetta kvöld. Tveir létu lífið fyrir utan krárnar tvær og um tuttugu særðust. Oslóarbúar, úti á lífinu, eltu árásarmanninn, snéru niður og afvopnuðu. NOKKUR KVÖLD Á LONDON PUB 22

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.