Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Page 32

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Page 32
H öfundur: U gla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir það ætti að senda þau í útrýmingarbúðir. Þetta eru aðeins örfá dæmi sem lýsa veruleika hinsegin fólks á Íslandi, sem verður ennþá fyrir gríðarlega miklum fordómum og jafnvel ofbeldi hérlendis. Kannanir á vegum Samtakanna ‘78 sýna að líðan hinsegin ungmenna í skólum er mun verri en annarra ungmenna og eru mörg dæmi til um alvarlegt einelti sem hinsegin ungmenni verða fyrir í skólum landsins. Svona atvik verða ekki til í tómarúmi. Þau eiga sér sögu, eru uppsöfnuð og oft fyrirsjáanleg. Á undanförnum árum hefur hatursorðræða í garð hinsegin fólks aukist til muna víðsvegar um heim og er Ísland þar engin undantekning. Undanfarin misseri og ár hafa verið gefnar út greinar, tekin viðtöl og viðhöfð orðræða á samfélagsmiðlum sem reynir að grafa undan réttindabaráttu hinsegin fólks, og þá sérstaklega trans fólks. Ýmsar leiðir eru farnar og eru sumar meira afgerandi en aðrar. ORÐ ERU TIL ALLS FYRST Eftir rómantískt deit þar sem tveir karlmenn fögnuðu fjögurra ára sambandsafmæli urðu þeir varir við hóp af ungum karlmönnum sem geltu á eftir þeim þegar þeir stigu inn í leigubíl. „Geltu á þessi helvíti”, segir einn þeirra og upp skerst mikill hlátur. Sömu sögu hefur hópur hinsegin ungmenna og foreldrar þeirra að segja, en í sláandi viðtali í Kastljósi fyrr á árinu lýstu þau niðurlægjandi og ítrekuðu áreiti sem þau urðu fyrir af hálfu jafnaldra sinna — sem hefur leitt til þess að mörg þeirra fara ekki úr húsi af ótta við frekara áreiti. Fyrr á árinu byrjaði hinsegin fólk að fá skilaboð og símtöl frá ungum karlmönnum sem sögðust vera „hommabanasveitin“ og hótuðu hinsegin fólki ofbeldi og sögðu að 32

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.