Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Page 34

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Page 34
Endurreisn butch- lesbíunnar Þegar ég var líklega fjórtán ára fór ég á skólaball í Austurbæjarskóla. Það var í sjálfu sér í frásögur færandi, ég var ekki mikið félagsljón á þessum tíma. Annað sem var talsvert óvenjulegra var að ég keypti mér flík sérstaklega fyrir skólaballið — stutt, rauðköflótt pils. Ég þóttist vera pönkari þarna og taldi þetta pönklegan klæðnað. En ég sá eftir fatavalinu um leið og ég gekk inn á ballið — þótti óbærilegt að vera meðal fólks í pilsi og endaði á því að fela mig allt kvöldið, tók sannarlega engan þátt í ballinu. Ég skil ekki alveg hvað mér gekk til, því fram að þessu hafði ég ekki farið í pils eða kjól síðan ég var eitthvað um átta ára gömul og tók æðiskast þegar ég komst að því að það að fara með hlutverk Soffíu frænku í Kardimommubænum í skólaleikriti fylgdi að ég yrði að vera í kjól. (Mig langaði líka meira að vera Kasper, Jesper eða Jónatan.) Allavega, frá þessu kvöldi í Austurbæjarskóla hef ég aldrei farið í hvorki pils né kjól, geng alltaf í buxum og kaupi eiginlega eingöngu karlmannsföt. Að klæða mig þannig hefur, persónulega, veitt mér mikla ánægju. Ég upplifi mig bæði sátta í eigin skinni og fötum og svo eru auðvitað miklu betri vasar á karlmannsbuxum. Þrátt fyrir að hafa gengið í karlmannsfötum í fjölda ára rak mig þó í rogastans einhvern tímann fyrir nokkrum árum þegar önnur manneskju talaði um mig sem „butch“. Nei, varla er ég þannig? Fyrir það fyrsta átti ég, þá, ekki eina einustu flannelskyrtu (hef ráðið bót á því síðan), ég er með hár niður fyrir eyru og þó ég sé stolt af borvélinni minni er ég í raun og veru ekkert sérstaklega handlagin. En því meira sem ég hugsaði út í þetta orð og sögu þess hefur það orðið mér hugleiknara. Slátrarar og harðjaxlar Lesbíufræðingar hafa sett fram ýmsar kenningar um uppruna enska orðsins „butch“ en líklegast þykir að þetta sé stytting á enska orðinu „butcher“ — slátrari, bókstaflega, en sem slangur notað í merkingunni „harðjaxl“ eða „vandræðagemsi“, eitthvað slíkt, í byrjun síðustu aldar. Upphaflega hefur það verið notað í niðrandi tilgangi um karlmannlegar konur, en þær sem áttu að móðgast — karlmannlegar hinsegin konur, voru fljótar að grípa orðið á lofti og tileinka sér það — á sjötta áratug síðustu aldar var það orðið nokkuð algengt í máli kvenna sem stunduðu lesbíusenurnar og -bari í New York, San Francisco og víðar. Konurnar sem tóku orðið upp á arma Hvað er butch — og hvar? Texti: Vera Illugadóttir Gladys Bentley, vinsæll dragkóngur í Harlem á fjórða áratug 20. aldar. 34

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.