Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Side 66
að ég væri enn með typpið mitt … og ég
var með öll öppin stillt á konur þar sem
ég laðast nánast eingöngu að konum.
Þannig að það voru ekki einu sinni hvítu
cis karlarnir sem við tölum svo oft um
sem óvinina heldur íslensku hinsegin
konurnar sem hröktu mig burt af þessum
vettvangi.“ (Trans kona, Asía.)
Það er hægt að gera betur
Þótt það eigi ekki alltaf að vera á ábyrgð
á þeirra sem verða fyrir fordómunum að
kenna þeim sem eru í forréttindastöðu
hvernig skal gera betur, komu upp
margar tillögur að því hvernig hinsegin
samfélagið gæti tekið sig á þegar kemur
að málefnum útlendinga innan þeirra
raða.
„Þegar ég byrjaði að mæta á hinsegin
viðburði var alltaf allt á íslensku, allar
auglýsingar, allar ræður, bara allt. Núna er
þetta orðið miklu betra. Mér finnst mjög
gott þegar fólk spyr í upphafi viðburðs
eða jafnvel bara í upphafi samtals hvort
það sé einhver sem talar ekki íslensku
eða vill frekar hafa þetta á ensku af
einhverjum öðrum ástæðum. Það er oft
gert en ekki alltaf og stundum þarf ég
að vera pirrandi manneskjan sem réttir
upp hönd eða grípur fram í og biður um
að fólk tali á ensku svo við stöndum öll
jafnfætis.“ (Trans maður, Evrópa.)
„Mér finnst sorglegt að sjá að í forsvari
fyrir öll stóru hinsegin samtökin, að
Trans Ísland undanskildu, er bara hvítt
íslenskt fólk. Ég er alls ekki að segja að
þetta sé allt rasismi en þau sem velja í
þessa hópa eða stöður eða hvað sem er
þurfa samt virkilega að líta í eigin barm
og skoða hvort þau séu, meðvitað eða
ómeðvitað, að hafna öllum útlendingum
og hleypa þeim ekki inn.“ (Trans maður,
Bandaríkin.)
Derek kallar eftir aukinni meðvitund
þegar kemur að málefnum aðflutts
hinsegin fólks og bendir á þann tvíþætta
vanda sem hópurinn stendur frammi
fyrir, að vera bæði hinsegin og aðflutt.
Hann leggur sérstaka áherslu á hversu
mikilvægt það sé að vera þessum
hóp innan handar. „Úrræði fyrir þetta
fólk vantar og það verður að breytast.
Ég skora á ykkur í samfélaginu að
koma betur til móts við okkur. Bjóðið
upp á úrræði á okkar tungumálum.
Virðið að við komum frá öðrum
menningarheimum.“
Það er ekki alltaf þægilegt að taka við
gagnrýni en þau óþægindi mega ekki
byrgja okkur sýn þegar gagnrýnin á
rétt á sér. Við verðum að gangast við
þeim vandamálum sem aðflutt fólk
glímir við á Íslandi og stíga skref til þess
að leysa þau vandamál. Derek bendir
líka á stef sem gjarnan má heyra þegar
bent er á þær áskoranir sem blasa við
fólki í hinum ýmsu minnihlutahópum.
„Hættið að benda á bágar aðstæður í
öðrum löndum í þeim tilgangi að brynja
ykkur gegn réttmætri gagnrýni. Verið til
staðar fyrir okkur öll og ekki velja hvaða
útlendingar eiga það mest skilið. Hafið í
huga að við erum öll ólík og erum meira
en bara þjóðerni okkar eða kynþáttur.“
Stöndum saman
Öll fimm, sem deildu frásögnum sínum
höfðu skilaboð að færa til annara
aðfluttra hinsegin einstaklinga á Íslandi.
„Stattu með sjálfu þér og ekki leyfa
neinum að komast upp með neitt rugl.
Þú átt alveg jafn mikinn rétt á því að vera
hér og þau, mundu það.“ (Trans kona,
Asía.)
„Verið hávær og stolt af því. Við erum
mörg hér og okkur vantar ykkar rödd
líka.“ (Lesbía, Evrópa.)
„Það er svo margt frábært við að vera
hinsegin á Íslandi, en það er líka margt
sem má breytast. Vertu breytingin sem
þú vilt sjá í samfélaginu, það gerist ekkert
án þín.“ (Trans maður, Evrópa.)
„Forréttindafólkið á ekki skilið að taka allt
plássið alltaf, taktu líka pláss, taktu MIKIÐ
pláss.“ (Trans maður, Bandaríkin.)
„Alveg eins og þau njóta forréttinda
nýtur þú forréttinda. Ekki gleyma vinum
þínum sem hafa ekki sömu réttindi og
þú. Ef við stöndum öll saman gengur
þetta allt miklu betur. Saman getum við
sigrað allt.“ (Hommi, Suður-Ameríka.)
Það er Derek sem á lokaorðin. „Ef þig
vantar vin er ég til staðar fyrir þig.
Ég ímynda mér að þú sért stundum
einmana enda eru fá sem skilja þig til
fulls. Þótt ég geti heldur ekki þóst skilja
þig fullkomlega er ég meðvitaður um
það. Ég skil að ég skil þig ekki þó að við
gætum átt nokkra hluti sameiginlega.
Ég skal ekki draga ályktanir um þig og
gera lítið úr upplifun þinni eins og sum
gera. Ég skal vera til taks og styðja þig.
Mig langar helst af öllu að þú sért bara
þú sjálf/t/ur. Ég veit að þú getur það og
allt hitt sem þú vilt gera í þínu lífi. Þú ert
best/ur og þú skalt ekki gleyma því!“
66