Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Side 68

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2022, Side 68
AÐ ELSKA ÞAÐ SEM GERIR OKKUR ÖÐRUVÍSI VIÐTAL VIÐ VICE VERSA UM HINSEGIN BURLESK Brynhildur Björnsdóttir og Margrét Ása Jóhannsdóttir Þó að burlesk-stjarnan Vice Versa sé enn ung að árum, rétt að verða þriggja ára, þá hefur hún tekið sér bólfestu í ósköp venjulegri miðaldra lesbíu sem heitir Margrét. Og þó, kannski ekki alveg venjulegri, þessi lesbía er andsetin og heltekin af listformi sem nefnist burlesk. Vice Versa steig fyrst fram á sjónarsviðið í júní 2021 og hefur síðan þá komið fram í ótal sýningum á hinum ýmsu stöðum í Reykjavík og veit ekkert skemmtilegra en að sveifla sínum löngu leggjum sem víðast ... enda fullyrðir hún að leggirnir séu þeir lengstu í bransanum. Hvernig kemur burlesk-áhuginn til? Fyrsta burlesk-sýningin sem ég fór á var jólasýning hjá burlesk-hópnum Dömur og herra í desember 2019. Eftir áramótin, í janúar 2020, var ég búin að skrá mig á burlesk-námskeið í Kramhúsinu hjá Margréti Erlu Maack og í febrúar var ég tilbúin með atriði sem ég sýndi í einkapartýum. Síðan hef ég líka setið fullt af burlesk-námskeiðum bæði í Kramhúsinu og netnámskeiðum hjá burlesk-listafólki frá New York á faraldstímanum. Ég sem sagt kolféll fyrir þessu listformi. Ég er náttúrulega bara óþolandi og tala um lítið annað en það sem tengist burlesk, eins og ég segi, er algerlega heltekin, kærastan mín er mjög þolinmóð. Ég hef alla tíð verið mikið bæði í tónlist og myndlist en hef alltaf verið mjög nýjungagjörn týpa og hef lært á að minnsta kosti fjögur hljóðfæri og farið á alls konar myndlistarnámskeið. Burlesk er aftur á móti listform þar sem tækifæri gefst til að sameina svo margar listgreinar í einu atriði sem fer á svið. Ég vissi til dæmis ekki að ég hefði svona gaman af því að sauma og búa til búninga. 68

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.